Goðasteinn - 01.09.2004, Blaðsíða 182
Látnir 2003
Goðasteinn 2004
varð eins og hans annað heimili, þar sem fjölskyldan þar varð einnig fjölskyldan
hans með gagnkvæmri hlýju, virðingu og trúnaði.
Þegar foreldrar hans létust, móðir hans 1953 og faðir hans 1958, hélt Jóhann
áfram búskap með kýrnar til 1965 og með kindurnar til 1967, en eftir það sótti
hann vinnu vfðsvegar, vann í frystihúsi Sláturfélags Suðurlands og vann á vegum
Þjóðminjasafnsins við endurgerð og viðhald gamalla húsa og við hleðslu torf-
veggja. Þá vann hann við endurhleðslu Skeiðarétta og kynntist þar fólki, sem
hann sótti áfram kunningsskap og vináttu til. Það var ætíð síðan honum tilhlökk-
unarefni að fara í réttir þangað á haustin þegar þar var réttað.
Jóhann varð lungnaveikur á efri árum. Háðu þau veikindi honum Iengi uns
hann varð að lifa með súrefniskúti sér nærri. Fór hann um tíma að Vífilsstöðum
að sækja sér lækningu og árið 2000 flutti hann á dvalarheimilið Kirkjuhvol.
Hann andaðist eftir stutta sjúkralegu á Borgarspítalanum í Reykjavík 6. apríl.
Útför hans fór fram frá Krosskirkju 12. 4. 2003.
Sr. Halldór Gunnarsson
/
Jón Arsælsson í Bakkakoti
Jón var fæddur þann 16. febrúar í Eystri Tungu í
Vestur Landeyjum, sonur þeirra ágætu hjóna Ragn-
heiðar Guðnadóttur og Arsæls Jónssonar, sem þá
bjuggu þar. Jón var sjötti í röð alls átta barna þeirra
hjóna. Tvíburar létust því miður nýfæddir en hin
börnin uxu úr grasi á góðu heimili þar sem dugnaður
og víðsýni voru í hávegum höfð. Ársæll, faðir Jóns,
var frá Álfhólum í Landeyjum, hann var organisti og
bóndi og var maður framfara og bjartsýni á mælik-
varða síns tíma. Ragnheiður, móðir Jóns, var frá Eystri-Tungu. Hún var ákaflega
mikil fjölskyldumanneskja til hinsta dags. Henni var lýst sem góðlyndri, gestris-
inni og jákvæðri konu.
Systkini Jóns sem á lífi eru eru: Guðríður Bjarnheiður, húsfreyja á Skúms-
stöðum. Sigríður, húsfreyja í Reykjavík og Bjarni Sigurður Ágúst bóndi í Bakka-
koti. Látnir eru Guðni og Ingi Björgvin, fyrir aldur fram.
Árið 1946 markar tímamót í sögu fjölskyldunnar. Það ár er flutt að Bakkakoti
sem tilheyrir Rangárvöllum, þó nær sé Landeyjum landfræðilega. Þar hefst saga
uppbyggingar, framræslu og framfara sem óslitið síðan hefur verið skrifuð. Kafli
eftir kafla er lagður að baki í þágu framfaranna. Þeir bræður, Jón og Bjarni, fjöl-
skyldan öll og nú síðar afkomendur með sínum fjölskyldum hafa ræktað og byggt
óslitið síðan. Nú er Bakkakot löngu orðið að fyrirmyndarbýli og fer orðstír af
framkvæmdasemi og stórhug þeirra sem þar búa og var Jón til síðasta dags þar
-180-