Morgunblaðið - 08.10.1983, Side 18
18 • MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER1983
Ásmundarsalur við Freyjugötu. Þar var fyrirtækið til húsa Grettisgata 16—18. Þar var starfsemin í 23 ár, 1945—1968. Bræðraborgarstígur 7—9. f þessum húsum var starfsemin árin
1943—1945. 1968—1981.
Prentsmiðjan Oddi hf. 40 ára:
Á í fiillu tré við fullkomnustu
prentsmiðjur erlendis
— segir Þorgeir
Baldursson
forstjóri
FYRIR 40 árum, þann 9. október,
hófu þrír ungir prentarar starf-
rækslu prentsmiðju í einu horni
Ásmundarsalar við Freyjugötu í
Reykjavík. Prentararnir þrír voru
einu starfsmenn fyrirtækisins og
vélakosturinn var setjaravél og lítil
bókapressa. Nú, 40 árum seinna, er
Prentsmiðjan Oddi hf., en það nafn
var prentsmiðjunni gefið í upphafi,
orðin stærsta prentsmiðja landsins,
sú sem ræður yfir fullkomnustum
búnaði af þeim prentsmiðjum sem
fást við almennt prentverk og starfs-
mcnnirnir orðnir 130.
Stofnendur Prentsmiðjunnar
Odda hf. voru Baldur Eyþórsson,
Björgvin Benediktsson og Ellert
Ág. Magnússon. Ellert seldi þó
fljótlega sinn hlut í fyrirtækinu,
Björgvin starfar þar enn þann dag
í dag sem verkstjóri og Baldur var
forstjóri fyrirtækisins frá fyrsta
degi þar til hann lést á síðastliðnu
ári. Á sjötta áratugnum kom Gísli
Gíslason, stórkaupmaður í Vest-
mannaeyjum, inn í fyrirtækið og
var hann stjórnarformaður þess
þar til hann lést árið 1980. Björg-
vin og fjölskyldur Baldurs og
Gísla eiga fyrirtækið í dag.
Björgvin er stjórnarformaöur og
Þorgeir Baldursson, sonur Baldurs
Eyþórssonar, er forstjóri. Tók
hann við þegar faðir hans lést í
fyrra.
Úr Ásmundarsal flutti fyrir-
tækið fljótlega að Grettisgötu 16.
Það hafði í fyrstu eina hæð húss-
ins til umráða en ekki leið á löngu
þar til allt húsið var komið undir
starfsemina, svo og ýmis nær-
liggjandi hús. Var það húsnæði
orðið mjög óhentugt og árið 1968
var keypt 5 hæða hús að Bræðra-
borgarstíg 7. Var talið að þar með
Baldur Eyþórsson, einn stofnenda
og forstjóri 1943—1982.
Björgvin Benediktsson, verkstjóri,
einn stofnenda og stjórnarformaöur
frá 1980.
Gísli M. Gíslason, stórkaupmaður í
Vestmannaeyjum, stjórnarformaður
1952—1980.
Þorgeir Baldursson, forstjóri frá
1982.
Starfsfólkið á Grettisgötunni árið 1963.