Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 12
10
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
við lóðabelg og komst þannig til
lands. Faðir hans, Pétur, fórst í
þessu slysi ásamt tveimur öðrum
skipverjum. Fierdís starfaði í
verslun þeirra hjóna í mörg ár en
vann áður í fiskverkuninni Hróa
hf. Hún hefur staðið við hlið
Vigfúsar í blíðu og stríðu alla tíð.
Vigfús og Herdís eignuðust sex
börn og þau eru í aldursröð þessi:
Hervin f. 1947, Kristín f. 1949,
Vigfús f. 1950, Gunnhildur Linda
f. 1954 og búa þau öll í Ólafsvík.
Svo er Óðinn Pétur fæddur árið
1953 og býr í Mosfellsbæ og
Hlynur fæddur 1963 en hann býr
í Reykjavík. Alls eiga Herdís og
Vigfús 15 barnabörn og 8 barna-
barnabörn. Af þessu sést að mikið
hefur verið að gera hjá húsmóður-
inni með þennan stóra barnahóp.
Auk þess var Vigfús með skrif-
stofuaðstöðuna á heimilinu
þannig að mikið erill hefur verið í
Bæjartúninu við að taka á móti
fólíti.
Eggert Guömundsson íyrir framan búðarhillurnar í versluninni Vík en hann starfaði þar lengi.
Vigfús hefur haft góða heilsu
alla tíð og nánast aldrei orðið mis-
dægurt en eins og áður sagði verð-
ur hann 80 ára á þessu ári. Ekki
getur nokkur maður séð það á
honum því hann er ennþá að
smíða þó hann hafi minnkað það
talsvert. Menn sem kynnst hafa
Vigfúsi eru allir á einu máli um að
hann sé mjög hreinskiptinn og
lætur sínar skoðanir óhikað í ljós.
Hann hefur líka þá hæfileika að
sjá spaugilegu hliðina á hverju
máli. Þó að þessu spjalli við Vig-
fús sé lokið er margt fleira í lífi
hans og starfi sem hefði mátt
koma að en hann er líka hógvær
og vill ekki vera að flíka öllu. Sjó-
mannadagsblaðið vonar að lesend-
ur séu einhverju nær um sögu og
uppbyggingu Ólafsvíkur eftir
þetta viðtal. Þó mikið reyni á sjó-
mennina þá þarf líka að vera fólk
eins og Vigfús í landi til að allt
komi heim og saman. Blaðamað-
ur vill að lokum þakka Vigfúsi og
Herdísi fyrir skemmtilegar stundir
við þetta viðtal og óskar þeim alls
hins besta.
Skálholt 11 sem Vigfiis teiknaði og smíðaði 1954.
Sendum sjómönnum okkar bestu kveðjur
á sjómannadaginn !
STEINPRLNT
Sandholt 22, Ólafsvík
S: 436 1617 ■ Fax: 436 1610