Morgunblaðið - 31.03.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
Frakkland:
Hætta framleiðslu
á Citroen-„bragga“
Parib, Reuter.
CITROEN-verksmiðjurnar í Frakklandi hyggjast hætta að framleiða
Citroen 2-CV, sem hér á landi hefur gengið undir nafninu „Citroen-
braggi". Bíllinn verður framvegis eingöngu framleiddur í Portúgal.
Talsmaður fyrirtækisins sagði í
gær að verksmiðjunni í Levallois
skammt frá París, sem var reist
árið 1893, yrði lokað. Kvað hann
verksmiðjuna ekki lengur skila arði
m.a. vegna þess að sala á 2-CV
hefði dregist saman í Frakklandi.
Árið 1983 seldi fyrirtækið 26.221
bíll þessarar gerðar en í fyrra
14.008 bíla. a sama tíma jókst sal-
an utan Frakklands verulega.
Sagði talsmaðurinn biikur á loft
varðandi útflutninginn þar eð
stjómvöld í Sviss og Austurríki
hefðu nýlega sett lög um búnað í
bifreiðum til að draga úr loftmeng-
un. Citroen 2-CV er ódýrasti bíllinn,
sem framleiddur er í Frakklandi,
en innflutningur á enn ódýrarí
bílum hefur farið vaxandi með fyrr-
greindum afleiðingum.
Rúmlega 1.000 starfsmenn vinna
í verksmiðjunni í Levallois. Citro-
en-fyrirtækið áætlar að loka henni
á næsta ári. Starfsmennimir munu
margir hveijir fá ný störf innan
fyrirtækisins. Öðrum verða útveguð
störf hjá öðmm fyrirtækjum. Helm-
ingur starfsmannanna kemur frá
Norður-Afríku og verða þeir sem
vilja styrktir til að halda aftur til
síns heima.
Grænland:
Thule-búum verða
ekki greiddar bætur
Frá NJ.Bruun, Grœnlandsfréttaritara Morgfunblaðsins.
DANSKA rikisstjórnin hyggst
ekki greiða þeim fjölskyldum
Vansvefta
hlaðmaður
Nairobi, AP.
Hlaðmaður einn steinsofnaði á
laugardag þegar hann var að störf-
um í farmrými flutningavélar frá
Nígeríu á flugvellinum í Nairobi í
Kenýa. Hann vaknaði ekki fyrr en
vélin var komin upp í háloftin.
Braust hann þá út úr farmrýminu
og inn í fiugstjómarklefann. Áhöfn-
in varð felmtri slegin og ætlaði að
fara að yfirbuga manninn, en hon-
um tókst að skýra málið áður en
til þess kom. Starfsfélagar hlað-
mannsins á jörðu niðri söknuðu
hans ekki.
árið 1951 þegar Bandaríkjamenn
tóku að byggja herstöð þar.
Sérstök sendinefnd frá Thule
ræddi í síðustu viku við danska
ráðamenn, þeirra á meðal Poul
Schluter forsætisráðherra. Var
nefndarmönnum tjáð að ríkisstjórn-
in teldi að íbúamir hefðu þegar
fengið bætur þegar þeim voru feng-
in ný híbýli. Þá ítrekuðu dönsku
embættismennirnir að íbúamir
hefðu sjálfir samþykkt flutninginn
og sögðu að sérstök nefnd yrði
ekki skipuð til að rannsaka hvernig
að brottfluningi íbúanna var staðið.
Á hinn bóginn hafa nokkrir ráð-
herrar í ríkisstjóminni beitt sér fyrir
sjálfstæðri rannsókn á þessu máli.
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku landsstjómarinnar,
segir að Grænlendingar allir styðji
bótakröfur íbúanna í Thule. Motz-
feldt telur að Bandaríkjastjóm beri
að stofna sérstakan sjóð í þessu
skyni. Mun Uffe Ellemann-Jensen,
utanríkisráðherra Danmerkur, hafa
heitið því að þrýsta á bandarísk
stjómvöld um stofnun þessa sjóðs.
Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands (yzt til hægri) snýr heim á sunnudag, eftir tveggja mánaða dvöl
í Bandaríkjunum, þar sem hann gekkst undir hjartaaðgerð. Við hlið hans ganga kona hans, Semra og
lyftingakappinn Naim Suleymanoglu, sem flýði fyrir skömmu til Tyrklands frá Búlgaríu.
Dregur úr hættu-
ástandí á Evjahafi
Ankara. Rputpr. AP.
Ankara, Reuter, AP.
NAZMI Akiman, sendiherra
Tyrklands í Grikklandi, gerði í
gær stjórn sinni grein fyrir við-
ræðum sínum við Andreas
Papandreou, forsætisráðherra
Grikklands. Ekki var skýrt frá
efni þessara viðræðna, en talið
víst, að þær hefðu orðið til þess
að draga verulega úr þeirri
spennu, sem kom upp milli þjóð-
anna í síðustu viku.
Tyrkneska skipið, „Sismik 1“
hélt áfram rannsóknum sínum á
tyrknesku hafsvæði fyrir norðan
Eyjahaf. Grísk herskip fylgdust
með því úr fjarlægð, en héldu sig
utan við landhelgi Tyrklands.
