Úrval - 01.02.1979, Blaðsíða 29
EINSKONAR ÞYNGDARLEYSl
27
nokkurrar orkugjafar. Þetta er
nokkuð, sem aldrei hefur tekist að
framkalla áður.
Sú hugmýnd, að nota frjálsa orku
óumbreytanlegs seguls I því skyni að
framkalla frjálst uppihald hluta,
hefur lengi vakið áhuga vísinda-
manna. Þrátt fyrir það sannaði breski
eðlisfræðingurinn S. Earnshaw fyrir
um 150 ámm þá kenningu, að engin
samverkun óumbreytanlegra segla
getur, hversu flókin sem hún er,
skapað svið þar sem hlutir, búnir til
úr efni sem tekur segulmögnun, geta
svifið frjálsir. Það var ekki fyrr en eftir
1950, að vísindamönnum tókst með
ýmis konar bellibrögðum að láta
þunnar agnir, fáein milligrömm að
þyngd, hanga í lausu lofti. En það var
þó ekki svar við spurningunni.
Svarið fékkst þegar sovéskir vís-
indamenn fundu upp mjög einfalt
tæki, myndað af föstum seglum og
blýskífu. En hvað er þá orðið um
Earnshawkenninguan ?
Hún heldur sínu gildi. Vísinda-
mennirnir reyndu ekki að hnekkja
henni. I stað þess sniðgengu þeir
hana, ef svo má að orði komast.
Vísindamenn þekkja vel leyndar-
dóm segulsviðs. Það er unnt að fast-
setja með mikilli nákvæmni hvar það
muni upphefja þyngd hlutar. En hlut
í slíkri stöðu mun óhjákvæmilega
„reka” að eða frá seglinum. Hvers
vegna? Til viðbótar segulmagninu og
þyngdarkraftinum verður hluturinn
fyrir áhrifum ýmiskonar tmflana, sem
leitast við að setja hann úr jafnvægi.
Ef hann hreyfist svo mikið sem um
einn biljónasta úr millimetra úr stað
tekur einhver þessara krafta að verka
sterkar á hann en hinir. Hluturinn
mun annaðhvort detta eða loða við
segulinn og sérhver upphenging
innan sviðs óumbreytanlegs seguls
mun verða óömgg.
í leit að leiðum til þess að forðast
þetta ákváðu vísindamennirnir að
nota andsegulmagnað efni, sem
öfugt við segulmögnuðu efni, sem
laðast að seglinum, hrindist frá
honum. Og hllfar, sem búnar em til
úr andsegulmögnuðu efni, endur-
varpa í óeginlegri merkingu talað,
segulmagnskraftinum. Hin að því er
virðist þyngdarlausa málmskífa
hangir milli disklaga hlífa, sem búnar
em til úr þesskonar efni (pyrolytic
graphite).
Að öllu óbreyttu gæti þessi skífa
hangið þarna til eilífðar. Sérfræðingar
hafa reiknað út, að sé segullinn
nægilega sterkur, gæti þessi aðferð
jafnvel dugað til þess að halda járn-
braut á lofti.
Vísindamennirnir hafa áhuga á
raunhæfari málum, svo sem að smíða
hárnákvæma vog með hjálp þessarar
uppgötvunar, sem gæti vegið hluti
með slíkri nákvæmni að ekki skakkaði
meim en einum miljónasta úr
grammi. Eða að búa til fullkomlega
núningslausar segulmagnslegur. ★