Morgunblaðið - 17.10.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.10.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 21 ERLEINIT Kosningabaráttan í Austurríki að hefjast Flokkur Haiders er annar stærstur Lækkunopinberra útgjalda og skatta- hækkanir sagðar óhjákvæmilegar Reuter TYRKNESKIR verkamenn klifra upp á stóra mynd af Kemal Ataturk, fyrsta forseta Tyrklands, á 10.000 manna mótmæla- fundi gegn fráfarandi stjórn Tansu Ciller. Berlusconi verður sóttur til saka fyrir spillingu Kveðst stefna að því að komast tíl valda Ciller sem- urviðjafn- aðarmenn Ankara. Reuter. TANSU Ciller, forsætisráðherra Tyrklands, kvaðst í gær hafa náð samkomulagi við leiðtoga jafnað- armanna og fyrrverandi sam- starfsflokks síns um að stefna að myndun nýrrar samsteypustjórn- ar. Ciller ræddi við Denz Baykal, leiðtoga Þjóðarflokksins, sem var í stjórn með hægriflokki hennar, Flokki hins rétta vegar, þar til forsætisráðherrann sleit sam- starfinu 20. september vegna deilu við Baykal. Ciller myndaði síðan minni- hlutastjórn fyrr í mánuðinum en hún féll eftir aðeins tíu daga þeg- ar hún tapaði í atkvæðagreiðslu á þinginu um traustsyfirlýsingu á sunnudag. Yfirlýsingin var felld með 2B0 atkvæðum gegn 191 og 13 af 177 þingmönnum Flokks hins rétta vegar greiddu atkvæði gegn stjórninni. Ciller og Baykal kann að reynast erfitt að fá Suley- man Demirel forseta til að fallast á að gefa þeim nýtt tækifæri til stjórnarmyndunar. Forsetinn er andstæðingur CiIIer og getur veitt hvaða þingmanni sem er umboð til stjórnarmyndunar. Ciller viðurkenndi eftir ósigurinn á þinginu á sunnudag að efna þyrfti til kosninga áður en kjör- tímabilinu lýkur í október á næsta ári. Hún hefur hingað til ekki vilj- að flýta kosningunum á þeirri forsendu að þær myndu tefja fyr- ir tollabandalagi við Evrópusam- bandið og lagningu olíuleiðslu frá Kaspíahafi þvert yfir Tyrkland, auk þess sem sparnaðaraðgerðum sljórnarinnar yrði stefnt í hættu. Sameinuðu arabísku furstadæmin Lífi vinnu- stúlkunn- ar þyrmt Manila. Reuter. FIDEL Ramos, forseti Filippseyja, fagnaði í gær íhlutun forseta Sam- einuðu arabísku furstadæmanna sem varð til þess að fallið var frá dauða- dómi yfir filippeyskri vinnustúlku. Þingmenn í Manila hófu söfnun fyrir „manngjöldum" sem stúlkan á að greiða fjölskyldu manns sem hún var dæmd fyrir að drepa. Þjónustustúlkan, Sarah Balabag- an, var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir að drepa vinnuveitanda sinn, Almas Mohammed al-Baloushi, sem hún stakk 34 sinnum með hnífi. Dómstóllinn hafnaði þeirri skýringu stúlkunnar að hún hefði verið að veija sig vegna nauðgunar. Fjölskylda Baloushis skýrði frá því um helgina að hún hefði fallið frá kröfu sinni um að stúlkan yrði tekin af lífi. Hún féllst á tillögu forseta Sameinuðu arabísku furstadæm- anna, Zaid Bin Sultan al-Nahayan, Reuter KARIMÍ Balabagan, faðir filippeysku stúlkunnar sem var dæmd til dauða í Samein- uðu arabísku furstadæmunum, faðmar skyldmenni mannsins sem hún varð að bana. um að hún fyrirgæfi stúlkunni og þægi sem svarar 2,7 milljónum króna í manngjöld. Dagblöð á Filippseyjum fögnuðu ákaft þessari niðurstöðu og þing- menn sömdu ályktunartillögu þar sem farið er lofsamlegum orðum um sanngirni réttarkerfisins í Samein- uðu arabísku furstadæmunum undir leiðsögn forsetans. Nokkrir þeirra létu einnig fé af hendi rakna í söfnun fyrir manngjöldunum. Róm. Reuter. HAFT var eftir Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, í gær að hann stefndi enn að því að endurheimta embættið þótt ákveðið hefði verið að leiða hann fyrir rétt 17. janúar vegna meintrar aðildar hans að mútugreiðslum. Fjölmiðlar á Ítalíu lýstu réttarhöld- unum sem „pólitískum landskjálfta“ og réðu honum frá því að reyna að komast aftur til valda í bráð. Félagar í Frelsisbandalagi Ber- lusconis hafa látið í ljós efasemdir um pólitíska framtíð hans en ítölsk dagblöð höfðu eftir honum að hann myndi ekki draga sig í hlé. „Ég er leiðtogi bandalagsins. Ég er forsæt- isráðherraefni þess. Ég segi við bandamenn mína: „Herrar mínir, þannig er þessu háttað“. Og ef þeim líkar þetta ekki geta þeir gert það sem þeir vilja.