Bókasafnið - mar. 2024, Side 62
62 Andrea Ævarsdóttir
fór því á fyrirlestra tengda því. Í þessu tilfelli voru fyrirlestrarnir hver öðrum áhugaverðari
og vöktu mig til mikillar umhugsunar um hvernig ég gæti gert minn þáverandi vinnustað,
Bókasafn Grindavíkur, meira aðlaðandi fyrir ólíka hópa og jafnvel fyrir þá innflytjendur og
flóttamenn sem höfðu flust til Grindavíkur síðustu mánuði frá Venesúela og Úkraínu.
26. janúar 2023
Næsta dag mætti ég aftur í OsloMet kl. 9 til að hlusta á næsta aðalfyrirlesara: Geoffrey Yeo,
sem er skjalastjóri upplýsingafræðideildarinnar í University College í London Hann flutti
mjög áhugaverðan fyrirlestur að nafni „Beyond Institutions: Exploring Boundaries and
Intersections Between Archival Science and Library and Information Studies“. Fjallaði
hann aðallega um hvernig skjalasöfn verða út undan í kennslu í upplýsingafræði og hvernig
auka mætti þekkingu fagfólks á þeim. Geoffrey var mjög skemmtilegur fyrirlesari, lifandi
og fyndinn, en fjallaði vítt og breytt um efnið, enda á mörgu að taka. Eftir kaffihlé, sat ég
ýmsa áhugaverða fyrirlestra um skólabókasöfn undir þemanu „School libraries and services
aimed at children“.
Ekki síður áhugavert var kaffispjall dagsins við nokkra ráðstefnugesti. Við ræddum um ólík
verkefni og hlutverk bókasafna í Kanada, Noregi, Þýskalandi og á Íslandi. Svona samtöl eru
sennilega eitt af því besta við ráðstefnur, sjóndeildarhringurinn víkkar, en um leið sjáum við
að við erum öll eins. Upplýsingafræðingar frá NorðurNoregi gætu t.d. lært margt af okkur
og við einnig margt af þeim. Svipuð samfélagsgerð en ólík uppbygging innviða gerir það að
verkum að bókasöfn í litlum bæjum eru rekin á mjög ólíkan hátt á Ísland og í Noregi.
27. janúar 2023
Dagurinn byrjaði með kynnisferð um Deichman Björvika Bókasafnið í Osló, þar sem Knut
Skansen forstöðumaður fór með hópinn um safnið. Ég lét mig svo ekki vanta á áhugaverða
lokafyrirlestra ráðstefnunnar um upplýsinga og þekkingarstjórn eða “Information and
knowledge management”. Eftir hádegismat og „Bon voyage bingo!“ kvöddumst við þátttak
endur með virktum eftir frábæra daga í góðum félagsskap.