Bókasafnið - mar. 2024, Page 26
26 Sif Sigurðardóttir
Það er ekki bara safnkennsla sem fer fram á bókasafninu heldur er líka mikið af námsaðstoð
í boði á safninu. Við erum með ritver þar sem starfsmaður bókasafnsins aðstoðar við
ritgerðaskrif og heimildaleitir. Námsver skólans er staðsett á safninu og síðustu annir hefur
færst í aukana að stoðtímar og jafningjafræðsla í ýmsum fögum fari fram á bókasafninu.
Á framtíðarbókasafninu sjáum við fyrir okkur að þetta verði með svipuðu sniði, nema aðstaðan
til kennslu verði betri. Við höldum áfram að flétta bókasafnsþjónustuna inn í kennslu við
skólann og að bjóða fram aðstöðu safnsins til kennslu og námsaðstoðar. Einnig munum við
vinna að því að kennsla okkar í upplýsingalæsi verði fastur liður í fleiri fögum enda mun
þörfin fyrir slíka þekkingu halda áfram að aukast.
Nýjar áskoranir og ný sóknarfæri
Um þessar mundir fer mikið fyrir umræðu um
gervigreindarþjónustuna ChatGPT og ás koranir
sem fylgja þeirri tækni í skólastarfi. Þetta á sér
sta klega við þegar kemur að upp lýsingalæsi þar
sem uppruni upplýsinganna sem gervigreindin
notar er óþekktur og erfitt fyrir notendur að vita
hvaða fullyrðingar eiga við rök að styðjast. Gervi
greindarforrit eins og ChatGPT eru til ýmissa hluta
nytsamleg, en þegar kemur að áreiðanleika upp
lýsinga er enn langt í land og forritið er gjarnt á að
skálda í eyðurnar þegar það hefur ekki nægilegar
upplýsingar. En tækni af þessu tagi er komin til að
vera og skólar þurfa að bregðast við. Nemendur
eru farnir að nota ChatGPT og í stað þess að banna
þeim að nota þetta verkfæri þarf að kenna þeim að
nota það. Þau þurfa kennslu í því hvernig þessi nýja
tækni virkar, hvað hún getur gert og hvað hún getur ekki gert. Í þeim tilgangi eru kennarar
til dæmis farnir að leggja verkefni fyrir nemendur þar sem þeir nota ChatGPT til að svara
spurningum en eiga svo sjálf að fara yfir svörin, vega og meta hvort þau séu góð og rökstyðja
mat sitt.
Í námsmati af þessu tagi er mikið sóknarfæri fyrir bókasafnið því upplýsingalæsi er jú okkar
fag og þarna er tilvalið að flétta inn kennslu bókasafnsins í upplýsingalæsi. Einnig gæti
bókasafnið boðið upp á vinnustofur fyrir kennara þar sem farið er yfir notkun á nýrri tækni
eins og ChatGPT með upplýsingalæsi og virðingu fyrir heimildum að leiðarljósi. Hlutverk
bókasafnsins í stuðningi við nýjar leiðir til námsmats getur líka falist í kennslu á nýjar
miðlunarleiðir. Þær verða sífellt mikilvægari í námsmati eftir því sem ný tækni dregur úr
vægi hefðbundinna skriflegra verkefnaskila.
Mynd 4: aðstoð á bókasafninu