Morgunblaðið - 08.10.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983
Nýjar reglur um leiktækjasali:
nema í fylgd með fullorðnum
Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavík-
ur á fimmtudag var samþykkt breyt-
ing á 2. mgr. 81. gr. lögreglusam-
þykktar fyrir Reykjavfk. Samkvæmt
henni má enginn reka knattborð,
spilakassa eða leiktæki gegn borgun
nema með leyfi lögreglustjóra að
fenginni umsögn borgarstjórnar.
Iæyfið má einungis veita þeim sem
hefur veitingaleyfi skv. 1. mgr. 53.
gr. 1963 og er það veitt til fjögurra
ára í senn. Börnum innan 14 ára
aldurs er ekki heimill aðgangur að
Tjarnarbakkar
lagfærðir
Á fundi borgarstjórnar var
samþykkt tillaga frá Kristjáni
Benediktssyni, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, um að við
gerð framkvæmda- og fjárhags-
áætlunar Reykjavíkurborgar fyrir
næsta ár, verði gert ráð fyrir lag-
færingum á bökkum Tjarnarinnar
meðfram Vonarstræti og Fríkirkj-
unni.
Lagfæringar á þessu svæði hafa
verið til umræðu í borgarstjórn í
mörg ár og var þessi tillaga sam-
þykkt samhljóða.
Óðinn:
slfkum tækjum nema í fylgd með
forráðamönnum. Brjóti leyfishafi
gegn þessum reglum, getur lögreglu-
stjóri svipt hann leyfinu, láti leyfis-
hafi ekki segjast við aðvörun.
Tillaga kvennaframboðsins um
að banna skuli rekstur knatt-
borða, spilakassa eða leiktækja
gegn borgun hlaut aðeins 5 at-
kvæði og því ekki stuðning. Til-
laga þeirra um að fjöldi spilakassa
og leiktækja „skuli miðast við
fjölda gesta skv. veitingaleyfi,
þannig að eitt tæki verði heimilað
pr. 50 gesti, en þó verði fjöldi
tækja aldrei meiri en 10 á stað“
hlaut heldur ekki stuðning. Breyt-
ing sú sem samþykkt var felur í
sér verulega þrengingu frá þeirri
reglu sem áður var í gildi.
Margir árekstrar í umferðinni vegna hálku
Lrennt var flutt í slysadeild eftir harðan árekstur í Hafnarfirði í gærmorgun. Fimm manna fjölskylda var í
Mazda-bifreiðinni, hjón með þrjú börn. I»au slösuðust, þó þau hafi verið með öryggisbelti, en börnin sluppu án
meiðsla — þau voru einnig með bflbelti. Ljóst er að stórslys hefði orðið, ef fólkið hefði ekki verið í beltum.
Leyfisbeiðni Ellerts B. Schram:
Kjördeildar að gera til-
lögu um afgreiðslu strax
Yngri en 14 ára
fá ekki aðgang
— segir Ólafur Jóhannesson aldursforseti, en niöurstaða þarf aö liggja fyrir áöur en forsetar veröa kjörnir
Einróma
áskorun
f FRAMHALDI af frétt Morgun-
blaðsins í gær um áskorun stjórna
tveggja Sjálfstæðisfélaga í
Reykjavík á Geir Hallgrímsson, að
gefa áfram kost á sér til for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum,
skal tekið fram, að þessi áskorun
var samþykkt einróma í stjórn
Óðins, en það kom ekki skýrt fram
í frétt blaðsins i gær.
ALÞINGI tekur strax á mánu-
dag afstöðu til óskar Ellerts B.
Schram alþingismanns um
launalaust leyfi frá störfum um
ótilgreindan tíma. Eftir setn-
ingu þingsins tekur Ólafur Jó-
hannesson aldursforseti þings-
ins við stjórn og áður en til
kjörs forseta sameinaðs Al-
þingis kemur munu kjördeildir
rannsaka kjörbréf þingmanna.
I>að verður hlutverk þeirrar
kjördeildar sem fær kjörbréf
Ellerts til athugunar að gera
tillögu um meðferð málsins og
í framhaldi af því í höndum
aldursforseta að ákveða um af-
greiðslu málsins, en niðurstaða
þarf að liggja fyrir áður en til
kosningar forseta kemur á
þeim sama fundi.
„Ég var að fá þetta bréf
Ellerts og ætla að hugsa mál-
ið yfir helgina, en ég hugsa
að kjördeild leysi úr málinu“,
sagði Ólafur Jóhannesson er
Mbl. spurði hann hvernig
staðið yrði að afgreiðslunni.
Hann kvað það rétt vera að
Alþingi yrði að taka afstöðu
til málsins strax. Kjördeild-
irnar eru þrjár samkvæmt
þingsköpum og það verður
því verkefni einnar þeirra að
gera tillögu um hvernig að
málinu skuli staðið. Ólafur
vildi ekki tjá sig um persónu-
lega skoðun sína á málinu,
enda ætti hann eftir að at-
huga gögnin. Hann kvaðst þó
ekki minnast hliðstæðu,
reyndar hefðu þingmenn oft
fengið launalaus leyfi af
persónulegum ástæðum, en
líklega hefði beiðni sem þessi
aldrei legið fyrir í upphafi
þings eins og nú.
