Ný menntamál - 01.06.1986, Síða 41

Ný menntamál - 01.06.1986, Síða 41
bent á að kynna sér vandlega formáls- °rð ritstjóra. Þar er eins og vera ber að íinna nákvæmar ábendingar um notk- un bókarinnar, skýringar tákna og aðrar leiðbeiningar. Það stafar sjálfsagt aí því að menn voru að þreifa sig áfram að ofurlítils misræmis gætir í millivís- unum bókarinnar (þannig hafa pila sem vísar á nýtt uppflettiorð og skammstöfunin sbr. eiginlega alveg sömu merkingu) en ekki kemur það notendum að neinni sök. — Sérstakur ávinningur er að því að andheita skuli getið víða. Oft heyrist undan því kvartað að orðaforði þjóðarinnar — og þá einkum yngstu kynslóðarinnar — sé að skreppa saman. Þetta er hugsanlega rétt a.m.k. í megindráttum og hafið yfir allan vafa að ábyrgð kennarastéttar- innar á málfarsuppeldi þjóðarinnar verður þyngri með hverjum áratug, hverri breytingu sem verður á samfé- lagsháttum. Með Samheitaorðabók- inni hafa kennarar fengið hjálpargagn sem vonandi á eftir að notast vel til að auka orðaforða uppvaxandi kynslóða og máltilfinningu. Því ég held notkun þessarar orðabókar í kennslustofunni sé bæði skemmtileg og fræðandi. Þarna má nefnilega finna eitt og annað sem ekki verður gengið að í orðabókum al- mennt og hægur vandi fyrir hvaða kennara sem er að smíða sér og nem- endum sínum verkefni úr bókinni. Hér skal aðeins nefnt tvennt. Oft reynist erfitt að skýra fyrir ung- um málnotendum blærnun orða og stíls. Þeim hættir til að hugsa sem svo að eitt orð sé alveg nóg um hvert fyrir- bæri. Skynsamlegt verkefni sýnist mér vera að fletta upp á einhverju algengu orði sem á sér allmörg samheiti. Tök- um sem dæmi handa ungum málnot- endunt lo. ,,grannur“. I Samheitaorða- bókinni eru því gefin sautján samheiti. Hópur nemenda gæti áreiðanlega feng- ið mikið út úr því að spreyta sig á (og þá með hjálp annarra orðabóka) að mynda setningar.þar sem hvert þessara átján orða væri komið á réttan stað. Eg er illa svikinn ef þesskonar æfing getur ekki orðið uppspretta fróðlegra hug- leiðinga um blæmun orða, um ólíkan stíl o.s.frv. Ofurlítið eldri nemendur gætu spreytt sig á sama hátt á dag- blaðaflatneskjunni „framkvæma“ (því sem kunnugt er ,,framkvæma“ menn alla hluti núorðið — jafnvel kennslu!) — fyrst á sama hátt og í dæminu að ofan, síðan með því að leita uppi sagn- ir sem eiga við alveg sérstakar tegundir framkvæmda svo sem að leggja veg, smíða brú, byggja hús. Önnur orð geta verið tilefni til ann- arskonar vangaveltna. Fletti menn t.d. upp á orðinu fjölbreyttur. Mætti ekki hugsa sér að þroskaðir nemendur ættu góðar stundir við að velta fyrir sér hvernig hvert hinna sextán samheita þess orðs er hugsað (s.s. fjölþœttur, margskonar o.s.frv.). Og hvaða upp- lýsingar um bannhelgi má lesa úr þeim fróðleik bókarinnar að hákarl eigi sér yfir þrjá tugi samheita í íslensku? Þetta eru fábrotin dæmi en að ég held hagnýt í því skyni að auðga orða- forðann, efla tilfinningu fyrir málinu, vekja til umhugsunar — og síðast en ekki síst kenna nemendum að nota orðabækur. Það kemur bókaþjóðinni að litlu haldi að vera einmitt þessi árin að eignast hinar ágætustu orðabækur ef enginn nennir að nota þær. Það hvílir á móðurmálskennurum í öllum greinum skólanna að sjá til að komandi kyn- slóðir nýti sér hjálpargögnin til líflegr- ar og markvissrar málnotkunar. Eitt þeirra hjálpargagna í öllum skólastof- um á að vera íslensk samheitaorða- bók. Heimir Pálsson, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð.

x

Ný menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.