Morgunblaðið - 08.10.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983
21
breyttu hlutverki fyrir þá grein
sem áður gegndi ein lykilhlut-
verki. Atvinnurekendur og laun-
þegar í hinni rótgrónu grein geta
hins vegar beitt pólitískum krafti
sínum til að koma í veg fyrir að-
lögun og uppbyggingu á nýjum
sviðum, ef þeir telja að slíkt rekist
á þrönga eiginhagsmuni.
En fleira kemur til. Gildi góðrar
menntunar og víðtækrar þekk-
ingar fyrir atvinnulífið felst eink-
um í því, að þekkingin gerir okkur
kleift að lesa framtíðina og bregð-
ast vel við því, sem hún færir
okkur. f þjóðfélögum, sem byggja
allt sitt á einni vörutegund, er
hins vegar hætt við, að reynsla og
starfsþekking sé fremur lítil nema
á þröngu sviði. Þetta á ekki síst
við þar sem nýting fágætra eða
mjög gjöfulla náttúruauðlinda er
undirstaða velmegunarinnar. Þjóð
sem býr við slíkar aðstæður má
líkja við fólk sem erfir mikla fjár-
fúlgu. Það er yfirleitt duglegt að
eyða peningunum, en hefur ekki
þá reynslu, þekkingu og aðstöðu
sem þarf til að safna auði á ný
með starfi hugs og handa, þegar
sjóðurinn er tómur.
Saga Nýfundnalands
og framtíð Islands
Á 19du öld jókst mannfjöldi á
Nýfundnalandi ört, en verðmæti
útflutnings miðað við höfðatölu
minnkaði. Aukin framleiðni eða
afköst þeirra sem veiðar stunda
byggjast á nýjum og stórvirkum
veiðitækjum og tækni, en jafn-
framt á sókn og ástandi fiski-
stofna. Ef mið eru fullnýtt, verður
framleiðni (afköst á mann) ekki
aukin nema þeim fækki sem veið-
arnar stunda. Þeir sem hætta
veiðum og nýliðar á vinnumarkaði
verða þá að leita sér vinnu í öðrum
atvinnugreinum eða flytjast af
svæðinu til annarra héraða eða
landa.
Við þessar aðstæður, einkum í
lýðræðisríki, er hætt við að nauð-
synleg aðlögun eigi sér ekki stað.
Það leiðir til offjölgunar við veið-
ar, sem merkir að notaður er meiri
mannafli og fleiri veiðitæki en
þörf er á til að veiða skynsamleg-
an hámarksafla. Ef slíkt gerist, er
um að ræða dulbúið atvinnuleysi,
en jafnframt má búast við því, að
hinn mikli sóknarþungi leiði til
rányrkju og eyðingar fiskistofna.
Niðurstöður nokkurra hagfræð-
inga og sagnfræðinga, sem telja
sig hafa fundið söguleg tengsl
milli hagvaxtar er byggist ein-
göngu á einhæfum útflutningi og
skammvinnra blómaskeiða, eru að
ýmsu leyti lærdómsríkar fyrir
okkur íslendinga. Enginn skyldi
þó ætla að þarna sé um grjóthart
vísindalögmál að ræða, eins og til
dæmis þyngdarlögmálið, enda
þótt einhver sannleikskjarni
kunni að felast í þessari tilgátu.
Merking orðsins láglaunasvæði
er fremur afstæð, eins og sjá má
af því, að orðið er notað bæði um
Indland og Nýfundnaland, enda
þótt lífskjörin á Indlandi séu
margfalt lakari en á austurströnd
Kanada. Láglaunasvæði eiga það
sameiginlegt, að fólk, sem á þess
kost, leitast við að flytjast burt af
þeim, þangað sem kjörin eru betri.
Flestir munu vera sammála um,
að mikilvægt sé að hafa góðan
skilning á því hversvegna blóm-
legar byggðir geti breyst í lág-
launasvæði. Þar má margt læra af
hagsögunni, til dæmis sögu Ný-
fundnalands. Það er einnig áríð-
andi, að menn geri sér grein fyrir
því að almenn lífskjör á láglauna-
svæði verða ekki bætt með hefð-
bundinni kjarabaráttu, jafnvel
þótt allir fari í verkfall. Á lág-
launsvæði eru meðaltekjur íbú-
anna lágar, og það meðaltal breyt-
ist ekki þótt skiptingu tekna milli
þjóðfélagshópa sé breytt. Stað-
reyndin er sú, að almenn velmeg-
un byggist ávallt á öflugu atvinnu-
lífi og batnandi lífskjör á auknum
afköstum við framleiðslu.
Dr. Þríiiin Eggertsson er próíessor
rið riðskiptadeild Háskóla íslands.
Mig
eftir Gísla Jónsson
Síðan ríkisstjornin gerði þá fá-
heyrðu skyssu að kveðja ekki sam-
an alþingi strax í júní, hefur hún
gert þjóðinni flest til þurftar og
sjálfri sér til sóma. Best er að við-
urkenna það og láta hana njóta
þess sem hún hefur gott gert.
