Úrval - 01.02.1979, Blaðsíða 109

Úrval - 01.02.1979, Blaðsíða 109
SPORREKJA NDINN 107 þetta, og við og við lét einhver til leiðast. Úlfur Sem Læðist og Læknadádýrið rákust einu sinni á nýja bjarndýrsslóð. Þá voru þeir 15 ára, ungir stríðsmenn sigraðrar þjóðar, sem höfðu enga bardaga til að sanna hugrekki sitt eða veita möguleika til að vinna sér frama. Af unggæðishætti tóku þeir hverja fáanlega áhættu, og Læknadádýrið krafðist þess að fá að laumast að bjarndýrinu, því hann hafði orðið fyrri til að finna slóðina. Úlfur Sem Læðist varð að láta sér nægja að fylgjast með álengdar. Læknadádýrið hóf leikinn, hreyfðist með iði laufsins, tók stutta smáspretti með úthugsuðum skerfum, eins og hvert annað dýrsem á líf sitt undir því að sjást ekki. Hann stökk frá tré til trés, álútur og hokinn í hnjám, bar hratt yfir. Hann stansaði í hvaða stellingu sem var þegar vindurinn tók sér hlé við að bæra laufin. Bjarndýrið át grunlaust ber af þúfu, Læknadádýrið tók síðasta spölinn með stuttum, hröðum skrefum. Þegar hann var kominn aftan að birninum, sló hann ekki strax. Hugrekkið var dæmt eftir því hve lengi hann dró það, þótt hann ætti það stöðugt á hættu að björninn fengi veður af honum með snöggum fyrirslætti og réðist á hann í návígi. Loks rak hann upp stríðsöskur og rak birninum ærlegan rassskell. Björninn öskraði á móti og snerist til eftirfarar. Læknadádýrið var mikill hlaupari, og hann hljóp hraðar en björninn, og hann var farinn að reka upp hávær sigurhróp, þegar hann hrasaði. Bjarn- dýrið náði honum og drap hann. Ég spurði Úlf Sem Læðist hvort hann hefði nokkurn tíma slegið bjarndýr, og hann kvað svo vera. En ekki síðan þetta gerðist. Sumt, sagði hann, var fyrir unga menn, og það hafði gert hann mjög gamlan að sjá bjarndýrið vinna á vini hans. ÞEGAR ÉG VAR á eilefta ári, voru búðir okkar ,,í bakgarðinum” svo langt undan — þótt aðeins væri um 20 km loftlína — að enginn nema Úlfur Sem Læðist færi svo Iangt sjálf- viljugur, síst þegar dimmt var orðið. Við fórum þangað fyrir nokkra daga í senh, og sögðum foreldrum mínum að við myndum gera vart við okkur heima hjá Rick daglega til að ná í vistir, og heima hjá Rick sögðumst við mundu sækja þær heim til mín. Einu sinni höfðu foreldrar okkar samband sín á milli út af þessu — þegar við vorum degi of seinir að koma til baka — og í mánuð eða svo áttum við ansi erfiða daga. Það var auðvelt að týna tölu á dögunum í skóginum. Það var svo margt sem heillaði, margt sem þurfti að rannsaka og kynnast. Við Rick höfðum heldur betur í nærri tvö ár reynt á þolrif konunnar á bóka- safninu í Beachwood. Þangað héldum við með sýnishorn okkar til að bera þau saman við stóru fræði- bækurnar. Skordýrabækurnar vom sérstaklega góðar, en konunni var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.