Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 14
12
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Níu ára sjómaður
I riti sínu Skútuöldinni segir Gils
Guðmundsson svo frá: ,,Svo
lengi sem land þetta hefur byggt
verið, hafa öll rök hnigið til þess,
að Islendingar stunduðu far-
mennsku og fiskveiðar. Þeir eru
afkomendur víkinga, sem sigldu
skipum sínum vítt um höf í leit
fjár og frægðar. Utþráin var
þeim í blóð borin og teyguð með
móðurmjólkinni. Æskumaður-
inn ólst upp við úthafið.
Snemma kynntist hann svip þess
í blíðu og stríðu. Hvort sem þar
var logn eða stormur. Báðir þess-
ir þættir veðurfarsins freistuðu
oft unga drengi sem vildu sýna
hvað í þeim bjó.“ Þá ritar Gils
ennfremur: „Sé nokkurt Iand í
veröldinni til þess skapað, að
þaðan séu stundaðar fiskveiðar,
þá er það ísland.“ Og Gils held-
ur áfram: „Vestfirðingar og
Breiðfirðingar hafa löngum þótt
sjómenn góðir. Þar hefur það
verið siður, að hver sá snáði, sem
einhver mannræna var í, vandist
sjóförum og harðræðum frá
blautu barnsbeini. Margir
drengir hlökkuðu til þess mest af
öllu að komast á sjóinn og fá að
spreyta sig við hákarl, þorsk og
steinbít. Og þó að gamanið vildi
stundum grána, þegar þreyta eða
sjóveiki sótti pilta heim, þótti
meira en meðalskömm að
guggna.“ Svo mörg voru þau
orð, en hér á eftir segir einn níu
ára gutti frá fyrstu sjóferð sinni
eins og hann man hana best.
Bjarni Breiðfjörð Sveinbjörns-
son, sjómaður í Stykkishólmi og
síðast hafnarvörður, rifjar hér
upp er hann fór fyrst til sjós er
hann var aðeins níu ára gamall.
Bjarni er fæddur í Hólminum,
Gunnar Hjartarson skráði
Bjarni ásamt konu sinni, Önnu Kristjánsdóttur.
20. mars 1916. Það má geta þess
hér að svo skemmtilega vill til að
hann er fæddur í húsi því sem
stóð við Skólastíg er Sigurður
Marinó Jóhannsson og Hansína
Jóhannesdóttir áttu, þar sem nú
Bjarni Sveinbjörnsson um fermingu.
Mynd: PSJ
stendur Dvalarheimilið og Bjarni
býr nú ásamt konu sinni Önnu
Kristjánsdóttir. Bjarni er Snæ-
fellingur og Breiðfirðingur að ætt
og hefur alltaf búið í Stykkis-
hólmi. Foreldrar Bjarna voru
þau Albína Helga Guðmunds-
dóttir frá Brennu á Hellissandi
og Sveinbjörn Bjarnason, sjó-
maður frá Efri-Langey. Bjarni á
eina alsystur á lífi, Rakel sem býr
í Reykjavík og eina hálfsystur,
Guðrúnu sem býr í Ólafsvík. Að
auki átti hann tvö alsystkini, þau
Ragnar Breiðfjörð og Ósk sem
bæði eru Iátin fyrir nokkrum
árum.
Fyrsta sjóferðin
Bjarni segir svo frá: „Vorið 1925
er ég var nýlega orðinn níu ára
gamall þá lofaði faðir minn mér
því að hann skyldi leyfa mér að
koma með sér til sjós á sumarver-
tíð vestur á Firði. Þær munu hafa
Os/tum s/ómömuitn oy^ö/s/ttj/t/atn /tttitHHt tí//tatnituf/tt ntetf t/ttaitut /
BCRGARPLASThf
Sefgarðar 1-3 • 170 Seltjarnarnes • Island
Tel.: +354-561 2211 • Fax: +3S4-561 4185
W/MfK
Kælivélar ehf.
Kœlivélaverkstœði
Smiðjuvegi 38, Kópavogi
Sítni: 587 4530 ■ GSM: 893 1906