“ Dómari í Mílanó Vín. Reuter. KOSNINGABARÁTTAN í Aust- urríki hefst nú í vikunni en geng- ið verður að kjörborðinu um miðj- an desember. Samkvæms síðustu skoðanakönnunum mun Frelsis- flokkur Jörgs Haiders, sem er yst á hægrivængnum, bæta mestu fylgi við sig. Kunnur, austurrísk- ur efnahagsmálasérfræðingur segir, að næsta stjórn, hvernig sem hún verður skipuð, komist ekki hjá að skera niður opinber útgjöld og hækka skatta. Ríkisstjórnarsamstarf Jafnað- armannaflokksins og Þjóðar- flokksins sprakk á ágreiningi um leiðir til að minnka fjárlagahall- ann og búist er við, að kjördagur verði ákveðinn 17. desember. Þijú ár lifa enn af kjörtímabilinu og er hér um að ræða skammlífustu stjórn í Austurríki eftir stríð. Samkvæmt skoðanakönnun, sem dagblaðið Kurier birti í fyrra- dag, fengi Frelsisflokkurinn 27% atkvæða ef nú væri kosið og yrði þar með næststærsti flokkurinn á eftir jafnaðarmönnum, sem var spáð aðeins 30%. Fylgi við Þjóðar- flokkinn var 26%. Efnahagsmál og leiðir til að minnka fjárlagahallann, sem er áætlaður 763 milljarðar ísl. kr. á tilkynnti á laugardag að Berlusconi yrði leiddur fyrir rétt 17. janúar til að svara til saka fyrir meinta aðild hans að mútugreiðslum fyrirtækja hans til skattalögreglunnar sem á í staðinn að hafa farið mjúkum höndum um bókhald þeirra. Ber- lusconi, sem sagði af sér sem for- sætisráðherra í desember, hefur neitað því að vera viðriðinn málið. Hótar að hindra fjárlög Berlusconi hótaði á sunnudag að hindra samþykkt fjárlaga fyrir næsta ár ef þingið samþykkti í at- kvæðagreiðslu á morgun tillögu um að Filippo Mancuso fjármálaráð- herra yrði ákærður. Andstæðingar Berlusconis í mið- og vinstriflokk- unum hafa beitt sér fyrir ákærunni og saka dómsmálaráðherrann um að hafa reynt að binda hendur sak- næsta fjárlagaári, verða aðalmál kosninganna. Fara skoðanir þeirra Jörgs Haiders, leiðtoga Frelsisflokksins, og Wolfgangs Schússels, leiðtoga Þjóðarflokks- ins, að mörgu leyti saman og báðir vilja þeir lækka opinber út- gjöld, draga úr skriffinnsku og gera iðnaðinn, sem er að stórum hluta í ríkiseigu, samkeppnishæf- ari. Er hækkun skatta óumflýjanleg? Helmut Kramer, forstöðumað- ur WIFO, kunnrar rannsókna- stofnunar í efnahagsmálum í Austurríki, sagði í gær, að næsta ríkisstjórn yrði að skera niður fjárlagahallann um helming og ekki aðeins með því að draga úr útgjöldum, heldur einnig með skattahækkunum. Engu máli skipti hvernig kosn- ingarnar færu, þetta yrði að vera verkefni næstu stjórnar. Kramer benti á, að framlög til velferðar- mála væru nú með því hæsta, sem gerðist, í Austurríki og ríkis- starfsmenn væru 50% fleiri þar en í Þýskalandi miðað við mann- fjölda. sóknara er rannsökuðu spillingar- málin sem hafa tröllriðið ítölskum stjórnmálum síðustu misseri. Ber- lusconi hefur gagnrýnt saksóknar- ana og sakað þá um „stalíníska“ ófrægingarherferð gegn sér. Ritstjóri dagblaðsins La Stampa lýsti ákvörðun dómarans sem „póli- tískum landskjálfta" og sagði stöðu Berlusconis kaldhæðnislega. „Án saksóknaranna, sem komu heilli leiðtogastétt frá, hefði stjórnmála- maðurinn Berlusconi, sem gæti nú fallið fyrir hendi sömu saksóknara, aldrei hafa orðið til.“ Dagblaðið La Repubblica sagði nú ljóst að forseti landsins gæti ekki sett Berlusconi aftur í emb- ætti forsætisráðherra, jafnvel þótt bandalag hans ynni kosningasigur, þar til niðurstaða fengist í spilling- armálinu fyrir dómstólum. 3ja sœta + 2 stáíar tq. 139.320 stgr. 3ja sceta + 2ja sœta + stóíí tq. 152.550 stgr. / •Bergm-sTqniqir j íq.45.360 stgr. %■59.490 stgr. ijBcrqm bótqifiiita J kr.29.735 stgr. HUSGAGNAVERSLUNIN . 'Kpmmóða j 0 kr.21.1OO stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.