Morgunblaðið - 08.10.1983, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983
14
ÞINGSPJALL
Foraeti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, setur 106. löggjafarþing-
ið nk. mánudag.
Aldursforseti þingsins, Ólafur Jó-
hannesson, stýrir fyrsta fundi og
minnist látinna þingmanna.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ:
Fékk hann þingsetningarhugmynd
sína frá sjenskum vinnuveitendum?
Sr. Árni Pálsson, sóknarprestur í
Kópavogi, predikar við þingsetn-
ingarguðsþjónustuna.
106. löggjafarþing íslendinga:
Þingsetning innanhúss
— hópíundur utan veggja
Þrettán nýir þingmenn — tveir nýir þingflokkar
— Frumvarp að fjárlögum ársins
1984 verður fyrsta málið sem lagt
verður fyrir 106. löggjafarþing Is-
lendinga, sem kemur saman til
starfa á nk. mánudag. Þjóðhagsáætl-
un fyrir nssta ár og frumvarp til
staðfestingar á bráðabirgðalögum
fylgja í kjölfarið. Lánsfjáráctlun
1984 verður vsntanlega lögð fram
áður en fjármálaráðherra flytur fjár-
lagarsðu sína. Þá má vsnta stjórn-
arfrumvarps til breytinga á húsnsð-
islögum snemma þings.
— Margt hefur breytzt frá því
Alþingi var slitið á sl. vori. Þjóðin
hefur kosið nýtt þing með nýju yf-
irbragði. Ný ríkisstjórn hefur
setzt að völdum. Þingflokkar
verða nú sex talsins í stað fjög-
urra lengst af áður. Þrettán ein-
staklingar, sem ekki áttu sæti á
liðnu þingi, bætast í hóp „lands-
feðra". Níu konur skipa' nú þing-
sæti eða þrefalt fleiri en í fyrra.
Ein þeirra, Ragnhildur Helgadótt-
ir, er jafnframt menntamálaráð-
herra. Framsóknarflokkurinn
einn hefur nú enga konu í þingliði
sínu.
Fyrsti fundur Sam-
einaðs þings
Að venju sitja þingmenn guðs-
Starfsemi þingsins fer að stórum hluta fram í þingnefndum (5 í S.þ. og 9 í hverri þingdeild) og þingflokkum. Hér má
sjá formenn þingflokka á sl. þingi: Ólaf G. Einarsson (S), Pál Pétursson (F), Ólaf Ragnar Grímsson (Abl.) og Sighvat
Björgvinsson (A). Tveir hinna síðasttöldu náðu ekki endurkosningu til þings á sl. vori.
þjónustu í dómkirkju áður en
þingsetning fer fram. Þessi tvö
öldnu hús, dómkirkjan og þing-
húsið, sem svo lengi hafa staðið
hlið við hlið í hjarta Reykjavíkur,
setja enn svip sinn á framvindu
mála í þjóðlífinu. Séra Árni Páls-
son, sóknarprestur í Kópavogi,
predikar.
Að lokinni guðsþjónustu ganga
þingmenn til fundar í Sameinuðu
þingi. Dagskrá hans verður hefð-
bundin, samkvæmt þingskapa-
ákvæðum, og formföst:
• Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, les forsetabréf
um samkomudag þingsins og
ávarpar þingheim.
• Aldursforseti þingsins, ólafur
Jóhannesson, tekur síðan við
fundarstjórn, samkvæmt þing-
sköpum.
• Aldursforseti minnist látinna
þingmanna: Eðvarðs Sigurðsson-
ar, Gunnars Thoroddsen, Sigurðar
Thoroddsen og Vilmundar Gylfa-
sonar.
• Þingmenn ganga eftir hlutkesti
í þrjár jafnfjölmennar kjördeildir.
Þær rannsaka kjörbréf þing-
manna: „fyrsta deild fær annarri
deild, önnur deild þriðju deild og
þriðja deild fyrstu deild kjörbréf
þeirra þingmanna, sem eru í
hverri þeirra fyrir sig.“
• Nýir þingmenn vinna eiða eða
drengskaparheit að stjórnarskrá
lýðveldisins.
• Síðan er kosinn forseti og fyrsti
og annar varaforseti Sameinaðs
þings. Ef að líkum lætur fá
sjálfstæðismenn forseta Samein-
aðs þings og forseta efri deildar en
framsóknarmenn forseta neðri
deildar. Þingflokkur sjálfstæð-
ismanna velur forsetaefni sín á
morgun, sunnudag, en framsókn-
armenn hafa þegar ákveðið að
bjóða Ingvar Gíslason fram sem
forseta neðri deildar. Líklegt verð-
ur að telja að stjórnarandstöðu
verði gefinn kostur á fyrsta vara-
forseta, bæði þingdeilda og Sam-
einaðs þings. — Forsetar eru verk-
stjórar þingsins og húsbændur
starfsliðs þess.
• Þá verður kosin kjörbréfanefnd
fyrir komandi þinghald.
• Loks ber að velja til efri deildar
á fyrsta fundi Sameinaðs þings.
Hverjum þingflokki er skylt að til-
nefna á lista þá tölu þingmanna
sinna, er honum ber í deildinni í
hlutfalli við atkvæðamagn hans í
Sameinuðu þingi. Tuttugu þing-
menn skipa efri deild, fjörutíu þá
neðri. Ekki er víst að valið verði til
efri deildar á mánudag. Ef ekki,
verður fundi frestað og efri deild
skipuð á framhaldsfundi síðar í
vikunni.
Aldursforsetar þingdeilda
stjórna síðan með svipuðum hætti
fyrstu fundum þeirra, sem vænt-
anlega verða haldnir nk. þriðju-
dag.
Notaðir
í sérf lokki
Plymouth Volaré Premier 79
Kom nýr á götuna ’81. Ekinn aö-
eins 16.000 km. Svo aö segja nýr
amerískur bíll á frábæru verði.
Daihatsu Charade ’80
Laglegur bíll. Sami eigandl frá
upphafi.
6
MAHAOk,
4BYRGÐ
Skoda 120 GLS, hvítur, Skoda
vínrauöur, Skoda 120 GLS '81,
gulur, Skoda 120 LS '81, rauö-
brúnn. Allt bílar meö 6 mán.
ábyrgð og á góðum kjörum.
Mercedes Benz 280 St
3,5 V8 árg. ’72. Lýsingarorö
óþörf. Rótti bíllinn fyrir hlnn
dæmigeröa Benz-sjúkling.
Station ’80
6 cyl., sjálfsk.
m/vökvastýri. Út-
varp/segulband.
CHRYSI.KR
SK®DA
•TTtetr
Opið 1—6 í dag
JÖFUR HF ________
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600