Morgunblaðið - 17.10.1995, Síða 19

Morgunblaðið - 17.10.1995, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 19 FRÉTTIR: EVRÓPA Reuter HELMUT Kohl flytur ræðu sína á landsfundi kristilegra demókrata í Karlsruhe. Yfírhagfræðingur Deutsche Bank Telur 55-60% líkur á EMU Hong Kong, Karlsruhe. Reuter. NORBERT Walter, yfirhagfræð- ingur Deutsche Bank, segist telja 55-60% líkur á að áformin um peningalegan samruna Evrópu- ríkja (EMU)verði að veruleika. Kom þetta fram í erindi sem hann flutti í gær á ráðstefnu í Hong Kong. Walter sagðist telja líklegt að af peningalega samrunanum yrði árið 1999 eða þá árið 2000, ef bíða yrði eftir Frökkum. í upphafi yrðu aðildarríkin líklega sex til átta. Hann taldi 5-10% líkur á að slakað yrði á skilyrðunum fyrir aðild. Hvað Asíu varðar myndi EMU líklega helst hafa þau áhrif að ríki þar fengju raunhæfan valkost við dollar við uppbyggingu gjaldeyris- varaforða. „Menn yrðu ekki lengur alfarið háðir dollar. Þetta myndi gera fjármálaheiminn viðkunnan- legri,“ sagði Walter. Það sem helst ógnaði því að EMU yrði að veruleika væri að Frökkum tækist ekki að uppfylla skilyrðin og þá helst varðandi fjár- lagahalla. Yfirhagfræðingur Deutsche Bank spáði því að ef EMU-áformin færu út um þúfur myndi allur hvati fyrir ríki til að draga úr ijárlaga- halla sínum hverfa. Kohl vill engar tilslakanir Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, sagði á landsfundi kristi- legra demókrata í gær að hætta væri á að Þjóðverjar legðust gegn peningalegan samruna ef slakað yrði á skilyrðunum fyrir EMU. „Það er ekki til marks um þýska móðursýki þó að við ítrekum aftur og aftur að standa verður við skil- yrði Maastricht-sáttmálans sama hvað á dynur og að þeim megi ekki breyta undir neinum kringum- stæðum,“ sagði kanslarinn. Samkvæmt skilyrðum Ma- astricht verða þau ríki sem ætla að taka þátt. í EMU að skera niður fjárlagahalla í 3% af þjóðarfram- leiðslu og heildarskuldir hins opin- bera mega ekki vera yfir 60% af • þjóðarframleiðslu. „Við viljum evrópskt samfélag er byggir á stöðugleika. Ef sú verð- ur ekki raunin mun það stefna þeim árangri sem náðst hefur til þessa í hættu. Jafnvel væri hætta á að tortryggni íbúanna myndi snúast gegn sjálfri Evrópuhugsjón- inni,“ sagði Kohl. Deilt um Evrópu- málin í Sviss Zurich. Reuter. AFSTAÐAN til Evrópusam- bandsins er það mál, sem einna helzt virðist ná að hrista upp í kjósendum í Sviss á lokaspretti baráttunnar fyrir þingkosning- arnar, sem haldnar verða næst- komandi sunnudag. ESB-and- stæðingurinn Christoph Bloc- her, sem tilheyrir Svissneska þjóðarflokknum (SVP), hefur innleitt nýjan og hvassari stíl í svissneska stjórnmálabaráttu, sem yfirleitt hefur verið fremur .litlaus og einkennzt af breiðri samstöðu um flest mál. Utvarps- og sjónvarpsauglýs- ingar stjórnmálaflokka eru bannaðar í Sviss, en Blocher og fylgismenn hans í Ziirich-deild SVP hafa auglýst stíft í dag- blöðum. í auglýsingum þeirra má meðal annars sjá Evrópu- sambandið sem svartklæddan mann, sem minnir á stormsveit- arliða og stappar á atkvæða- seðli Svisslendings, sem ætlar að fara að kjósa í þjóðarat- kvæðagreiðslu. SVP í Ziirich segir ESB-aðild munu hafa í för með sér að útlendingar streymi inn í Sviss, kerfi beins lýðræðis í landinu verði eyðilagt og það rænt auði sínum. Sömu fjórir flokkarnir hafa setið í samsteypustjórn í Sviss frá árinu 1959; Sósíaldemó- kratar, Róttækir demókratar, Kristilegir demókratar og SVP. Sósíaldemókratar eru Evrópu- sinnaðasti flokkurinn, en búizt er við að bæði þeir og SVP bæti við sig fylgi í kosningunum. Herferð Blochers hefur orðið til þess að ESB-andstæðingar í hinum hægriflokkunum tveim- ur hafa haft sig meira í frammi. Sljórnmálaskýrendur segja hægriflokkana þijá nú klofna í afstöðunni til ESB. Áberandi er að þýzkumælandi Svisslending- ar leggjast gegn nánari tengsl- um við ESB, en frönskumælandi íbúar eru hlynntir Evrópusam- starfi. Svissneska stjórnin stendur nú í samningaviðræðum við ESB um tvíhliða samstarf, en lítill árangur hefur orðið af þeim enn sem komið er. Skafðu og skemmtu þér með „Happ í Hendi" 2milljónir strax... ..auk fjölda annarra vinninga Byrjaðu að skafa Horfðu á þáttinn með Hemma Fáðu þér skafmiðann „Happ í Hendi" í næstu sjoppu. Þú getur unnið JAPIS Horfðu á sjónvarpsþáttinn „Happ í Hendi" með Hemma á hverju föstudagskvöldi í Sjónvarpinu. Þú gætir unnið glæsilegan aukavinning á skafmiðann þinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.