Bókasafnið - mar. 2024, Side 31
Bókasafnið 44. árg – 2024 31
Inngangur
Fyrir nokkru sá ég fyndið myndband á Youtube. Þar sést barn spyrja tækið Alexu hvort
hreindýr geti flogið. Alexa svarar sannleikanum samkvæmt og þar með dregur barnið þá
ályktun að jólasveinninn sé ekki til.
Innihald þessa myndbands er ekki aðeins
skemmtilegt, heldur segir það okkur líka tölu
vert um upp lýsingahegðun og þær risa stóru
breyt ingar sem við stönd um frammi fyrir.
Barnið dregur þá ályktun af svari Alexu að
jóla sveinninn sé ekki til og faðirinn situr í
súpunni. Tæknin breytir upp lýsingahegðun
okkar, hvort sem við erum sátt við það eða
ekki. Ekkert var eð lilegra fyrir dr enginn en að
spyrja tækið um tilvist flj úgandi hreindýra og
hann trúði rödd Alexu betur en pabba sínum.
Eftir að þetta myndband komst á flug brugðust tæknifyrirtækin við og breyttu svörum
Alexu, Siri og Google þannig að sagt var að almennt gætu hreindýr ekki flogið, en hreindýr
jólasveinsins gætu hins vegar flogið því þau væru töfrahreindýr. Það var með öðrum orðum
gerð tilraun til að aðlaga svör tækjanna til að þau gætu líka logið að börnunum okkar og
viðhaldið þannig jólatöfrunum.
Á þeim stutta tíma sem hefur liðið frá því drengurinn spurði um tilvist fljúgandi hreindýra
hafa gervigreindin og spjallmennin (e. LLM: large language models) haldið enn frekari inn
reið sína í líf okkar allra á áþreifanlegri hátt en áður. Þótt ChatGPT gervigreindin sé ekki
leitarvél og hafi ekki verið hönnuð sérstaklega með þá virkni í huga, getum við bókað að
upplýsingahegðun fólks mun breytast með þessari tækni. Við hættum fljótlega að „Googla“
og förum að „Chatta“. Auk þess spretta fram nýjar gerðir spjallmenna nánast daglega, og
sum þeirra eru hönnuð með leit í huga.
Þótt breytingum fylgi oft kostir, og vissulega er það svo við tilkomu gervigreindarinnar, eru
líka einhverjir varnaglar sem þarf að skoða. Við tilheyrum sem dæmi öll einhverju samfélagi.
Samfélagi sem viðheldur ákveðnum hefðum og við höfum hæfni til að aðlaga hegðun okkar
mjög að þeim venjum sem haldið er að okkur. Þetta gerir okkur kleift að samþykkja tvo
„sannleika“ þótt þeir stangist á. Þannig eru jólasveinarnir til, en samt ekki. Guð er til og
skapaði heiminn á sex dögum, en samt ekki og við getum lesið skáldsögur, lifað okkur inn
Gervigreindin mun afhjúpa jólasveininn
Mynd 1: stiLLa úr Myndbandinu aLexa Just ruined
cHristMas for aLL of us
Höfundur: Helgi Sigurbjörnsson