Morgunblaðið - 17.10.1995, Side 1
76 SÍÐUR B/C
236. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR17. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Erfiðir samningar við japanska viðskiptafulltrúa í Genf
Tókýó. The Daily Telegraph.
JAPANSKIR ráðamenn brugðust
sumir ókvæða við fréttum í gær
af því að bandaríska ieyniþjónust-
an, CIA, hefði hlerað einkasamtöl
japanskra fulltrúa í viðskiptavið-
ræðum við Bandaríkjamenn í
Genf fyrr á árinu. Tomiichi
Murayama forsætisráðherra
benti þó á að hleranirnar virtust
ekki hafa breytt miklu, Japanar
hefðu haft sitt fram.
Biaðið The New York Times
sagði að njósnaramir hefðu látið
viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna,
Mickey Kantor, upplýsingamar í
té, m.a. hefði honum á ákveðnu
stigi viðræðnanna verið sagt að
Toyota og fleiri stórfyrirtæki
vildu nú óðfús sættast á málamiðl-
un. Ein helsta krafa Bandaríkja-
manna var að Japanar keyptu
meira af bandarískum bílum en
að lokum var ekki samið um
ákveðið hlutfall eða magn.
Hleranir
CIA
gagns-
litlar
Blaðið hafði eftir heimildar-
manni í viðskiptaráðuneytinu í
Washington að oft hefði verið lít-
ið gagn að upplýsingum CIA
vegna fákunnáttu pjósnaranna í
viðskiptum. CIA fær um 18 millj-
arða dollara á ári og reynir stofn-
unin ákaft að sanna gagnsemi
sína nú, þegar kalda stríðinu er
lokið, og hefur lagt áherslu á iðn-
aðar- og viðskiptanjósnir.
Japönsk fyrirtæki þurfa að
sögn heimildarmanna lítið á upp-
lýsinganjósnum að halda í Banda-
ríkjunum vegna þess hve allt sam-
félagið vestra er galopið, oft næg-
ir þeim að fylgjast með fréttum
fjölmiðla. Japönsk blöð eru á hinn
bóginn talin vafasamar heimildir;
stjórnmálafréttamenn þeirra eru
sagðir hafa samráð við stjórnvöld
áður en skýrt sé frá mikilvægum
málum.
I tæknimálum eiga Japanar
einnig hægt um vik, þeir geta
sent sína menn til náms við banda-
ríska háskóla, sem eru miðstöðvar
flestra rannsókna. í Japan eru
það hins vegar stórfyrirtæki sem
annast slíkt og þau hleypa ekki
væntanlegum keppinautum inn í
sín helgustu vé.
Sættir Ham-
as og PLO
í höfn
LEIÐTOGI Hamas-hreyfingar-
innar, Ahmed Bahar, var í gær
látinn laus úr fangelsi á Gaza-
svæðinu þar sem hann hafði verið
fjóra mánuði í haldi stjórnar
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO). Á myndinni fagnar móðir
Bahars honum er hann kom út
úr fangelsinu. Nánir samverka-
menn Yassers Arafats, leiðtoga
PLO, fullyrtu í gær, að samkomu-
lag um friðsamlega sambúð PLO
og Hamas væri í höfn. Hamas
hefur beitt sér gegn friðarsamn-
ingum PLO við Israela sem leiddi
til heimastjórnar Palestínumanna
á Gaza og Jeríkó í fyrra og
hryðjuverkamenn samtakanna
hafa myrt fjölda ísraela í
sprengjutilræðum. í gær var frá
því skýrt, að talsverður árangur
hefði orðið af viðræðum Arafats
og Shimons Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, á sunnudag um
brottflutning ísraelskra hersveita
frá Vesturbakkanum og frekari
. völd PLO þar.
Nær milljón tók þátt í göngu íslamskra blökkumanna í Washington
mmmm
Wmm
Serbar
Reuter
BLÖKKUMENN hópast saman í Washington í gær, í baksýn er minnismerki George Washingtons, fyrsta forseta Bandaríkjanna.