Fyrst ber að sjálfsögðu að
þakka leiftursókn gegn verðbólgu,
sókn sem sýnist ætla að bera ár-
angur og hefur gefið mörgum von,
þeim sem áður var næsta vonlaus.
Óþarfi er að taka mörg dæmi um
skaðsemi verðbólgunnar. Skóla-
meistari minn, Tryggvi Gíslason,
er maður óvílsamur og miklar
ekki fyrir sér smámuni. En svo
segir í viðtali við hann í íslendingi
15. september sl.:
„Það segir sig sjálft, að í þessari
æðislegu verðbólgu, þá veit naum-
ast nokkur maður sitt rjúkandi
ráð,“ sagði Tryggvi. „Og þó starfs-
menn menntamálaráðuneytis og
fjármálaráðuneytis séu allir af
vilja gerðir til þess að leysa þessi
mál, þá geta þeir það ekki, því þeir
sjá ekki fram úr þessu." Tryggvi
sagði, að það væri fyrir velvild og
langlundargeð yfirmanna Hita-
veitu og Rafveitu og annarra í
bænum, sem skólinn skuldaði
stórfé, að hægt væri að halda
áfram rekstri skólans.
„Öll rekstrargjöld voru á eld-
gömlu verðlagi þrátt fyrir 120%
hækkun á raforku og heitu vatni
og 150% hækkun á póstburðar-
gjöldum og símagjöldum," sagði
Tryggvi, „en á sama tíma vorum
við að burðast með tölur, sem voru
orðnar ársgamlar í sumar. Af
þessum sökum er þetta ein hringa-
vitleysa frá upphafi til enda,"
sagði Tryggvi Gíslason að lokum."
Þetta var viðtal íslendings við
Tryggva Gíslason, og ég þarf ekki
frekar vitnanna við um ástandið.
Þetta er síst ofmælt. Og verð-
bólga, sem komin er á þetta stig,
er ekki aðeins efnahagslegur böl-
valdur, hún er banvæn öllu lýð-
ræði. Við þurfum ekki að taka
mörg dæmi. Skömmu fyrir Hitler
beygðu betlarar í Þýskalandi sig
ekki eftir þúsund marka seðli.
Verðbólga mældist 400—500 af
hundraði, hvernig sem það má nú
vera, í Chile, áður en núverandi
alræðisstjórn þar komst á laggirn-
ar.
Veittu menn því ekki athygli,
fleiri en ég, í vonleysinu fyrir daga
þessarar ríkisstjórnar, að ýmsir
voru farnir að svipast um eftir
„Hinum sterka manni". Við segj-
um stundum um það sem verst er
erlendis: Þetta gerist aldrei hér.
En það hefur ýmislegt vont gerst
hér, og ég er sannfærður um að
akur einræðis var tekinn að plægj-
ast hér á landi, um það bil sem
Akureyri:
15 umferðar-
óhöpp í um-
ferðarvikunni
Akureyri, 3. oklóber.
UMFERÐARVIKU á Akur-
eyri lauk nú um helgina. Ým-
islegt var gert af hálfu opin-
berra aðila, sem stuðla skyldi
að aukinni umferðarmenningu
í bænum. Umferðaróhöpp
urðu þó 15 talsins í þessari
umferðarviku og er það ná-
lægt meðaltali undanfarinna
ára, þannig að ekki kom áróð-
urinn að gagni að því leyti.
— G.Berg.
varðar um það
Gísli Jónsson
„Ég fæ ekki betur séð
en ríkisstjórninni sé að
takast að veita okkur
von í stað örvæntingar,
vegna þess að hún virð-
ist ætla að horfast í
augu við staðreyndir og
standa og falla með
stefnu sinni.“
núverandi ríkisstjórn tók að glíma
við verðbólgudrauginn.
Vísitölubætur á laun voru della,
svo rækilega sem vísitalan var
föisuð. Vísitölubætur á laun komu
engum launþega til góða. Þær
gerðu aðeins illt verra. Mig varð-
aði ekkert um það sem launþega,
þegar verið var að þrasa eða semja
um 10,20 eða 30% verðbætur í
100% verðbólgu og undir kolröng-
um skattalögum. Mig varðaði hins
vegar um fast verðlag og þær ráð-
stöfunartekjur sem ég átti eftir,
þegar ég hafði greitt þá skatta
sem enn hefur ekki gefist svigrúm
til að leiðrétta að marki.
En nú varðar mig mest um, að
verðbólguvitleysunni er að ljúka.
Verk hafa tekið við af orðum ein-
um og mesta hættan á stjórn
„Hinna sterku manna eða manns"
sýnist liðin hjá.
Mig varðar líka mjög mikið um
lækkun vaxta, svo að lán, sem ég
hef reynt að borga af, hækki ekki
eins og selshausinn á Fróðá sem
gekk því meir upp sem hann var
oftar barður ofan.
