Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 65
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
63
ar æfingar sem við erum að fást
við í tímum en þó er bókinn
veigamikill þáttur í náminu. Það
má segja að það hafi nú verið
mjög skemmtilegt yfir höfuð að
fást við þetta nám. Þó er margt í
þessu námi sem er orðið frekar
þreytt að mínu mati, þ.e. tækja-
búnaðurinn og margt sem nýtist
manni aldrei.
Við vorum þrír að vestan sem
byrjuðum á sama tíma í vélskól-
anum, ásamt mér voru það Sævar
Freyr Rúnarsson og Gunnar Helgi
Baldursson en fyrir voru þeir
Mímir Brynjarsson og Atli Már
Gunnars í skólanum. Þeir ætl-
uðu ekki að taka meira en annað
stig sem þeir og gerðu. En ég
skráði mig strax á 4. stig. Það sem
var sérstaklega gott var að manni
var svo vel tekið og það var aldrei
skortur á félögum. Þó að strák-
arnir að vestan hafi verið þarna þá
héldum við ekki bara hópinn
heldur var þetta bara einn stór
hópur af félögum sem fylgdust
með hverjum öðrum og hjálpuð-
ust að.
Góðir atvinnumöguleikar
Miklir möguleikar eru fyrir hendi
fyrir þá sem hafa farið í þetta
nám. Þeir sem hafa klárað 4. stig
geta nánast valið úr verkefnum
því það virðist vera skortur t.d á
vélstjórum. Góðir möguleikar eru
á að komast í virkjanir. Það eru
líka vélstjórar hjá mörgum stór-
fyrirtækjum eins og frystihúsum,
orkufyrirtækjum, matvælafyrir-
tækjum og hjá fyrirtækjum í mat-
vælaiðnaðinum. Þannig að það
má segja að tækifærin séu næg og
það þarf bara að nýta sér þau því
að þeir sem hafa réttindi eða
menntun eru vel mótteknir af
samfélaginu og það virðist vera
þannig að allsstaðar þurfi mennt-
un til að komast í einhverjar
stjórnunarstöður. Einnig vantar
mig ekki nema 11 einingar til að
ljúka rafvirkjanum og get ég
klárað það á einni önn í kvöld-
skóla sem er mjög gott. Ég kemst
beint inn í tækniskólann án þess
að fara í inntaksnám einnig í
tæknideildir í Háskólanum og
þeir sem hafa lokið vélfræðinámi
og vélfræði í Háskólanum eru
mjög eftirsóttir í vinnu vegna
mikilla réttinda og fyrir að hafa
komist þetta langt í námi. Þetta
er gott nám fyrir þá sem hafa
áhuga. Eg vil hvetja alla sem hafa
áhuga á náminu að kynna sér það
á www.velskoli.is. Þetta er ein-
stakt nám sem er bæði fyrir konur
og karla því að með mér í skólan-
um var stelpa að norðan og hún
var síður en svo einhver eftirbátur
strákanna. Munið svo að mennt-
un er máttur í þessu samfélagi og
hvet ég alla til þess að læra. Nám
er þrotlaus vinna sem skilar sér
síðar. Það er pottþétt og það er
enginn of gamall til þess að hefja
nám. Ég segi bara stefnið hiklaust
að vélstjórnarnámi. Áfram skóli!
Ævar Rafn Þrastarsso