Mennirnir komu hvaðanæva að frá landinu.
deila inn-
byrðis
Sarajevo, Rai\ja Luka. Reuter.
TALSMENN Sameinuðu þjóðanna
sögðu í gær að svo virtist sem vopna-
hléð í Bosníu héldi að mestu leyti.
Hörð valdabarátta geisar í forystu
Bosníu-Serba í Pale.
Dusan Kozic, forsætisráðherra svo-
nefndrar ríkisstjómar Bosníu-Serba,
sagði af sér í gær eftir maraþonfund
á þingi þar sem stjóm hans sætti
harðri gagnrýni vegna ósigra á víg-
vellinum. Fulltrúar stjómarflokksins
kröfðust þess að fjórir af helstu hers-
höfðingjum Bosníu-Serba yrðu reknir
en Ratko Mladic yfirhershöfðingi var
þó ekki meðal þeirra.
Fulltrúar fímmveldanna í tengsla-
hópnum hófu tveggja daga fund í
Moskvu í gær. Er markmiðið að reyna
að samræma viðhorfin áður en friðar-
viðræður deiluaðila í Bosníu hefjast í
Bandaríkjunum í lok mánaðarins.
Bandaríkjaforseti varar
við stefnu Farrakhans
Washington. Reuter.
TALIÐ er að allt að ein milljón svartra karla hafí
í gær tekið þátt í mikilli kröfugöngu í Washington
sem samtök múslima höfðu skipulagt til að efla
samheldni og styrk svartra. Er þetta talin vera fjöl-
mennasta kröfuganga sem efnt hefur verið til í
borginni. Bill Clinton Bandaríkjaforseti flutti ræðu
í Texas og hrósaði markmiðum göngunnar en var-
aði jafnframt við „illgimi og sundrungu í boðskap
eins manns“. Er talið ljóst að hann hafi átt við
aðalhvatamanninn að göngunni, hinn umdeilda
múslimaleiðtoga, Louis Farrakhan.
Clinton sagði ljóst að enn væri kynþáttamisrétti
í landinu en hver og einn yrði að leggja fram sinn
skerf til að brúa gjána milli kynþáttanna. „Við
skulum vona að þeir sem boðað hafa hatur og
sundrungu láti af því,“ sagði Bandaríkjaforseti í
ræðu sem hann hélt i Texasháskóla.
Colin Powell, sem margir telja að geti orðið fyrsti
svarti forsetinn í sögu landsins, harmaði að það
skyldi vera Farrakhan sem fékk hugmyndina að
göngunni. Hann gagnrýndi afstöðu Farrakhans til
gyðinga og sagðist ekki hafa viljað sýna honum
stuðning með því að taka þátt í göngunni. Hins
vegar ættu menn frekar að beina sjónum að þvi
sem jákvætt væri við framtakið en að einblína á
deilurnar um skoðanir sjálfra framkvöðlanna.
Farrakhan hefur kallað gönguna „Milljón manna
fund“ og lagt til að dagurinn 16. október verði
„dagur friðþægingar", þegar blökkumenn samein-
ist, heiti því að treysta á sjálfa sig, og itreki þær
skyldur er þeir hafi að gegna við ljölskyldur sínar
og i baráttunni gegn glæpum og atvinnuleysi.
Andstæðingar Farrakhans, þeirra á meðal hópar
gyðinga, mótmæltu ýmsum ummælum hans er
þeir sögðu bera vott um kynþáttahatur, og blökku-
konur sögðu alla áherslu lagða á karlmenn í
göngunni.
Múslimaleiðtoginn hélt því fram í sjónvarpsvið-
tali sem birt var á föstudag að gyðingar, arabar
og asískir kaupsýslumenn væru „blóðsugur". Einn
af aðstoðarmönnum hans, Quanell X, sagði í ræðu
að gyðingar ættu að „fara til íjandans" og þeir
ættu að búa sig undir stríð.
■ Sakaður um kynþáttahatur/20