Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 30
28
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Frækileg björgun
í sjómannablaði er ástæða til að
minnast þess þegar sjómönnum
er bjargað úr greipum hafsins en
oft fer líka illa. I þessu viðtali
segir Kristinn Ó. Jónsson sem
var skiptstjóri á Þórsnesinu SH
108 frá því er hann bjargaði
stýrimanni sínum, Bjarna Svein-
björnssyni, en hann fór útbyrðis
þegar þeir voru að leggja þorska-
net á Breiðafirði þann 25. mars
1968 eða fyrir 36 árum.
„Við vorum úti í Norðurkanti,"
segir Kiddó eins og hann er alltaf
kallaður, ,,og vorum að leggja
trossu sem við vorum nýbúnir að
draga. Það var vestan sjór og élja-
gangur þegar þetta skeði og netin
lögðust út á hléborða. Bjarni stóð
við rennuna aftur í gangi á lögn-
inni og passaði uppá að greiða úr
Bjarni Sveinbjörnsson sem bjargað var úr
sjónum.
n
Kristinn Ó. Jónsson með bikarinn sem hann
fékk afhentan l\ rir björgunaraífekið.
flækjum eins og stundum mynd-
aðist en þá voru mikið notaðar
kúlur á efri teininn og steinar
voru á þeim neðri. Allt í einu
kemur upp flækja og Bjarni ætlar
að bregða hnífnum og greiða úr
henni. Skyndilega kemur bragð
utan um hægri hendi Bjarna og
það herðist að og hann dregst að
rennunni. Strákarnir kalla og
spyrja hvað sé að gerast og ég slæ
af og bakka,“ segir Kiddó. Það
var ekki hægt um vik að bakka en
í Þórsnesinu sem var 69 lesta tré-
skip, voru tvær vélar og þar af
leiðandi tvær skrúfur og hætta var
á að netin færu í skrúfuna þegar
bakkað var. „Það er ekki verið að
orðlengja það að Bjarni fer út-
byrðis,“ heldur Kiddó áfram.
„Hann fer með trossunni aftur
með skipinu og fer fljótlega í kaf.
Eftir stutta stund skýtur honum
upp og við sjáum að hann er laus
úr trossunni og hann er talsvert
frá bátnum“. Þar sem áhöfnin
vissi að Bjarni væri ósyndur varð
einhver að fara á eftir honum og
sækja hann. Þeir vissu að Kiddó
var mjög vel syndur og kölluðu á
hann að stinga sér. „Eg hugsaði
mig ekki lengi um og stakk mér í
sjóinn og synti að honum. Bjarni
hafði þá sokkið amk. tvisvar sinn-
um en loftið í stakknum sem
hann var í hélt honum mikið
uppi. Hann var þó orðinn mikið
dasaður þegar ég kom að honum
en mér gekk vel að komast með
hann að bátnum,“ segir Kiddó.
Vel gekk að koma Bjarna um borð
enda grannvaxinn maður og svo
náðist skipstjórinn inn fyrir. „Eg
man að það fyrsta sem Bjarni bað
um þegar bráði af honum var
kaffi og sígaretta og þá vissi ég að-
það var allt í lagi með hann,“ segir
Kiddó en honum sjálfum varð
ekki meint af.
Keyrt var undir eins til Stykkis-
hólms eftir þennan atburð og var
Bjarni lagður inn á Sjúkrahúsið og
lá þar í nokkra daga en hann hafði
marist illa á hendi. Fyrir þessa
frækilegu björgun skipsfélaga síns
var Kiddó afhentur afreksbikar á
sjómannadaginn í Stykkishólmi
1968 frá Félagi botnvörpuskipa-
eigenda.
PSJ.
SettdccvK í Sctee^eUd^ze oy £fötáÁtýtclu<*t fiecnna,
&eiitaó4Áin í titefaci
Söíusfjáíi OKöíaM.
v/ Ólafsbraut ■ sími 436 1012