Mig varðar um lagfæringar í
húsnæðismálum, því að allt í
kringum mig er fólk að sligast
undir óheyrilegum byrðum. í síð-
ustu ríkisstjórn var takmarkaður
áhugi á því að greiða götu fólks
sem búa vildi i eigin húsnæði.
Mig varðar um að stöðvuð sé hin
ægilega skuldasöfnun erlendis
sem er að ríða efnahagslegu
sjálfstæði okkar á slig. Og mig
varðar um stöðugt gengi í stað
linnulítillar rýrnunar gjaldmiðils
okkar.
En umfram allt varðar mig um
það, að bæði ég og aðrir lands-
menn missi ekki vonina, fari ekki
að trúa því að íslandi verði aldrei
skaplega stjórnað framar með lýð-
ræðislegum hætti.
Ég fæ ekki betur séð en ríkis-
stjórninni sé að takast að veita
okkur von í stað örvæntingar,
vegna þess að hún virðist ætla að
horfast í augu við staðreyndir og
standa og falla með stefnu sinni.
Hún á enn leikinn, hún á enn
frumkvæðið og hún á enn samúð
og skilning, ef hún heldur í horf-
inu en hrekst ekki af réttri leið.
Endurtekin orð verkalýðsrek-
enda um „framsækna atvinnu-
stefnu" og nauðsyn þess „að vinna
sig út úr vandanum" hafa ekki
verið skýrð nægilega. Þau eru
fyrir mér innantóm slagorð og
höfða ekki til mín sem launþega.
30.9. ’83
Gísli Jónsson er kennari rið
Menntaskólann á Akureyri og einn
at helstu Corystumönnum SjálC-
stæðisClokksins þar.
Hefurðu velt
skiptidæminu
okkar fyrir þér?
Pad er nefnilega ótrúlega auðvelt
að skipta í nýjan Daihatsu
Hér er eitt af mörgum hugs-
anlegum dæmum:
l’ú cítl I)nituit.\u Clumitle 80
Við tökum hann upp í /yrir t. d.
kr. 115.000.00
Nýr Charade '83 kr 227 400,00
/riMt/n/tö t ttt’fði cr
RytWorn, skr<inin«L Uilr«*i<\«sk.illnr. ny núint’t
ckj fullur binktir <if bensmi
VcrOið cr midrið við toll <><? bankagengi
Hvcrnig bíl átt þú? ^
Búðu til þitt eigið daemi og sýndu okkur.
Mismunur
Eflirstöðvar
kr 112.400,00
kr 50.000,00
kr 62.400,00
Við ræðurn okkar i milli
greiðslu eflirstöðvanna.
Opið í allan dag og eftir hádegi á morgun.
ÞETTA ER URVALID OG VERÐIÐ:
Daihatsu Runaboul XTE 3 dyra, 4 gúa kr. 227.400,00
Daihatsu Runaboul XTE 3 dyra, 4 gira, special kr. 228.950,00
Daihatsu Runabout XTE 3 dyra, 5 gíra kr. 230.100,00
Daihatsu Runaboul XTE 3 dyra. sjálfskiplur kr. 251.600,00
Daihatsu Charade XTE 5 dyra, 4 grra kr. 239.0001»
Daihatsu Charade XTE 5 dyra, 4 gira, special kr. 240.550,00
Oaihatsu Charade XTE 5 dyra, sjáltskiptur kr. 251.600,00
Daihatsu Charmant LD1300 cc, 4 dyra, 4 gira kr. 255.000,00
Daihatsu Charmant LC 1300 cc, 4 dyra, 4 gira uppseldur
Daihatsu Charmant LC 1300 cc, 4 dyra, sjálfskiptur uppseldur
Daihalsu Charmant LE 1600 cc, 4 dyra, 5 gira kr. 317.650,00
Daihatsu Charmant LE 1600 cc, sjáltskiptur kr. 334.900,00
Daihatsu Charmant LGX 1600 cc, 5 gíra uppseldur
Daihalsu Charman! LGX1600 cc, syáifskiptur kr. 350.700,00
Daihatsu Tatt 4WD. 1600 cc bensinvél, m/btaeju uppseldur
Daihalsu T aft 4WD, 1600 cc bensinvél, m/stálhúsi uppseldur
Daihatsu Talt 4WD, 1600 cc bensinvél,m/tiberhúsi og sóllúgu kr. 430550,00
Daihalsu Talt 4WD, 2530 cc diesehrél, m/stálhúsi uppseldur
Daihatsu Cap Van 850, sendibiU uppseldur
ðll veré miOast viO aO bíllinn sé afgreiddur aO tullu tilbuinn til notkunar og
er þvi mnifaiiO í verOi ettirfarandi: RyOvöm, skráning, bifreiOaskattur,
ný númeraspjöld og tullur tankur af bensini.
Með bestu
kueðju
Daihatsuumbodið Ármúla 23 • Símar 85870 & 81733