Bókasafnið - mar. 2024, Side 8

Bókasafnið - mar. 2024, Side 8
8 Telma Sigfúsdóttir Nafnmyndin í Opnum vísindum er „Benediktsson, Jon Atli“ en þegar leitað er í sama leitar­ prófíl með leitarstrengnum „Benediktsson, J. A.“ finnst þessi tiltekna færsla ekki eins og mynd 2 sýnir. Leitarniðurstaðan er í stafrófsröð og þar sést að greinin „Remote Sensing Image Classification Using Attribute Filters Defined over the Tree of Shapes“ kemur ekki fram í niðurstöðulista. Hvað getum við gert? Þrátt fyrir að Leitir.is sæki gögn úr mismunandi gagnagrunnum tengjast gögnin ekki saman í leitar niðurstöðum. Á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni er einnig boðið upp á leit í hverjum gagnagrunni fyrir sig, eins og Skemman.is, Opinvisindi.is og Iris.is. En hugmyndin með Leitir.is er að safna saman mismunandi gagnasöfnum í eina leitargátt til hægðarauka fyrir notendur svo þeir þurfi ekki að leita í mörgum kerfum og leitarvélum. Tilgangurinn með rannsókninni er að nýta hana til að leysa vandann við lélegar leitar heimtur þegar leitað er að nöfnum einstaklinga í Leitir.is. Rannsóknin sýnir að margar leiðir eru færar til að tengja gögnin saman. Um leið og ákveðið hefur verið að fara af stað með slíka vinnu þarf að byrja á greiningarvinnu til að ákveða hvaða leið er ákjósanlegust fyrir okkur. Það er ljóst að hvaða leið sem verður fyrir valinu krefst hún mikillar tæknikunnáttu og verður kostnaðarsöm og tímafrek. Það fyrsta sem við þurfum að gera er að opna gögnin og koma á sameiginlegum auðkennum í öllum gagnagrunnunum til að eiga möguleika á að vensla þau saman. Nafnmyndafærslur þurfa að innihalda einkvæm auðkenni til þess að hægt sé að tengja saman tvær eða fleiri mismunandi nafnmyndir sama einstaklings og koma í veg fyrir að tveir einstaklingar með sama eða svipað nafn fái eina og sömu nafnmyndafærsluna. Mynd 2: seinni Leitarniðurstaða úr Lbs.Leitir.is. Leitarstrengur: benediktsson, J. a.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.