Morgunblaðið - 31.01.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981
41
fclk í
fréttum
Ógnþrúgandi ófrjálsræði
+ Eins og allir vita eru a.m.k. tvær hliðar á því að vera fyrirmaður og frægur. Því fylgir líka oft alveg
ótrúlegt ófrjálsræði, það svo að oft er hinum frægu manneskjum hreinlega vorkunn. Þær geta ekki hreyft
sig spönn að ekki sé einhver, sem fer að skipta sér af því, á einn eða annan hátt. Hér eiga
fréttaljósmyndarar stærstan hlut að máli. Um það eru til ótal sögur — og þá um leið ýmiskonar viðbrögð
fórnardýranna. Þessi fréttamynd er einmitt dæmi um þetta ógnþrúgandi ófrjálsræði. Karl Bretaprins
var fyrir fáeinum dögum suður í Svissnesku skíðalöndunum. — Nei hann gat ekki fengið að vera þar í
friði, eins og t.d. þegar hann kemur hingað til íslands og getur gefið sig af lífi og sál að laxveiðisportinu
ótruflaður af öllum. Við skíðabæinn Klosters í Sviss brá hann sér á skíði. — Um leið höfðu hópast að
honum fjöldi ljósmyndara. — Einn þeirra er í baksýn. Þeir hafa auðvitað verið að bíða eftir því að ná
augnabliksmyndinni ef svo færi að prinsinn færi flikk-flakk á skíðunum. — En um það segir þó ekkert í
myndatextanum frá AP-fréttastofunni.
Blóðhefnd
+ Þetta eru feðgarnir Sir Norman
Stonge og sonur hans James
Stonge, sem IRA-menn myrtu á
dögunum, á heimili sínu í N-ír-
landi skammt frá landamærum
írlands g N-írlands. Var Sir
Norman þjóðkunnur maður 86
ára gamall, fyrir stjórnmálastarf
sitt. Hann var meðal frammá-
manna í Ulster á sviði stjórnmála
í 45 ár. IRA-menn hafa sagt að
morðið á feðgunum væri hefnd-
arráðstofnun fyrir skotárásina á
fyrrum þingmann og kaþólikkann
Bernadette Devlin McAliskey og
eiginmann hennar. — Þeir feðgar
voru mótmælendatrúar. James
Stang var tæplega fimmtugur að
aldri.
Fyrsta konan í
346 ára sögu
+ A miðri þessari mynd má sjá frönsku skáldkonuna Marguerite
Yourcenar á tali við þá Giscard d’Estaing, Frakklandsforseta,
(snýr baki að okkur) og Maurice Schumann, í Frönsku
akademíunni. — Skáldkonan tók sæti í Akademíunni fyrir
nokkru. Þótti það að sönnu marka merk tímamót í 346 ára sögu
hennar.
Þetta er nefnilega í fyrsta skipti sem kona tekur sæti í þessari
virðulegustu stofnun Frakklands. Að því hafði verið unnið um
nokkurt skeið. — Nafntogaðasti tískuhönnuður Frakka, sjálfur
Yves St. Laurent hannaði skósíðan svartan kvöldkjól handa
skáldkonunni, til þess að klæðast við athöfnina, sem fram fór í
Akademíunni er hún tók þar sæti. Skáldkonan er nú 77 ára.
Finnbjörn Hjartarson prentari:
Bravó Benedikt!
Það eru tíðindi orðin hér á landi
ef frammámenn í lýðræðisflokk-
unum tala um kommúnistana í
Alþýðubandalaginu tæpitungu-
laust. Þess vegna get ég ekki
annað en látið í ljós ánægju mína
á viðtali, sem Benedikt Gröndal
fv. formaður Alþýðuflokksins átti
við kommúnistann Svavar Gests-
son í morgunútvarpi vegna grein-
ar Benedikts i Alþýðublaðinu í
fyrri viku.
Enn um heima-
smíðaöan kommúnisma
Benedikt kvaðst meðal annars
hafa ritað grein sína til að reyna
að vekja þann stóra meirihluta,
sem léti það viðgangast að taka
áróður alþýðubandalagskommún-
ista sem góða og gilda vöru í
lýðræðisþjóðfélagi, að þeir sléttu
og felldu ungu foringjar, sem nú
trónuðu á oddi kommúnistaflokks-
ins væru eitthvað skárri eða hefðu
eitthvað betra fram að færa en
þeir gömlu, sem er auðvitað hrein
fjarstæða.
Benedikt hefði mátt fylgja
þessu betur eftir, m.a. vegna þess
að Svavar Gestsson stóð á gati,
sem vonlegt er þegar menn leggja
það loks á sig að taka þessa
puntudrengi í bóndabeygju. Þeir
hafa það að vísu fram yfir hina
gömlu kommúnistaforingja ís-
lenzka, að hafa tekið ómælda
hræsni í málflutning sinn, svo sem
alþjóð varð vitni að hjá Ólafi R.
