Bókasafnið - mar 2024, Page 32

Bókasafnið - mar 2024, Page 32
32 Helgi Sigurbjörnsson í þær og fundið til með sögupersónum þótt við vitum að þær hafi í raun aldrei verið til. Spjallmennin bera ekkert skynbragð á þetta, enda er hér um tæki að ræða en ekki persónu. Ef þú spyrð ChatGPT hvort jólasveinninn sé til stendur ekki á svari: Santa Claus is a legendary figure who is typically associated with the Christmas holiday. While Santa Claus is not a real person, many people enjoy the tradition of telling stories about Santa Claus and his role in delivering gifts to children on Christmas Eve. Santa Claus is often depicted as a jolly, bearded man in a red suit who lives at the North Pole and is aided by a team of reindeer, including Rudolph. The story of Santa Claus has its origins in various folklore and traditions, including Saint Nicholas, a Christian bishop known for his generosity in the 4th century. Over the years, the Santa Claus legend has been popularized and adapted in different ways by various cultures, and he has become a symbol of holiday cheer and gift­giving. In summary, while Santa Claus is not a real, living person, he is a beloved and enduring character in the cultural traditions of Christmas celebrations. Spjallmennið hefur miklar upplýsingar um efnið, en tekur ekkert tillit til þess hvort viðhalda eigi barnatrúnni hjá spyrjanda eða ekki. Spjallmennið stendur utan við reynsluheim okkar, líkir eftir tali okkar, en hefur ámóta skilning og brauðrist á því sem það setur fram. Spjall­ mennið ChatGPT fylgir því hiklaust systur sinni Alexu í því að svipta jólin töfrum sínum. Innbyggðir fordómar En þótt gervigreindirnar séu í raun skilningsvana, endurspegla svör þeirra mjög þau gögn sem þær hafa verið þjálfaðar á. Þannig endurspegla svörin oftast viðhorf meirihlutans og viðhalda staðalmyndum sem gegnsýra gögnin. Þessu þurfa síðan forritarar að bregðast við og leiðrétta eftirá. Ef þú biður Midjourney, Night Cafe, Stable Diffusion eða einhverja aðra skapandi gervigreind um að gera mynd af hinni fullkomnu móður verður niðurstaðan í líkingu við þetta: Mynd 2: nigHt cafe: perfect MotHer Mynd 3: stabLe diffusion: perfect MotHer

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.