Úrval - 01.02.1979, Blaðsíða 6
ÚRVAL
Lyfjameðferð gegn þunglyndi
Dr. Nathan S. Kline, yfirlæknir Rockland Research
Institute í Orangeburg, New York, svarar spurningum
um lækningar á þunglyndi.
Dr. Kline, hver eru einkenniþunglyndis?
Mest áberandi einkenni til að byrja með eru skortur gleði og
ánægju. Sá sjúki er ónæmur meira að segja fyrir því, sem myndi lyfta
honum heilbrigðum í sjöunda himin. Sígeng þreyta, vanhæfni til
einbeitingar, áhugaleysi og getuleysi til að taka ákvarðanir eru líka
algeng einkenni. Eftirsjá og sektarkennd, oft ásamt óviðráðanlegum
beyg og geðillsku getur líka komið fyrir. Það er mikilvægt að gera sér
grein fyrir þessum einkennum, því að á frumstigum er tiltölulega
auðvelt að lækna þunglyndi. En sé ekkert að gert, kann viðkomandi
að versna, og í versta falli endar þetta með sjálfsmorði.
Ollum líður okkur ver einn tíma en annan. Hvað greinir milli þeirra,
mig, mundi ég ekki eftir nafni hans
og stamaði eitthvað eða flúði. Ég
hætti að aka, óttaðist að viðbrögð
mín myndu bregðast mér. Ef
síminn heima hringdi, svaraði ég
ekki. Ef bíll ók heim að húsinu, faldi
ég mig skjálfandi, kúrði ég bak við
stól eða rúm.
Til að byrja með reyndi maðurinn
minn, Walter, að hjálpa mér. Hann
horfði í tóm augu mín og spurði hvað
hann gæti gert. Vesælar tilraunir
mínar til að látast njóta atlota hans
ergðu hann. Og ég fanna vaxandi
þreytu hans á verkum mínum sem
voru í handaskolum. Að endingu
neyddi hann mig til læknis.
Eftir nákvæma rannsókn lagði
læknirinn fingurgómana saman, svo
þeir mynduðu tjald, og svo án þess að
skeyta um tárin mín, tilkynnti hann
að ég væri við hestaheilsu. ,,Ef til vill
væru það einkennin, sem ég hafði
orðið vör við, sem gerðu mér þennan
óleik, ég hefði of miklar áhyggjur af
þeim.” Hann ráðlagði mér meiri
félagsskap og fara meira út. Hann
yppti öxlum þegar ég sagði honum að