Morgunblaðið - 08.10.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983
19
Gamla tæknin.
væri fyrirtækið komið í framtíð-
arhúsnæði. Eftir að flutt var á
Bræðaraborgarstíginn varð mikil
bylting í prenttækninni. Fyrir-
tækið tók upp offsetprentun og
mikil aukning varð í framleiðslu
tölvupappírs. Svo mikil aukning
varð í framleiðslu fyrirtækisins að
starfsemin sprengdi húsnæðið
utan af sér á 5 árum. Þá var húsið
við hliðina keypt, Bræðraborg-
arstígur 9, sem einnig var 5 hæða
hús og það tekið undir starfsem-
ina. Þrátt fyrir þessa miklu viðbót
var svo komið árið 1979 að hús-
næðisskortur var farinn að standa
rekstrinum fyrir þrifum. Þar var
ekki hægt að koma fyrir þeim vél-
um sem nauðsynlegar voru orðnar
til að svara vaxandi samkeppni,
ekki síst erlendis frá. Var þá af-
ráðið að byggja framtíðarhús sem
sérstaklega væri hannað sem
prentsmiðjuhúsnæði. Fyrsta
skóflustungan að Höfðabakka 7
var tekin í ágúst 1979 og 20 mán-
uðum síðar, vorið 1981, var starf-
semin þar komin í fullan gang.
Starfsemin í dag
Blaðamaður hitti Þorgeir Bald-
ursson, forstjóra Odda, og fékk
hjá honum ofangreinda sögu
fyrirtækisins. Hann sýndi blm.
einnig fyrirtækið. Prentsmiðju-
húsið að Höfðabakka 7 er röskir
5.000 fermetrar að stærð. Prent-
smiðjan er öll á einu gólfi og varð
við flutninginn í nýja húsið mikil
breyting á vinnuaðstöðu frá því
sem var í fimm hæða húsunum við
Bræðraborgarstíg. Segir það sig
sjálft þegar í gegnum prent-
Framleiðsluferlinum lokið og fram-
leiðsluvaran fullgerð, í þessu tilviki
vönduð viðhafnarútgáfa af ferðabók
Sveins Pálssonar.
smiðjuna fara hátt í þúsund tonn
af pappír á ári.
Samhliða flutningunum í nýja
húsið að Höfðabakka 7 var aukið
verulega við tækjakostinn. Er
prentsmiðjan nú tæknivæddasta
prentsmiðja landsins að sögn
Þorgeirs og hefur það sýnt sig að
Séð yflr einn prentsmiðjusalinn að Höfðabakka 7.
MorgunblaAið/ÓI.K.Mag.
Ein fullkomnasta prentvél landsins. Hún getur prentað fjóra liti í sömu umferðinni og er með fullkomnum
tölvustýribúnaði. Morgunblaðió/ÓI.K.Mag.
hún hefur í fullu tré við fullkomn-
ustu prentsmiðjur hvar sem er í
heiminum. Erlendar prentsmiðjur
hafa á undanförnum árum verið
að seilast hér inn á markað og
sagði Þorgeir að Oddi hf. hefði nú
náð inn í landið aftur verulegum
verkefnum sem íslenskar prent-
smiðjur hefðu ekki ráðið við áður
og misst út úr landinu. Ekki er
stöðvað við það, Oddamenn hygga
á meiri landvinninga. Þeir hafa
tekið að sér talsvert af prentun
fyrir erlenda aðila, aðallega fyrir-
tæki í Noregi og þó sérstaklega í
Færeyjum. Fyrirtækið hefur
prentað 10—15 bókatitla fyrir
Færeyinga á ári undanfarin ár og
nú er verið að vinna að miklu
verki fyrir færeyskt forlag, vand-
aðri listaverkabók, sem gefin
verður út á 8 tungumálum. Þessar
vikurnar er fyrirtækið með í at-
hugun að taka að sér litprentun
bæklinga í töluvert miklu upplagi
fyrir bandarískan aðila. Ef samn-
ingar nást verður pappírinn í
verkið keyptur í Evrópu, prentað á
hann hér og það síðan flutt vestur
um haf. Sagði Þorgeir að mikill
áhugi væri fyrir því innan fyrir-
tækisins að fá að takast á við
þetta verkefni en það skýrðist á
næstu vikum hvort af yrði.
Tæknivæddasta prent-
smiðja landsins
Af fullkomnum tæknibúnaði
Prentsmiðjunnar Odda hf. má
nefna fullkomin tölvusetningar-
búnað sem gerir prentsmiðjunni
kleift að taka við texta frá öðrum
tölvum, annaðhvort með símalínu
eða segulmiðli. í prentuninni er
það með afkastamiklar vélar bæði
í bóka- og blaðaprentuninni, með-
al annars litprentunarvél með
fullkomnum tölvustýribúnaði sem
prentar 4 liti í sumu umferð en
hún er sú eina sinnar tegundar
hér á landi. Við framleiðslu tölvu-
eyðublaða hefur fyrirtækið full-
komnustu vélar hérlendis. Veita
þær fjölbreytta möguleika í prent-
un eyðublaðanna, til dæmis eins
marga liti og menn óska, sem er
alveg nýtt hér á landi. I bókband-
inu hefur smám saman verið
byggt upp vélvætt bókband og er
stutt í að komin verði ein samfelld
bókbandslína frá saumavél i pökk-
un en hingað til hefur bókband
verið mikið til handunnið. Á þetta
að auka framleiðnina og gera bók-
ina ódýrari í framleiðslu þannig
að hún verði samkeppnishæfari í
þeirri sívaxandi samkeppni sem
hún á í.
í gegnum prentsmiðjuna fara
hátt í eitt þúsund tonn af pappír á
ári. Framleiddir eru 150 til 200
bókatitlar á ári og rúmlega 100
tölublöð tímarita. Prentun tölvu-
eyðublaða er einnig talsvert stór
hiuti framleiðslunnar en prent-
smiðjan tekur að sér jafnt smærri
sem stærri verkefni. Símaskráin,
sem er viðamesta prentverkefni á
íslandi, er prentuð í Odda svo ein-
stakt dæmi sé tekið.
Baldur í Odda var hugsjóna-
maður sem sá drauma sína rætast.
Skömmu áður en hann lést var
fyrirtækið, sem hann stofnaði
fyrir 40 árum og stjórnaði alla tíð,
flutt í nýtt glæsilegt prentsmiðju-
hús. Starfsmenn sem í upphafi
voru 3 voru orðnir 130, húsnæðið
sem var horn í húsi við Freyjugötu
var nú orðið 5.000 fermetra sér-
hönnuð prentsmiðjubygging og
fullkomnasta tækni hafði leyst
gömlu blýsetningarvélina og bóka-
pressuna af hólmi.
HBj.
LAUGARDAGUR
OPtÐim 10*4
EIÐISTORG111
Víiruraarkaðuriiiii hf.