Morgunblaðið - 17.10.1995, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGl YSINGAR
Athugunarmaður
Laust er starf athugunarmanns, skv. reglu-
gerð nr. 533/1995 um eftirlit með hættu á
snjóflóðum, í umdæmi lögreglustjórans í
Stykkishólmi. Veðurstofa íslands skilgreinir
verkefni athugunarmanna og setur þeim
verklagsreglur um tilhögun, umfang og tíðni
athugana, svo og meðferð og skil á niður-
stöðum þeirra.
Laun athugunarmanna miðast við kjara-
samning ríkisins við Starfsmannafélag ríkis-
stofnana, skv. 8. gr. reglugerðarinnar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 27. októ-
ber 1995 og skal umsóknum skiiað til undir-
ritaðs.
Stykkishólmi 16. október 1995.
Sýslumaðurinn íStykkishólmi,
Ólafur K. Ólafsson.
m
Starfsmann
á næturvaktir
vantar nú þegar!
Fjölskyldumeðferðarheimili í borginni vantar
starfsmann á næturvaktir í 40% starf.
skilegt er að viðkomandi sé ekki yngri en
25 ára, hafi áður unnið við meðferðarstörf,
sé ábyggilegur og traustur.
Frestur til að skila umsóknum er til 23. októ-
ber, en umsóknareyðublöð liggja frammi á
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Síðu-
múla 39.
Ef óskað er nánari upplýsinga má hafa sam-
band við Helgu Þórðardóttur, forstöðumann
í síma 552 5881 milli kl. 10 og 12
næstu daga.
Snjóathugunar-
maður í Bolungarvík
Laus eru til umsóknar störf snjóathugunar-
manns og aðstoðarmanns hans til að fylgj-
ast með landfræðilegum og veðurfarslegum
aðstæðum með tilliti til hættu af snjóflóðum
í umdæmi sýslumannsins í Bolungarvík, sam-
kvæmt reglugerð nr. 533/1995 um eftirlit
með hættu af snjóflóðum.
Veðurstofa íslands skilgreinir verkefni athug-
unarmanna og setur þeim verklagsreglur um
tilhögun, umfang og tíðni athugana, svo og
meðferð og skil á niðurstöðum þeirra.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 1995 og
skal umsóknum skilað til skrifstofu undirrit-
aðs, Aðalstræti 12, Bolungarvík, sem einnig
veitir nánari upplýsingar um störfin.
Bolungarvík, 16. október 1995.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
Jónas Guðmundsson.
Staða
yfirlyfjafræðings
í Hafnarfjarðar Apóteki
er laus til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf og veitist staðan
frá 1. janúar 1996.
Laun og kjör samkvæmt samningum AÍ
og SÍL.
Skriflegar umsóknir sendist Almari Gríms-
syni, apótekara, pósthólf 214, 222 Hafnar-
firði, ásamt greinargerð um fyrri störf og
lýsingu á viðhorfum umsækjanda til starfs-
sviðs og verkefna apóteka í nútíð og fram-
tíð, merktar: „Trúnaðarmál“
Vinnustaðurinn er reyklaus.
Umsækjendum verður svarað eftir að um-
sóknarfrestur, sem er til 11. nóvember 1995,
er liðinn.
Hafnarfirði, 15. október 1995
Framkvæmdastjóri
Samtök um tónlistarhús óska eftir að ráða
framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni:
1. Umsjón með fjármálum, bókhaldi og skrif-
stofu samtakanna.
2. Umsjón og frágangur félagaskrár og fé-
lagaöflun.
3. Útgáfu- og kynningarmál og tengsl við .
félaga og styrktaraðila.
4. Undirbúningur stjórnarfunda og annarra
funda sem samtökin halda.
5. Öflun gagna og upplýsinga, er varða
málefni tónlistarhúss.
Við leitum að duglegum og sjálfstæðum
manni. Viðkomandi þarf að hafa góða ís-
lenskukunnáttu og eiga auðvelt með að tjá
sig í töluðu og rituðu máli, m.a. í fjölmiðlum.
Áhugi og þekking á íslensku tónlistarlífi er
nauðsynleg. Hugsanlega gæti verið um
hlutastarf að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknirtil Ráðn-
ingarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Framkvæmdastjóri 427“ fyrir 24. október nk.
I
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 581 3666
Róöningarþjónusta
Rekstrarróðgjöf
Skoðanakannanir
RAÐ/\ UGL YSINGAR
HÚSNÆÐI í BOÐI
Nóatún
Verslunar- og skrifstofuhúsnæði til leigu.
1. Verslunarhúsnæði 365 fm.
2. Skrifstofuhúsnæði 40 fm, 76 fm og 180 fm.
Nánari upplýsingar gefur Jón Júlíusson í síma
561 7005 og hs. 588 0055.
TIL SÖLU
Bújörð til sölu
á besta stað í Eyjafjarðarsveit. Fullvirðisréttur
er ca 130 þús. lítrar til mjólkurframleiðslu.
Ræktað land ca 50 ha. Möguleiki á meiri rækt-
un. Á jörðinni eru tvö íbúðarhús. Fjarlægð frá
Akureyri er 20 km. Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar í símum 463 1155 og 463 1145
eftir kl. 19.00.
ÝMISLEGT
Söngfólk
Karlaraddir óskast í kór Laugarneskirkju.
Upplýsingar í kirkjunni í síma 588-9422 alla
daga frá kl. 10-14.
Organisti.
ÓSKASTKEYPT
Kaupi gamla muni
vel með farin húsgögn, lampa, myndir
og málverk. Staðgreiðsla.
Upplýsingar í síma 588 3540.
Geymið auglýsinguna.
KENNSLA
Enskunám íEnglandi
Þægilegur og vinsæll skóli í Bournemouth
býður þig velkominn til náms.
Láttu nú verða af því.
Upplýsingar veitir Páll G. Björnsson
í vs. 487 5888 og hs. 487 5889.
FUNDIR ~~ MANNFAGNAÐUR
Fundarboð
Flúðum, 9. október 1995
Stjórn Límtrés hf. boðartil aðalfundar þriðju-
daginn 24. október nk. kl. 21.00 í félagsheim-
ilinu Aratungu, Reykholti, Biskupstungum.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
7. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um hækkun á hlutafé
og breytingar á samþykktum.
3. Önnur mál.
Virðingarfyllst,
stjórn Límtrés hf.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
atvinnuhúsnæði nú
þegar. Húsnæðið er
210 fm á 2. hæð í
Bæjarhrauni 10 í
Hafnarfirði.
Góð aðkoma er að húsinu sem er í snyrti-
legu umhverfi.
Upplýsingar eru veittar í síma 565-0152 eftir
kl. 13.00 og 565-3888 eftir kl. 18.00.
Til leigu-65fm
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er 65 fm vandað skrifstofuhúsnæði
í nýlegu og vönduðu húsi við Skipholt.
Húsnæðið er tilbúðið til afhendingar.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Rúna í síma
515-5500 á daginn eða Magnús í síma
557-7797 á kvöldin.
Til leigu - til sölu - 112 fm
Verslunarhúsnæði
Til leigu eða sölu er 112 fm verslunarhús-
næði í nýlegu og vönduðu húsi við Skipholt.
Húsnæðið hentar sérlega vel fyrir sérverslun
og/eða heildverslun.
Er það tilbúið til notkunar.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Rúna í síma
515-5500 á daginn eða Magnús í síma
557-7797 á kvöldin.