Bókasafnið - mar. 2024, Page 4

Bókasafnið - mar. 2024, Page 4
4 Telma Sigfúsdóttir Inngangur Notendur Leitir.is1 telja sig örugga um að finna allt efni eftir höfund þegar þeir leita að nafni á Leitir.is. Staðreyndin er hins vegar sú að þeir fá ekki tæmandi niðurstöður þegar þeir leita að nafnmynd einstaklings í Leitir.is, heldur einungis niðurstöður úr sumum gagnasöfnum og ekki öllum. Í tengslum við MA­nám mitt við Háskóla Íslands og starf mitt á Landsbóka­ safni Íslands – Háskólabókasafni gerði ég meistararannsókn í upplýsingafræði á vensluðum gögnum og nafnmyndastjórnun. Markmið rannsóknarinnar var að finna mögulegar leiðir til þess að opna gagnasöfnin sem eru leitarbær í Leitir.is og tengja þau saman. Með því að tengja saman gagnasöfnin er hægt að safna saman öllum nafnmyndum einstaklings og gera notendum kleift að finna allt efni eftir sama aðila, óháð því hvaða nafnmynd einstaklingsins er notuð í leitinni. Tilgangurinn er að stuðla að betra aðgengi notenda að upplýsingum. Rannsóknin Rannsóknin, sem var eigindleg, beindist að gagnasöfnum Landsbókasafns Íslands – Háskóla­ bókasafns og aðgengi að þeim í leitargáttunum Lbs.leitir.is og Leitir.is. Hugmyndin með Leitir.is er að safna saman efni úr mismunandi gagnasöfnum og gera það leitarbært á einum stað, til hægðarauka fyrir notendur. Gögnin sem Leitir.is sækir í eru úr ólíkum gagna söfnum og á mismunandi gagnasniði, s.s. MARC (MAchine­Readable Cataloging) og DC (Dublin Core). Nafnmyndaskrárnar í gagnasöfnunum eru einnig ólíkar og í þeim er notast er við mismunandi auðkenni, s.s. URI (Uniform Resource Identifier), ORCID (Open Researcher and Contributor ID), ISNI (The International Standard Name Identifier) og VIAF (Virtual International Authority File). Nafnmyndaskrárnar tengjast ekki að neinu leyti. Þegar leitað er eftir höfundi eða nafnmynd einstaklings í Leitir.is er það komið undir skrá ning­ unni í hverju gagnasafni fyrir sig hvaða heimtur notandinn fær. Leit með ákveð inni nafn mynd einstaklings skilar niðurstöðum úr ákveðnum gagnasöfnum en undan skilur niðurstöður úr öðrum gagnasöfnum. Notandinn hefur hvorki hugmynd um hvernig kerfið er sett upp né hugmyndaflug til þess að leita að mörgum mismunandi nafnmyndum einstaklings. Sex sérfræðingar úr bókasafnaheiminum og hugbúnaðargeiranum, bæði hérlendis og erlendis, voru valdir til að taka þátt í rannsókninni. Gagnasöfnunin gekk út á að varpa ljósi á reynslu þeirra af tæknilegum leiðum sem hægt er að fara til þess að tengja saman gagna söfn sem 1 Leitir.is er byggt á hugbúnaðinum Primo VE frá Ex Libris. Leitir.is er leitargátt fyrir alla en hver safnakjarni og hvert safn í bókasafnasamlaginu á Íslandi hefur sína eigin notendasýn (e. view). Leit í Lbs.leitir.is á háskólanetinu veitir notendum aðgang að efni Landsbókasafns, efni í landsaðgangi og séráskriftum Háskóla Íslands. Til einföldunar verður rithátturinn Leitir.is notaður hér eftir um bæði Lbs.leitir.is og Leitir.is, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Afhverju finn ég ekki allt efni eftir höfundinn? Rannsókn á vensluðum gögnum og nafnmyndastjórnun Höfundur: Telma Sigfúsdóttir

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.