Bókasafnið - mar 2024, Page 53

Bókasafnið - mar 2024, Page 53
Bókasafnið 44. árg – 2024 53 Á nýliðnu ári, 2023 kom út á vegum Orkustofnunar ritið: Teikningasafn Orkustofnunar og forvera, með undirtitlinum: Söguágrip og hlutverk teiknistofunnar. Höfundur ritsins er Þórunn Erla Sighvats, upplýsingafræðingur. Ritið er 72 síður í A4 stærð, ríkulega skreytt myndum, teikningum, dæmum og sýnishornum úr Teikningasafninu. Einnig eru settar fram upplýsingar í töflum og nafnalistum og í tölfræðilegri samantekt koma fram tölur um magn og umfang safnsins. Megintextinn skiptist í sjö kafla og aftast eru fjórir viðaukar. Höfundur hóf störf hjá Orkustofnun árið 2007 og árið 2012 hóf hún vinnu við að endurskrá Teikningasafnið í rafrænan gagnagrunn, sem entist allar götur til ársins 2018. Samhliða skráningunni var safnið skannað til rafrænnar birtingar og einnig geymsluskráð og pakkað niður til afhendingar til Þjóðskjalasafns Íslands. Starfsemi teiknistofunnar var formlega hætt 1998 en nokkrar teikningar voru skráðar í númeraröð safnsins fram á árið 2001. Þarna var því um lokað safn að ræða, safn sem ekkert nýtt bættist í og var elsti hlutinn löngu kominn fram yfir tímamörk skylduskila til Þjóðskjalasafns. Samhliða því að skrá safnið myndaðist áhugi á að taka saman upplýsingar um sögu þess og starfsemi teiknistofunnar og um aðild þeirra fjölmörgu starfsmanna sem stóðu að því að skapa þessa mikil­ fenglegu heimild. Safnið telst um 40.000 númer og heildarfjöldi teikninga rúmlega 45.000. Undir mörgum númerum er fleiri en ein teikning. Sagan er löng, rekur sig til stofnunar embættis landsverkfræðings, fyrir aldamótin 1900 og spannar alla tuttugustu öldina. Til er ágrip að sögu Orkustofnunar og forvera á vef Orku­ stofnunar: https://orkustofnun.is/saga­orkustofnunar, en ennþá hefur saga stofnunar innar og forvera hennar ekki verið skráð sem útgefin heimild. Teikningasafn Orkustofnunar og forvera Söguágrip og hlutverk teiknistofunnar Mynd 1: forsíða bókarinnar Höfundur: Þórunn Erla Sighvats

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.