Morgunblaðið - 31.01.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981
3
„íslenzka óperan“; hópur áhugamanna um óperuflutning frumflutti ítölsku óperuna II PaKliacci eftir
Leoncavallo í Háskólabiói 11. marz 1979. Myndin er tekin á æfingu fyrir þá frumsýningu.
tslenzka óperan:
Fyrsta verkefnið
hátíðartónleikar
- í minningu Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
STJÓRN hinnar nýstofnuðu Is-
lensku óperu hefur ákveðið að
fyrsta verkefni hennar verði
hátíðartónleikar í minningu
hjónanna Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar. Verða
þeir haldnir í Háskólabíói
fimmtudaginn 19. febr. nk. kl.
20.30, og verða aðgöngumiðar að
þeim jafnframt stofnfélaga-
skírteini Islenzku óperunnar.
Munu íslenzkir óperusöngvar-
ar og Sinfóníuhljómsveit Islands
sameinast um að þeir megi verða
sem veglegastir, svo sem tilefni
þeirra hæfir, segir í fréttatil-
kynningu frá Islenzku óperunni.
Flutt verða atriði úr óperum,
aríur, dúettar og fleira. Einnig
mun kór íslensku óperunnar
flytja þekkta óperukóra. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Rob-
in Stapleton frá Covent Gard-
en-óperunni í London.
Afgreiðsla á aðgöngumiðum
til þeirra, sem hafa látið skrá sig
stofnfélaga, eða óska að gerast
stofnfélagar óperunnar, verður í
Söngskólanum í Reykjavík, að
Hverfisgötu 45 mánudaginn 2.
febr. og stendur frá kl. 5—7
daglega.
Verðhækkanir taka gildi í dag:
Franskbrauð í 3,90
RÍKISSTJÓRNIN staðfesti í gær
þær verðhækkanir, sem Verðlags-
ráð hafði samþykkt á fundi
sínum á miðvikudaginn. Taka
hin nýju verð gildi frá og með
deginum i dag.
Hér á eftir verða hækkanirnar
Eldgosið
sást víða að
ELDGOSIÐ sást víða að í
gær. Fréttaritarar hlaðsins
á Akureyri og Egilsstöðum
höfðu samband við það og
sögðu að rauður bjarmi sæ-
ist á himni yfir eldstöðvun-
um. Báðir tóku fram, að
slíkur bjarmi hefði ekki
áður sést á þessum stöðum í
fyrri eldsumbrotum á Mý-
vatnssvæðinu.
Þá hafði fréttaritari Mbl. á
Húsavík samband við blaðið í
gærkvöldi og sagði að suðaust-
urhiminninn væri baðaður
rauðu ljósi. Líktist þessi sjón
helst sólarlagi að sumri og
væri hún mjög tignarleg.
taldar upp og gefin dæmi um
verðhækkanir á einstökum teg-
undum.
Hámarksverð á brauði hækkar
um 18,5—25,2% en raunhækkun
frá gilda'ndi verði, sem bakarar
ákváðu sjálfir í trássi við vilja
Verðlagsráðs er 4,6—8,7%. Sem
dæmi má nefna, að 500 gramma
franskbrauð hækka úr 3,20 í 3,90
krónur eða um 21,9% og 625
gramma maltbrauð hækka úr 3,25
í 3,85 krónur eða um 18,5%.
Hámarksverð á gosdrykkjum
hækkar um 8—13%. Sem dæmi
má nefna, að 25 cl appelsínflaska
hækkar úr 2,40 í 2,60 krónur eða
8,3%, 19 cl Cola flaska hækkar úr
1,90 í 2,15 krónur eða 13% og
Sanitaspilsner hækkar úr 4,35 í
4,65 krónur hver flaska eða um 7%
Hámarksverð á borðsmjörlíki
hækkar um 6,8% eða úr 5,38 í 5,75
krónur hver 500 gramma pakki.
Aðgöngumiðar að kvikmynda-
húsum hækka um 9,4% eða úr 16 í
17,50 krónur miðinn.
Saltfiskur i smásölu hækkar um
20% eða úr 12,90 í 15,50 krónur
hvert kg.
Fargjöld sérleyfishafa og far-
gjöld Landleiða milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar hækka um 11%
og far- og farmgjöld innanlands-
flugs hækka um 5%.
I fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu barst í gær frá Verð-
lagsstofnun segir svo m.a:
Mál þessi höfðu borist Verðlags-
ráði til umfjöllunar áður en verð-
stöðvunarlögin frá 31. desember
sl. tóku gildi og voru byggð á
kostnaðartilefnum sem fram voru
komin. Þrátt fyrir að ekki tækist
að afgreiða þau fyrir áramót var
ekki talið rétt að láta hlutaðeig-
andi aðila sitja eftir með hækkan-
ir og þess vegna var ákveðið að
beita undanþáguheimild í verð-
stöðvunarlögunum og heimila um-
ræddar hækkanir sem munu taka
gildi á morgun 31. janúar.
Vegna þeirrar umræðu sem ver-
ið hefur að undanförnu í fjölmiðl-
um um verðlagningu brauða vill
verðlagsstofnun taka fram, að þær
hækkanir á hámarksverðsbrauð-
um sem nú hafa verið heimilaðar
eru byggðar á kostnaðarhækkun-
um sem orðið hafa í brauðfram-
leiðslu sl. fjóra mánuði. Verðlags-
ráð miðaði ákvörðunina við sama
útreikningsgrundvöll og notaður
var þegar síðasta verðlagning fór
fram, því mun hún engin áhrif
hafa á kærumál verðlagsstofnun-
ar á hendur bakarameisturum.
Forseti Islands í opin-
bera heimsókn til Noregs
Osló. 30. janúar.
frá fréttaritara Morgunhlaósins:
FORSETI íslands. Vigdís Finn-
bogadóttir, kemur í opinbera
heimsókn til Noregs seinni hluta
október í haust. að því er dag-
blaðið Aftenposten skýrði frá í
frétt i dag.
Aftenposten segir að Vigdísi
Finnbogadóttur hafi verið boðið
til Noregs fyrir alllöngu og mein-
ingin verið að hún færi þangað í
sína fyrstu opinberu heimsókn
sem forseti. Þær áætlanir hafi
breytzt og fyrsta opinbera heim-
sókn forsetans verði til Dan-
merkur í febrúar nk.
ymingar
AJLA -husgagna
— sjaldgæft fyrirbæri
hjá okkur
• Opið í dag •
f laugardag 9—5 j
Sófasett — sófaborð —
hornborð — barskápar
— áklæði — útsaum
á roccoco-stóla —
hornsett — o.fl.
* Allt á niðursettu
\
verði
Góð afborgunarkjör —
lítið út —
lítið á mánuði.
Kjarakaup som standa
aðeins í
örfáa daga.
A
V.
núsgögn
Ármúla 44,
sími 32035 — 85153.