Morgunblaðið - 11.11.1987, Side 7
Sinf óníuhlj ómsveitin
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
7
Guðni Franzson leikur klar-
inettkonsert eftir Weber
Á FJÓRÐU áskriftartónleikum
Sinfóniuhljómsveitar íslands,
sem haldnir verða í Há-
skólabíói á morgnn, fimmtu-
dag, leikur Guðni Franzson
klarínettleikari í fyrsta sinn
einleik með hljómsveitinni.
Hann leikur Klarinettkonsert
númer 2 eftir Weber.
Tonleikarnir á morgun hefjast
klukkan 20.30. Auk klarínettkon-
sertsins verða á efnisskránni 5.
sinfónía Tjækofskís og forleikur-
inn að Vespunum eftir Vaughan-
Williams en aldarfjórðungur er
nú liðinn frá því að Sinfóníu-
hljómsveitin lék síðast verk eftir
hann.
Guðni Franzson lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1984 og stundaði
framhaldsnám í Hollandi. Fljót-
lega er væntanleg plata þar sem
Guðni leikur ásamt Þorsteini
Gauta Sigurðssyni píanóleikara.
Stjómandi hljómsveitarinnar
verður Frank Shipway sem einnig
stjómaði fyrstu áskriftartónleik-
ur hljómsveitarinnar í haust.
Hann mun einnig stjóma næstu
tveimur áskriftartónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Islands að því
er segir í fréttatilkynningu frá
hljómsveitinni.
Októbermánuður:
Fleiri
ferðamenn
hingað en
í fyrra
UM 3600 fleiri farþegar
skipa og flugvéla, eða
20.247 á móti 16.688, komu
til landsins í októbermánuði
síðastliðnum er í sama mán-
uði á síðasta ári. Þar af voru
8464 útlendingar á móti
7749 í október á síðasta ári
þrátt fyrir að leiðtogafund-
urinn væri haldinn í þeim
mánuði.
Það sem af er árinu hafa
241.086 farþegar komið til
landsins, þar af eru 119.822
útlendingar, en á sama tíma á
síðasta ári höfðu 198.332 far-
þegar komið til landsins, þar
af 104.297 útlendingar.
í október komu flestir út-
lendingar frá Bandaríkjunum,
eða 3642, en næstflestir frá
Svíþjóð eða 1256. 957 komu
frá Danmörku, 545 frá Noregi
og 522 frá Bretlandi. 364
komu frá V-Þýskalandi og 145
frá Sviss.
Samkvæmt yfiriiti Útlend-
ingaeftirlitsins komu færri
ferðamenn hingað með
skemmtiferðaskipum en oftast
áður, eða 7690, nær allt út-
lendingar. í fyrra komu 7740
með þessum skipum en árið
þar áður 10.823. Samkvæmt
yfírlitinu komu flestir hingað
með skemmtiferðaskipum árið
1979, eða 16.351.
Þingfundir færast
fram á fimmtudögum:
Ríkissljórnar-
fundunum flýtt
til klukkan 8.30
Ríkisstjómarfundir á fimmtu-
dögum hefjast framvegis klukk-
an 8.30 í stað klukkan 10, en
samkvæmt nýjum reglum um
fundartima Alþingis hefjast fyr-
irspurnartimar í sameinuðu
þingi klukkan 10 á fimmtudags-
morgnum. Ríkisstjórnarfundir á
þriðjudögum hefjast eftir sem
áður klukkan 10.
Breytingamar á þingfundatím-
anum voru kynntar á mánudag og
samkvæmt þeim verða deildafundir
á þriðjudögum og miðvikudögum í
stað mánudaga og miðvikudaga.
Þá daga eru einnig þingflokkfundir
sem heflast klukkan 16 og hefur
því minni tími en ella gefíst á deild-
arfundum til að leggja fram laga-
frumvörp.
Þá hefur einnig verið gerð sú
breyting að eina viku í mánuði verða
þingfundir aðeins frá mánudegi til
miðvikudags, en vikuna á eftir
verða fundir frá mánudegi til föstu-
dags.
IBM PERSONAL SYSTEM/2 TOLVUR
:YRIR ÞÁ SEM GERA KRÖFUR UM:
★ Nýjustu tækni
★ Örugga fjárfestingu
★ Góða þjónustu
Tökum eldri IBM PC - XT - AT tölvur
upp I andvirði nýrrar IBM PS/2 tölvu
SOLUAÐILAR:
Bjóðum eigendum stærri IBM tölvukerfa nýja hagstæða magnkaupasamninga