Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 80
78
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Sævar Snæbjörnsson og Hulda Gunnarsdóttir.
slapp en Mýrarhús brann til
kaldra kola. Hundurinn sem
Ragnar átti brann inni.
Hans Bjarni Árnason og Þorbjörg Þórkatla
Arnadóttir.
Á undan Sigrúnu og Steinþóri
áttu þau Hrönn Bergþórsdóttir og
Björgvin Ármannsson heima í
Kaldalæk en þau búa í Namibíu.
Árið 1999 skrifuðu þau skemmti-
legt bréf sem birtist í Sjómanna-
dagsblaðinu. Þá voru þau Tómas
Sigurðsson og Birna
Pétursdóttir í hús-
inu og fluttu þau
inn í mai 1967 og
voru til október
1970. í búskapartíð
þeirra átti fyrrnefnd-
ur Ragnar fjölmarga
ketti sem ekki voru
allir ánægðir með.
Tómas kom að máli
við Ragnar og
spurði hvort hann
væri ekki tilbúinn til
að fækka þeim eitt-
hvað og tók Ragn-
ar fálega í það í fyrstu. Þó kom að
því að Ragnar tók sig til og fækk-
aði köttunum og Tómas hjálpaði
honum við verkið. Ragnar hélt
nokkrum köttum eftir og þar á
meðal var einn hvítur úrvalskött-
ur. Þessi köttur var svo fylgisspak-
ur við Ragnar að hann fylgdi hon-
um oft til skips en Ragnar átti fley
sem hét Sæmundur.
Á undan Birnu og Tómasi voru
Þorgrímur Benjamínsson og
Kristín Kjartansdóttir í Kaldalæk.
Þorgrímur og Kristín fluttu þang-
að og byrjuðu sinn búskap í maí
1966 og áttu þar heima til janúar
1967. Þau voru þá 17 og 18 ára
gömul og fyrsta barn þeirra, Lauf-
ey, var 6 mánaða gömul. I
skemmtilegri samantekt sem
Kristín tók kemur
fram að húsið var
kolakynt og leiguna
greiddu þau með
því að setja í það ol-
íufyringu og var ket-
illinn undir eldhús-
gólfinu í litlum
kjallara sem í húsinu
er. Að sögn Kristín-
ar fannst henni sem
hún væri komin í
litla höll og þótti
ánægjulegt að vera
út af fyrir sig. Mamma hennar
gaf þeim nýtt eldhúsborð og stóla
sem þau hjón eiga enn þá. Þor-
grímur keypti svefnsófa sem þá
var í tísku og hún átti kommóðu,
þrjár hansahillur og tvo hæginda-
stóla og þetta var allt. Stofan var
svefnherbergi á nóttunni og
breyttist svo í stofu á daginn. Þau
fengu að þvo þvott hjá foreldrum
Þorgríms og þar fóru þau líka í
bað en foreldrar hans bjuggu þar
rétt hjá en ekkert baðherbergi var
á Kaldalæk. „Þetta gekk allt sam-
an mjög vel og við vorum ánægð
með það sem við höfðum og við
Ingvi Kristjánsson ólst upp í Kaldalæk.
vorum líka svo ástfangin,“ segir
Kristín er hún rifjar upp þessa
tíma..
Á undan Kristínu og Þorgrími
bjuggu í Kaldalæk Ulfar heitinn
Kristjónsson og Alda Jóhannes-
dóttir og byrjuðu þau sinn búskap
þar. Þá var húsið kynt með Sólo
eldavél sem var í eldhúsinu og svo
var einn ofn í stofunni. í Mýrar-
húsi bjuggu þá Fanney Guð-
mundsdóttir og Þórarinn Guð-
mundsson en þau voru foreldrar
Kristínar (Stínu Þór) sem við
Lilja Ágústsdóttir og Edilon Kristjánsson.
Sjömenn!
TiC hamingju með daginn
Félag skipstjórnarmanna