Úrval - 01.02.1979, Blaðsíða 92
90
ÚRVAL
stundir, en það tekur einn til tvo
sólarhringa að verða fyllilega samur
aftur. Smáir skammtar geta valdið
skynvillum, skert öryggi hreyfinga,
málleysi, skorti á einbeitingu,
köfnunartilfinningu, vesaldómi og
tilfinningaleysi. Neytandinn getur
brennt sig eða meitt á annan hátt án
þess að finna fyrir því. Áhrifín eru
mjög breytileg, en það er ógerlegt að
vera viss um að taka „réttan”
skammt og njóta góðra áhrifa.
Krakkar hafa drepið eftir mjög litla
neyslu.
Sígengir neytendur (þeir sem taka
lyfíð minnst þrisvar í viku í þrjá
mánuði) verða fyrir minnis- og
máltapi, sem stendur sex mánuði til
ár, verða fyrir óútreiknanlegum
geðsveiflum, þunglyndi, kvíða og fá
ofbeldisköst. Dæmi eru til þess, að
það hafi tekið neytendur fimm ár að
ná sér. Neytendur, sem fá ofbeldis-
áhrif — „barsmíðatilfelli” á
götumáli — halda að þeir séu
ofurmenni og yfírnáttúrlega sterkir.
,,Þegar ég heyri að það hafi þurft sex
menn til að halda einhverjum niðri,
veit ég að þar er PCP,” segir Aronow.
Lyfið afbakar tilfinningu fyrir
hreyflngu og rúmi. Neytendur greina
ekki hvað snýr upp og hvað niður, og
drukknanir eru algengar. I einu
tilfelli tók lögreglan í Kaliforníu
konu fyrir undarlegan akstursmáta.
Hún var látin fara ein í sturtu meðan
gengið var frá skýrslu hennar, á
meðan drukknaði hún í nokkrum
sentimetrum vatns í sturtuskálinni.
Aðrir PCP neytendur hafa gengið
fyrir björg, hoppað út úr háum
húsum eða orðið fyrir bíl af því þeir
gengu á miðri akbrautinni.
Vitaskuid fá ekki allir neytendur
krampa eða verða vitlausir og reyna
að drepa. Sumir hafa tekið PCP
reglulega árum saman án nokkurra
slæmra áhrifa, en fá svo allt í einu
,,slæma ferð”, aðrir fá góða ,,ferð”
einn daginn en vonda þann næsta.
Mest hætta er búin litlum börnum,
sem yfirleitt hafa ekki mikið
mótstöðuafl. Aronow hefur með-
höndlað 38 börn undir átta ára aldri
— fimm af þeim innan við ársgömul.
Öll lifðu þau af, en sum vom mjög
hætt komin.
Veldur langvarandi neysla heila-
skemmdum, eins og flestir aðrir
vímugjafar? Um það eru læknar ekki
sammála. Lyfið hefur ekki verið í
nógu almennri notkun nógu lengi,
né nógu mikið rannsakað, til þess að
dæma um það.
Mesti vandinn er sá, hve auðvelt er
að afla þess. ,,Sá, sem getur fylgt
uppskrift í matreiðslubók, getur búið
til PCP,” segir Robert E. Willette,
yfirmaður tæknirannsóknadeildar
NIDA. Efnin í það eru auðfengin hjá
flestum meiri háttar efna-
framleiðendum. Þess vegna hagnast
framleiðendur og seljendur mjög vel,
þótt verðinu sé stillt í hóf. Fæstir
táningar hafa efni á að kaupa kókaín,
en sígaretta („nagli”) með maríjúana
og PCP er fáanlegur fyrir allt niður í 2