Grímssyni og Vilborgu Harðar-
dóttur í þætti í sjónvarpi nýlega
um flóttafólk á íslandi.
Það sem Svavar Gestsson var í
raun að segja, þegar hann útmálar
heimasmíðaðan kommúnisma, er
meðal annars það að fullyrða að
kviksyndið hans sé betra en það
rússneska. Að drunginn og fang-
elsin væru skárri ef hann væri á
valdastóli. Heldur nokkur maður á
jarðríki, að Rússar séu í eðli sínu
verra fólk en annað? Halda menn,
að þjóð sem hefur alið stórmenni
eins og Tolstoj, Bukhovsky og
solzhenitsyn væri verr í stakk
búin en aðrar þjóðir ef hún nyti
frelsis? Nei, það er þetta
ómennska kerfi kommúnista, sem
heldur þjóðinni í helfjötrum og
þeim flökrar ekki við að biðja um
fleiri þjóðir til að gera sömu
tilraunir á og rússneskir komm-
únistar gera nú á sinni þjóð og eru
búnir að gera í hálfa öld.
Því miður lætur alltof stór hluti
íslenzku þjóðarinnar glepjast til
að hlusta á gal hananna á komm-
únistahaug Þjóðviljans.
Dæmin koma
Þau eru orðin nokkuð áberandi
dæmin um vinnubrögð kommún-
ista er varða Ríkisútvarpið. Það
var fyrst þegar þeir voru leiddir
til valda á árinu 1971, að fór að
bera á því, þegar þeir sneru sér að
því að brjóta niður hlutleysisreglu
útvarpsins, sem ávallt var í heiðri
höfð frá upphafi stofnunarinnar.
Og fyrsta blekkingin var að ekki
væri hægt að vera hlutlaus, því í
hlutleysinu fælist afstaða, sem
væri i raun grímubúin afstaða
með einum eða öðrum, og þar með
rammasta pólitík. Þetta var tekið
gott og gilt. Síðan er útvarpið að
vérða æ litaðra, því kontmúnistar
halda öllu sínu og eru farnir að
beita pólitískum og atvinnulegum
þrýstingi við mannaráðningar.
Hvar halda menn að þetta endi?
Þurfa íslenzkir lýðræðissinnar
fleiri Æsur í útvarpið til að þeir
vakni frá atkvæðaveiðum og und-
irlægjuhætti?
Þessi túlkun íslenzkra kommún-
ista er angi af einhvers konar
manneðlistrú. „Við erum betri en
Rússar! Treystið okkur.“
Herra Sigurbjörn Einarsson
segir í „Sköpunarsaga og sköpun-
artrú“ nýrri útgáfu „Salts“.
„Manneðlisrómantíkin reis einnig
upp í nazismanum, þótt trúin á
manninn væri þar að vísu bundin
við hið germanska eða aríska kyn,
ekki við verkamanna- eða öreiga-
stéttina, eins og í kommúnisman-
um. En í báðum þessum myndum
hefur trúin á manninn haldizt í
hendur við og leitt af sér þá
fyrirlitningu á manneskjunni og
mannhatur, sem vart hefur þvílíkt
þekkzt."
Stofna jafnrétt-
isfélag
á Akureyri
STOFNUN félags um jafnrétt-
ismál er nú í undirbúningi á
Akureyri og er ákveðið að stofn-
fundur verði sunnudaginn 1.
febrúar að Hótel KEA og hefjist
kl. 14. Meginnmarkmið félagsins
verður að stuðla að jafnrétti
kynjanna segir i frétt frá undir-
búningsnefnd.
„Gert er ráð fyrir að starfsemin
verði tvíþætt. Annars vegar verði
fjallað um misrétti í okkar nánast
umhverfi og reynt að hafa áhrif í
jafnréttisátt. Hins vegar verði
fjallað um vandamál konunnar
sjálfrar og reynt að stuðla að
uppbyggingu sjálfstrausts og
sjálfsvitundar hjá þeim, er þess
leita, í þeim tilgangi að nýta betur
þá hæfileika, sem í þeim búa“,
segir m.a. í frétt frá nefndinni,
sem hvetur konur jafnt sem karla
til að sækja fundinn og verður séð
íyrir barnagæzlu og boðið upp á
kaffiveitingar.
Félag
járniðnaðarmanna
Allsherjaratkvæöagreiösla
Ákveöið hefur veriö aö viöhafa allsherjaratkvæða-
greiöslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Félags járniönaöarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögur eiga aö vera um 7 menn í stjórn félagsins og
auk þess um 14 menn til viöbótar í trúnaðarmanna-
ráö og 7 varamenn þeirra.
Frestur til aö skila tillögum rennur út kl. 18.00
þriöjudaginn 3. febrúar n.k.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar félagsins í
skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæö,
ásamt meðmælum a.m.k. 80 fullgildra félagsmanna.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.