Talið er, að bæði Bandaríkja-
menn og Bretar hafi átt mikinn
þátt í því að draga úr hættuástandi
milli þjóðanna með sáttaumleitun-
um sínum. Þá er ljóst, að stjómvöld
bæði í Grikklandi og Tyrklandi hafi
í reynd viljað koma í veg fýrir hem-
aðarátök í lengstu lög. Haft var
eftir Vahit Halefoglu, utanríkisráð-
herra Tyrkja: „Við erum í stöðugu
sambandi hvorir við aðra.“
Carrington lávarður, aðalfram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins sagði í gær, að gríska
stjómin hefði hafnað tilboði hans
um að taka að sér að vera sátta-
semjari í deilunni. Hann skoraði
hins vegar á deiluaðila að sýna
ítrustu varkámi. Sagði hann, að það
væri ekki síður mikilvægt fyrir
NATO í heild en Grikki og Tyrki
sjálfa, að endir yrði bundinn sem
fyrst á deiluna.
Háttsettur tyrkneskur embættis-
maður sagði, að stjómvöld í Aþenu
hefðu látið sefast við yflrlýsingu
Turgut Ozals, forsætisráðherra
þess efnis, að „Sismik 1“ yrði ekki
sent inn á alþjóðlegt hafsvæði á
Eyjahafi, ef Grikkir gerðu slíkt hið
sama.
Ozal, sem er 60 ára að aldri, kom
heim til Tyrklands á sunnudag eftir
tveggja mánaða dvöl í Bandaríkjun-
um, en þar hafði hann dvalið sér
til lækninga. Mikill manfjöldi fagn-
aði honum við heimkomuna og víða
um landið voru hátíðahöld í tilefni
hennar. Er Ozal steig út úr flugvél-
inni, sem flutti hann heim, sagði
hann m. a.: „Deilan við Grikki hef-
ur snúizt okkur í hag.“
Grikkland:
Herferð gegn mestu
reykingamönnum Evrópu
Aþenu, Reuter.
Grikkir eru mestu reykingamenn í Evrópubandalaginu og iinnir
reykingum þar í landi lítið sem ekkert þrátt fyrir mikla herferð
samtaka gegn reykingum, sem hafa hvatt stjómina til að grípa
til aðgerða.
Um tíu milljónir manna búa á
Grikklandi og reykja þeir um
sjötíu milljónir sígarettna á dag,
að því er segir í skýrslu grísku
tóbaksvamasamtakanna.
Spyros Doxiades, forseti sam-
takanna og fyrrum heilbrigðisráð-
herra, segir að reykingar á
Grikklandi hafí aukist um 6.5
prósent á síðasta ári þrátt fyrir
mikla herferð gegn reykingum.
Stjómvöld ætla að hleypa af
stokkunum herferð gegn reyking-
um eftir nokkra mánuði en ekki
hefur verið sagt hvenær hún
hefst.
Doxiades kveður að minnsta
kosti tíu þúsund Grikki láta lífið
árlega af völdum reykinga. Sam-
kvæmt tölum yfírvalda reyki um
39 prósent fullorðinna Grikkja
sígarettur og hér sé um 36 pró-
sent aukningu að ræða á undan-
fömum tíu árum.
„Stjómin gerir ekkert til að
upplýsa fólkið ... jafnvel ráðherr-
ar og læknar reykja eins og
strompar þegar þeir koma fram í
sjónvarpi," segir Doxiades.
Doxiades var heilbrigðisráð-
herra frá áimu 1977 til ársins
1981. Hann bannaði sígarettu-
auglýsingar í útvarpi og sjónvarpi
þegar hann var í embætti og hóf
herferð gegn reykingum í skólum
og sjúkrahúsum. Einnig reyndi
hann að innleiða reyklaus svæði
í opinberum byggingum og sam-
tökum. Doxiades segir að núver-
andi stjóm virðist ekki skilja
reykingavandamaíið og grunar að
herferð sín gegn reykingum hafí
verið stöðvuð af pólitískum ástæð-
um.
„Núverandi stjóm stöðvaði alla
baráttu gegn reykingum vegna
þess að hún vill ekki að fólk muni
að stjómin á undan lét gott af sér
leiða,“ segir Doxiades.
Talsmaður heilbrigðisráðuneyt-
isins sagði að reykingar væm
alvarlegt vandamál á Grikklandi
vegna þess að ekki væri aðeins
um að ræða heilsu manna heldur
einnig efnahagsmál. Mörg þúsund
fjölskyldur lifðu af því að rækta
tóbak.
Panayotis Efstathiades, sér-
fræðingur um heilbrigðismál,
sagði að Grikkir myndu taka þátt
í þriggja ára herferð Evrópu-
bandalagsins gegn reykingum
þrátt fyrir að taka þyrfti tillit til
tóbaksiðnaðarins.
Samkvæmt heimildum í gríska
fjármálaráðuneytinu fékk ríkið
um fjörutíu milljarða króna í skatt
af sölu á tóbaki.
Reuter
Grískur verkamaður tottar sígarettu og lætur sér fátt um aðgerð-
ir stjórnvalda og einkaaðilja gegn reykingum finnast.