TVeir tvítugir piltar:
f gæzlu grun-
aðir um þjófnaði
úr bifreiðum
TVEIR tvítugir piltar voru á mið-
vikudagskvöldið úrskurðaðir í viku-
langt gæzluvarðhald í Sakadómi
Reykjavíkur vegna rannsóknar
Rannsóknalögreglu ríkisins á þjófn-
aði úr bifreiðum. Að undanförnu
hefur talsvert borið á, að stolið væri
úr bifreiðum í Reykjavík og þá eink-
um hljómflutningstækjum og er um
að ræða mikil verðmæti.
Grunur beindist að piltunum
vegna rannsóknar RLR á þjófnað-
armáli. í fórum annars piltsins,
sem áður komið hefur við sögu hjá
RLR, fannst þýfi, — þar á meðal
hljómflutningstæki, og voru þeir
handteknir í kjölfarið. Grunur
leikur á að piltarnir hafi verið all-
aðsópsmiklir í að stela verðmæt-
um úr bifreiðum. <
I gæzlu vegna
þjófnaðar úr
hótelherbergi
UNGUR maður var í gær úrskurðað-
ur í viku gæzluvarðhald vegna rann-
sóknar Rannsóknarlögreglu ríkisins
á þjófnaði úr hótelherbergi á Hótel
Loftleiðum. Aðfaranótt fimmtudags-
ins var farið inn f hótelherbergi, sem
útlend hjón höfðu á leigu og var
6.500 krónum stolið og 60 sterlings-
pundum. Herbergið mun hafa verið
ólæst. Maðurinn, sem var úrskurð-
aður í gæzluvarðhald, hefur áður
komið við sögu hjá RLR.
,,Fa) hef reynt að formúlera ýmislegt
betur og fellt niður tvítekningar“
Spjallað við Halldór Laxness um
útkomu Gerska ævintgrsins nú
„Já, þykja mönnum þetta merk
tíðindi?" sagði Halldór Laxness,
þegar Mbl. ræddi við hann um
nýja útgáfu á Gerska ævintýrinu,
sem kemur út hjá Helgafelli fyrir
jólin. Bókin kom út 1938 og hefur
verið ófáanleg í áratugi. Mbl.
spurði Halldór um gerska ævintýr-
ið og hvernig sú bók var unnin á
sínum tima.
— Ja, það er nú svo feikilega
langt síðan þetta var. Og skrifað
á löngum tíma. Ég skrifaði nót-
ísur, stundum í kompur, eða laus
blöð og á ferð og ílugi, stundum í
járnbrautarlestum, eða á hótel-
um þar sem ljósadýrðin var svo
mikil í loftinu, að ég gat naum-
ast lesið hvað ég var að skrifa.
Þannig var nú unnið að þessu.
Ég var með skáldsögu í smíðum
samtímis, Höll sumarlandsins
og hún gekk fyrir og ég lauk
henni á undan. En síðan vann ég
úr þessum búnka. Tók verkið
ekki mjög alvarlega. Þessu var
svona hrönglað saman og ekki
vandað mikið til og það var ekki
nógu góður stíll í frásöguninni
en ég setti þetta saman, gerði
kapitulaskipti og eitthvað
álíka .. ég man ég var að þessu
í Reykholti í Borgarfirði, eftir að
ég hrökklaðist frá Laugarvatni,
þar sem allt varð krökkt af
sumargestum. En þessi bók er
hálf ófullburða í sinni fyrstu
gerð, skrifuð í einum logandi
hvelli. Svo að ég tók mig nú til,
redigeraði henni, felldi úr endur-
tekningar og held ég hafi
kannski lagað tímasetningar og
ýmislegt þar sem ég hafði verið
rangt uppfræddur. Hvort það
hafi verið mikil vinna nú? Ja,
eiginlega. Þessi bók er eiginlega
búin til úr loftsteinum á sínum
tíma, svo að það fór dáiítill tími
í að yfirfara hana. Ég reyndi að
formúlera ýmislegt betur. Jú, ég
ákvað að gera þetta vegna þess
að menn hafa margsinnis komið
að máli við mig — og meira að
segja gert sér ferðir til mín langt
að til að spyrja mig hvort ég ætti
ekki þessa bók. Það hef ég rekið
mig á.
Halldor Laxness
Hvort bókin hafi valdið umtali
þá og hvort ég haldi hún geri það
nú? Það voru nú aðallega skáld-
sögurnar mínar sem voru um-
deildar — og svo kannski Al-
þýðubókin, sem er nú eiginlega
barnabók. En svona frásagn-
arbók ... ja, hún var líklega ekki
gefin út í mjög stóru upplagi og
seldist fljótt — hvarf alveg af
markaðnum. Og ég get ekki
ímyndað mér að hún færi að
vekja umtal nú. Efnið er ekki
lengur aktúelt, en mér fannst ég
ekki geta skorast undan því að
hún kæmi út aftur vegna þess að
margt fólk hefur áhuga á henni
og kvartar að fá hana ekki. Á
sínum tíma var hún ekki samin
við heppilegustu skilyrði og í
fjölbreyttu umhverfi. Ég ímynda
mér að hún sé betur formuð nú,
þótt ég hafi ekki breytt — heldur
gert ákveðnar umbætur á henni.