Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 57
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
55
Sjóveikin gerði mér iífið leitt
Örn Arnarsson er ungur skip-
stjóri á Hellissandi. Hann á fyr-
irtækið Hjallasand ehf. sem er
eigandi að bát sem heitir Bára
SH. Örn er meira en sjómaður
því hann er einn höfuðpaurinn í
vinsælli danshljómsveit á Hell-
issandi sem heitir því skemmti-
lega nafni Bít. Örn er giftur
Guðríði Sirrý Gunnarsdóttur en
hán starfar sem þjónustufulltrúi
hjá Landsbanka Islands á Hell-
issandi og eiga þau tvö börn,
Gunnar Örn sem er 19 ára og
Öldu Dís sem er 11 ára. Foreldr-
ar Arnar heita Örn Hjörleifsson
og Aldís Reynisdóttir en hún er
látin. Örn á þrjú systkini, Ásdísi
búsetta í Kópavogi, Bjarna bú-
settan í Reykjavík og Sigrúnu
Hjördísi búsetta í Bessastaða-
hreppi. Þar sem nánast allt
byggist á útgerð í Snæfellsbæ er
ekki úr vegi að spyrja Örn um
hans sjómennsku og útgerðar-
sögu.
„Ég hef alla tíð haft mikinn
áhuga á öllum störfum tengdum
sjónum. Ég var ungur að árum
þegar ég fór fyrsta róðurinn. Þá
var róið frá Hellnum á nýlegri 3
tonna trillu sem pabbi hafði látið
smíða fyrir sig. Þetta var svo sem
engin frægðarför því fljótlega fór
að bera á lasleika hjá unga háset-
anum og hef ég sjálfsagt ekki orð-
ið til mikils gagns þann daginn.
Atti bölvuð sjóveikin eftir að gera
mér lífið leitt næstu árin. Arið
1978 fluttum við til Hellissands
en pabbi hafði verið ráðinn sem
skipstjóri á Tjaldi SH 270 sem
Kristján Guðmunsson gerði út.
Fyrsta plássið sem ég fékk var á
Tjaldinum. Það var vorið sem ég
fermdist. Við byrjuðum á netum,
það var sáratregt í netin svo að
það var skipt yfir á handfæri og
saltað um borð. Þetta var
skemmtilegt nema að því leyti ég
þurfti að fara til prestsins einu
Formennskan byrjar
Ég fór í Stýrimannaskólann 1988
í Reykjavík og kláraði þar fyrsta
bekkinn. Þá voru líka í skólarium
Bjarni bróðir, Friðþjófur Sævars-
son, Óli Olsen og Tryggvi Þráins-
son. Þeir voru allir í öðrum bekk.
Þetta var ágætis tími. Þegar maður
var búinn í skólanum á daginn var
farið niður á höfn að skoða bát-
ana. Það var í einni slíkri ferð að
Fjölskyldan samankomin í stofunni. Gunnar Örn, Sirrý, Örn og Alda Dís.
sinni í viku. Þá var brugðið á það
ráð að húkka far með einhverri
trillu sem var á leið í land. Næstu
tvö vorin var ég á sjó, fyrst á
Tjaldinum með pabba svo á
Hamri SH 224. Árið 1983 byrj-
aði ég á sjó með föður mínum á
12 tonna bát sem hann hafði fest
kaup á. Fékk sá bátur nafnið Bára
SH 27.
ég sá að það var kominn bátur
sem ég kannaðist ekki við. Mér
leist strax vel á fleytuna og elcki
minnkaði áhuginn þegar ég frétti
að hann væri til sölu. Eftir að
hafa rætt við foreldra mína og
bróður var boitinn komin af stað.
Gengið var frá kaupum á fjórðu
Bárunni í febrúar árið 1989.
Þetta var 37 tonna eikarbátur
Verslun - veitingar - bensín - olíuvörur
Smur- dekkja- og vélaviðgerðir
Opið frá 900-2300 - Veriðvelkomin