Ný menntamál - 01.06.1986, Síða 45

Ný menntamál - 01.06.1986, Síða 45
Væntanlegar kennslubækur 1986 Gunnar Karlsson og Bragi Guðmundsson: Islandssaga frá fyrri hluta 19. aldar til nútímans. Bók þessi er ætluð framhaldsskólum og hafa frumdrög verksins verið fjölrituð og kennd við nokkra skóla í vetur. Ætlunin er að segja sögu tímabilsins í samfelldum texta og kveikja áhuga nemenda með því að tengja sögulega viðburði við aðstæður þeirra sjálfra. Verkið kemur út í haust í bráðabirgðaútgáfu. Heimir Pálsson, Þórður Helgason, Bjarni Olafsson og Sigurður Svavarsson (ritstj.): Sýnisbók íslenskra bókmennta frá siðaskiptum til nýrómantíkur. Fjórir reyndir íslenskukennarar hafa valið texta af ýmsum gerðum frá þessu tímabili í sýnisbók handa framhaldsskólum, og bætt við nauðsynlegum skýringum og upplýsingum. Bók sem lengi hefur vantað. Kemur út í kilju fyrir haustið. Bolton, Oscarson og Peterson; Ensk málfræði fyrir grunnskóla (Basic Working Grammar). Þýðandi Gerður Guðmundsdóttir. Éinkar aðlaðandi málfræðibók eftir sömu höfunda og „Breakaway“-flokkurinn, sem mikilla vinsælda hefur notið í efri bekkjum grunnskóla. Reglur eru skýrðar á mjög Ijósan hátt og mikið er af sýnidæmum í bókinni, sem prýdd er fjölda teikninga. Kom út í júní. Erik Nprgaard: Mordet pá stranden & Mord eftir middag með íslenskum verkefnum. Tveir danskir unglingareyfarar, sem vinsælir hafa verið í 9. bekk grunnskóla, saman í einni kilju með verkefnum og glósum handa íslenskum skólanemum. Verkefnin gerðu þær Brynhildur Ragnarsdóttir, Jóna Björg Sætran og Þórhildur Oddsdóttir, höfundar bókarinnar Tag fat. Kemur út í vor. Jprgen Pind: Kennslubók í MS-Dos. Þörf handbók á íslensku um algengasta stýrikerfið í einkatölvum, sem gefur skýrt yfirlit um notkunarmöguleika og helstu skipanir, en höfundur hefur stjórnað tölvuvæðingu Orðabókar Háskólans. Bókin er ætluð bæði skólum og almenningi og kemur út í haust. Eftirfarandi kennslubækur eru væntanlegar í nýjum og endurskoðuðum útgáfum fyrir haustið vegna góðra undirtekta á síðasta ári: Þórunn Blöndal: Almenn málfræði. Hafdís Ingvarsdóttir og Kirsten Friðriksdóttir: Dansk uden problemer, prentuð útgáfa. Brynhildur Ragnarsdóttir, Jóna Björg Sætran og Þórhildur Oddsdóttir: Tag fat, kennslubók í dönsku. Abending til bókmenntakennara: Þar sem djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason kom út í kilju í fyrra og seldist upp. Nú er væntanleg ný kiljuútgáfa og verður hún prýdd ljósmyndum frá sögutímanum. Góð bók bætir kennslu Mál og menning

x

Ný menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.