Úrval - 01.04.1978, Side 98

Úrval - 01.04.1978, Side 98
96 ÚRVAL eigandinn var maður að nafni Ed- mund St. Andre, sem hafði verið dæmdur fyrir rán. Um það bil viku seinna gerði St. Andre Bishop viðvart um, að Berettunni hefði verið stolið úr íbúð hans. I þéttriðnu neti undir- heima San Fransisco voru þeir ekki lengi að komast að því hver þjófurinn var — maður, sem þeir þekktu báðir undir nafninu Richard Arzave. í sameiningu börðu þeir sann- leikann upp úr Arzave, og neyddu hann til að bæta Berettuþjófnaðinn með 75 dollurum, en hann fékk að halda byssunni. Bishop hafði ekki hugmynd um, hvað svo hafði orðið um byssuna. Hann hafði hvorki séð Arzave né St. Andre í marga mánuði. En hann gaf upp það heimilisfang St. Andres sem hann vissi nýjast. Hlutverki Lymans Shaffer í þessu máli var lokið. Hann hafði rakið slóð Berettunnar niður í undirheima San Fransisco. Nú urðu þeir Coreris og Fotinos að taka við. Þegar Coreris kom aftur til San Fransisco, komst hann að því, að Richard Arzave átti heima í San Bmno í Kaliforníu. Arzave játaði að hafa stolið byssunni frá St. Andre og síðan bætt honum stuldinn, en hann sagðist aðeins hafa haldið Berettunni í þrjá daga. Síðan hafði hann selt hana lyfjafræðingi í San Fransisco — byssusafnara — fyrir 45 dollara. Þetta sama kvöld bankaði lögreglan upp hjá lyfjafræðingnum, næsta hlekk í þessari vonlausu keðju. Lyfjafræðingurinn fór í fyrstu undan í flæmingi, hræddur um að vera flæktur í glæpamál. En þegar búið var að sannfæra hann um, að ekki væri sjáanleg ástæða til að lögsækja hann, sagðist hann ekki heldur hafa haldið byssunni nema fáa daga. Síðla í apríl 1973 hafði hann selt Berettuna fyrir 80 dollara miðaldra viðskiptavini sínum frá Samoa. Lyfjafræðingurinn þekkti þennan samoamann aðeins með „götunafni hans — Moo-Moo. Hann lýsti honum sem þrekvöxnum manni, fremur lágum, tattóvemðum. Félagsskapur samoamanna í San Fransisco er náið samfélag og fámálugt. Coreris viss, að jafnvel þótt Moo-Moo væri vel þekkturí því, myndi ekki auðvelt að fá upplýsingar um hann meðal kunningjanna. Lögreglan var ekki vinsæl. Jú, sumir þeirra sem talað var við könnuðust við Moo-Moo. En enginn hafði heyrt hann eða séð um hríð. En að morgni 26. júlí hringdi lyfjafræðingurinn til lögreglunnar og sagði, að Moo-Moo stæði við afgreiðsluborðið í apótek- inu. Coreris bað hann að tefja fyrir honum eftir mætti. Lögregluna bar að um leið og maðurinn var að fara. Fullt nafn hans reyndist Moo-Moo Tooa. Þessi krafta- legi skipahleðslumaður hafi brotist áfram í öllum höfnum Kyrrahafsins frá Guam til Tahiti, en engu að síður nötraði hann af hræðslu þegar lögreglan króaði hann af. Coreris gmnaði, að hann hefði fleira á sam- viskunni heldur en að eignast vopn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.