Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 34
nÞú átt að hlusta þegar ég tala við þig, strákur!" sagði leikkonan
gamla, nú í hlutverki móðurinnar í Sonur minn var
vandræðaunglingur. Hún reif tölvuskermana úr sambandi og snéri
sér að Gússa Almari: (iSkilurðu ekki strákur að það verður aldrei
neitt úr þér ef þú liggur í bókum og bíómyndum allt þitt líf; ef
þú hlekkjar þig við annarra manna reynslu og þekkingu? Þú verður
að rífa þig upp úr þessu sleni, taka eftir veruleikanum í kringum
þig, fara að umgangast fólk, ferðast og skoða heiminn. Upplifa
eitthvað! Það er höfuðmálið í þessu lífi!"
Gússi Almar horfði tómlega á Súsönnu og leysti í huganum
lífsgátuna útfrá allri þeirri þekkingu er hann hafði öðlast hingað
til l(Hmmm, ég veit það ekki," sagði hann.
Gamla konan hristi höfuðið. l(Þú þarft að minnsta kosti aldrei
að efast um hvort þú ert eða ert ekki," sagði hún og skjögraði út
muldrandi klisjukennda lífsspeki og heilræði.
Tilfinningin
Eftir að Súsanna var farin hugsaði Gússi drykklanga stund.
Svo datt honum í hug að stinga tölvunum aftur í samband til
þess að hann gæti haldið áfram að læra. En þegar Gússi ætlaði
að teygja sig að innstungunni uppgötvaði hann að hann varlamaður.
Þá hugsaði Gússi um það að vera lamaður. Greinilega var æskilegra
og betra að vera ekki lamaður; að geta stungið tölvunum í samband.
Gússi blaðaði í gegnum risavaxna gagnabanka hugans í leit að
aðferð semkenndi honum að stinga tölvunum í samband. Enhversu
oft sem hann leitaði, hversu vel sem hann leitaði fann Gússi alltaf
sama svarið: brúkaðu hendurnar. Og auðvitað gat Gússi ekki brúkað
hendurnar vegna þess að hann var lamaður.
Áður en hann vissi af því, varð Gússi rnjög óánægður með að
geta ekki stungið tölvunum í samband; yfir því að geta hvorki
hreyft legg né lið. Hreyfing var jú eiginleiki gefinn nær öllum
lifandi verum. Af hverju ekki honurn? Gússi hnykklaði brúnir og
gretti sig svo að andlitið afmyndaðist. Öll þekking í heiminum
var lítils verð ef hún gerði honurn ekki einu sinni kleift að setja
kló í samband.
Óánægjan óx og eftir því sem Gússi velti málinu betur fyrir
32