Morgunblaðið - 31.03.1987, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
fclk í
fréttum
Galdiirinn er að geta nýtt
sem flestar vindáttir.
-segir Jim Lowther, sem er að leggja af stað yfir Grænlandsjökul
ásamt félaga sínum Nick Hulton
Þeir Jim Lowther og Nick Hulton við brottförina til Grænlands.
Fallhlifinn sem þeir Jim Lowther
og Nick Hulton hafa með í ferð-
inni yfir Grænlandsjökul.
með tæki til að mæla hvort nú er
þensla eða samdráttur í jöklinum.
Við reiknum með að ferðin taki
44 daga. Við höfum allavega vistir
til svo langs tíma, þótt við vonum
að gangan yfir jökulinn taki ekki
nema 35—40 daga. Matarforðinn
sem hvor um sig þarf er um eitt
kíló á dag og samanstendur meðal
annars af 130 grömmum af smjöri,
100 grömmum af salami, 100
grömmum af þurrkuðum ávöxtum
og hnetum. 200 grömmum af súkk-
ulaði. Síðan er þurrmatur, sem er
léttur að ferðast með en þungur í
maga þegar maður hefur bætt í
hann vökva, því það er mjög áríð-
andi að finnast maður ekki vera
svangur þegar maður hefur nær
eingöngu snæt.t léttmeti. Þessi
þurrmatur er haframjöl, kókó og
fleira.
Smjör og salami er nauðsynlegt,
því hvorutveggja er mjög fituríkt
og gefur manni mikla orku. Það
er mjög áríðandi því kuldinn þarna
er um 35—40 frost. Við vonum alla-
vega að hann fari ekki niður fyrir
það. Síðan þurfum við mikið súkkul-
aði og sykur sem gefur orku, þó í
skemmri tíma.
Ástæðan fyrir því að verið erum
mjög bjartsýnir á að ná þessum
leiðangri á 35—40 dögum, er sú
að við höfum í ferðinni mjög góða
fallhlíf til að draga okkur þegar
vindurinn stendur beint í bakið.
Síðan höfum við með okkur í ferð-
inni tvö segl sem við notum þegar
til dæmis er hliðarvindur. Galdurinn
er að geta nýtt sér sem flestar vind-
áttir.
Síðan höfum við auðvitað skíði
og mjög stóra sleða fyrir farangur-
inn. Klæðnaðurinn er þannig, að
innst inni erum við í næfurþunnum
ullarfötum, síðan samfestingi úr
„fíberefni“ til hitaeinangrunar, þá
erum við í vindgalla og síðan í stjór-
um dúnúlpum. Eina vandamálið er
eins og alltaf, fætur og hendur."
Þess má geta, að þeir Jim Low-
ther og Nick Hulton fara yfir
jökulinn á sama stað og Friðþjófur
Nansen fór árið 1888 með sex
manna leiðangur.
TVEIR ungir háskólanemar frá
Edinborg í Skotlandi, þeir Jim
Lowther og Nick Hulton, lögðu af
stað frá Islandi til Grænlands s.l.
fimmtudag og er ætlun þeirra að
ganga á skíðum yfír Grænlandsjök-
ul. Nefnist leiðangur þeirra „British
Trans—Greenland Expedition
1987.“ Héðan var flogið til Ang-
magsalik á austurströndinni.
Leiðin sem þeir félagar ætla sér
að ganga er um 400 mílur og endar
í Straumfírði. Blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti þá félaga að máli,
rétt áður en lagt var í flugið til
Grænlands og spurði þá um ferðina.
„Ég fékk þessa hugmynd í
fyrra,“ sagði Jim Lowther, „en við
Nick höfum báðir dvalið í Austur—
Grænlandi og farið upp á jökulinn.
Það er alveg stórkostlegt. Maður
sér svo vel yfir og gerir sér mjög
vel grein fyrir einkennum lands-
lagsins. Ég spurði Nick hvort hann
vildi koma með mér og hann var
strax til í það. Hann hannar vísinda-
prógramið. Hann er reyndar að
skrifa doktorsritgerð, um samdrátt
■'** jökulhettunnar, við háskólann í
Edinborg. Hann hefur þegar tekið
þátt í tveimur leiðöngrum til Græn-
lands. Síðan var hann leiðangurs-
stjóri í ferð fatlaðra til íslands árið
1985.
Sjálfur hef ég verið leiðangurs-
stjórí hjá flokkum af ungu fólki
bæði til íslands og Grænlands. Auk
þess hef ég verið á Grænlandi í 14
mánuði við æfingar, skíða— og
klifuræfíngar með það fyrir augum
að skipuleggja vísindaleiðangra. í
þessari ferð okkar núna verðum við
LjósmyndirMorgunblaðið/Þorkell
Herrafatnaðurinn fer Ijómandi
vel á þessari dömu. Anægðir gestir að sýningu lokinni.
Hálsbindi er líka hægt að nota
sem slaufu.
oft herraföt, þær vildu t.d. nota
stóra jakka og skyrtur. Tók hún
undir orð kynnisins, Guðmundu
Jónsdóttur, er hvatt hafði konurnar
til að kíkja í fataskáp eiginmanns-
ins og athuga hvort ekki væri þar
sitthvað sem þærgætu notað. Tilva-
lið væri t.d. að nota Boss nærbuxur,
sem stuttbuxur!
Jakkar eru síðari nú en áður,
meira aðskomir og axlir áfram
stoppaðar. Kápurnar eru síðar og
ýmist víðar eða þröngar og sama
gildir um frakkana. Beinu pilsin eru
styttri en áður, en þau efnismeiri
yfirleitt víð.
Sumartískan 1987
Tískuverslun Sævars Karls Óla-
sonar, hefur að undanförnu
kynnt sumartískuna 1987 og hafa
sýningarnar farið fram í veitinga-
húsinu Arnarhóli í Reykjavík.
Sýningargestir hafa snætt ljúfeng-
an málsverð og horft á ljölbreyttan
tískufatnað frá Etienne Aigner,
Hugo Boss og Best Company, fyrir-
tækjunum. Náttúruleg efni, bómull,
hör og létt ull voru ríkjandi svo og
litagleði og djarflegar litasamsetn-
ingar. Grunntónninn í fatnaðinum
var síðan endurtekinn í fylgihlutum
s.s. töskum, skóm, slæðum, höttum,
beltum o.s.frv.
Sýningarstúlkur sýndu herra-
fatnað frá Boss og sagði Erla
Þórarinsdóttir, einn eigenda versl-
unarinnar, að slíkt tíðkaðist víða
erlendis og hefði sér þótt það ágæt-
is tilbreyting. Enda væri það
staðreynd að ungar konur keyptu