Morgunblaðið - 12.01.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
að sala notaðra bíla gengi mjög vel
núna og framboð á notuðum hílum
væri miklu meira en það hefði
nokkru sinni verið áður.
„Það er þó erfitt að selja bíla,
sem eru eldri en af árgerð 1980,
og bílar sem eru orðnir tíu ára gaml-
ir eða eldri eru nánast óseljanlegir,
nema þá að um sé að ræða t.d.
þýska gæðabíla," sagði Halldór.
„Salan gengur best í þessum al-
gengustu japönsku bflategundum,
en einnig hafa dýrari bílar eins og
Volvo og Mercedes Benz selst ágæt-
lega. Amerískir bílar hafa einnig
selst vel, því að á þeim hefur verið
mjög gott verð vegna þess að dollar-
inn hefur raunverulega lækkað
undanfarin þrjú til flögur ár. Ég
er nú á þeirri skoðun að í dag ættu
menn alls ekki að kaupa annað en
ameríska bíla, og hreinlega afskrifa
allt annað í bili á meðan ástandið
er svona, því amerískir bílar eru jú
mjög vandaðir og' góðir bílar“
Hvað varðar eldri bíla, sem eru
orðnir þungir í sölu, þá sagði Hall-
dór að fólk reyndi að auglýsa þá
sjálft, og teldi hann að sala þeirra
á þann hátt gengi oft nokkuð vel,
þar sem yfirleitt væri hægt að fá
þessa bíla á mjög góðum kjörum.
Þeir sem ekki gengju út lentu síðan
í bílakirkjugörðum, eða þá að reynt
væri að selja þá á bflapartasölur.
„Maður hefur heyrt um menn sem
keyra bílana sína í þessa bílakirkju-
garða og stíga þar út úr þeim og
skiljaþá bara eftir.“ sagði Halldór.
„Það er orðið nokkuð dýrt að
eiga bíl, þar sem skattar eru orðnir
miklir, og ef eitthvað bilar í gömlum
bíl, þá er viðgerðakostnaður mjög
hár og jafnvel getur legið bílverð í
miklum viðgerðum. Af þessum sök-
um kýs fólk oft að henda gömlum
bflum."
Varðandi greiðslumáta í bflavið-
skiptum sagði Halldór að miklar
breytingar hefðu orðið þar á, und-
anfarin ár. „Þetta hefur flust
GÍFURLEG aukning hefur orðið
á innflutningi bíla á síðustu
tveimur árum. Það sem hleypti
skriðunni af stað á fyrri hluta
ársins 1986 var tollalækkunin,
sem kom til framkvæmda 1.
mars það ár. Alls voru fluttir inn
rúmlega fimmtán þúsund bílar á
öllu árinu 1986, og hafði bilainn-
flutningur þá aldrei verið meiri
á einu ári, og fyrstu níu mánuði
siðasta árs voru fluttir inn um
nítján þúsund bílar. Þess má geta
að árið 1985 voru fluttir til lands-
ins rúmlega átta þúsund bílar,
en meðaltal innfluttra bíla á ár-
unum 1975 til 1985 var á bilinu
sjö til átta þúsund bílar á ári.
Bílainnflytjendur telja þann
mikla innflutning sem átt hefur sér
stað undanfarin misseri vera eðli-
legan, þar sem þörfín fýrir end-
umýjun á bflaeign landsmanna hafí
verið orðin mjög brýn. Hafí þetta
meðal annars stafað af því, að verð
á bflum hafi verið of hátt og því
hafi verið leitast við að halda of
gömlum bílum gangfærum. Þjóð-
hagsstofnun reiknar með því að
bflamarkaðurinn mettist árið 1988,
en fram til ársins 1991 verði fluttir
inn að meðaltali um þrettán þúsund
bílar á ári til nauðsynlegrar end-
umýjunar á bflaflota landsmanna.
Bílakirkjugörðum fjölgar sífellt samfara gífurlegum innflutningi bíla hingað til lands.
Það vekur athygli hversu hátt
hlutfall af innfluttum bflum eru
notaðir bílar, en innflutningur not-
aðra bfla hefur stóraukist ár frá
ári, og lætur nærri, að á síðasta
ári hafí um það bil tuttugu prósent
innfluttra bfla verið inn notaðir. Af
þessu leiðir að meðalaldur bíla í
umferð lækkar ekki jafn mikið og
tölur um bflainnflutning á s.l. tveim-
ur ámm gefa til kynna.
Rúmlega tuttugu bílasölur munu
vera starfræktar á höfuðborgar-
svæðinu, ogtil þess að fá upplýsing-
ar um það hvemig staðan í
viðskiptum með notaða bíla væri í
dag, þá var leitað álits manna, sem
þekkja bflamarkaðinn vel.
Halldór Snorrason hjá Aðalbíla-
sölunni hefur rekið bílasölu manna
lengst hér á landi, og sagði hann
Mikil gróska í bílavið-
skiptum á nýliðnu ári
Þjóðhagsstofnun reiknar með að bílamarkaðurinn mettist á þessu ári
Agnes Einarsdóttír að störfum á hárgreiðslustofu sinni í
Bleikjukvísl 8.
Hárgreiðslustofa íÁrtúnsholti
OPNUÐ hefur verið ný hárgreiðslustofa í Bleikjukvísl 8 í
Reykjavík. N
Eigandi stofunnar er Agnes Einarsdóttir hárgreiðslumeistari. Stof-
an er opin virka daga kl. 9-18 og á laugardögum kl. 10-14.
Skýrsla Landsvirkjunar:
Tæknilega mögulegt að flytja raf-
orku um sæstreng til Skotlands
ENGIN sérstök vandamál ættu
að fylgja því að framleiða og
leggja 400 kílóvolta jafnstraums
sæstreng til að flytja raforku
milli íslands, Færeyja og Skot-
lands miðað við þá tækni sem nú
þekkist. Þetta kemur meðal ann-
ars fram í áfangaskýrslu sem
starfsmenn Landsvirkjunar luku
við fyrir áramót og er nú til at-
hugunar hjá stjórn stofnunarinn-
ar.
í niðurstöðum skýrslunnar kem-
ur einnig fram að verð á raforku
frá íslandi virðist samkeppnisfært
við verð frá nýjum kola- og kjarn-
orkustöðvum á Bretlandi. Ef verð
á orku frá íslandi er samkeppnis-
PORTUGAL-FATNAÐUR
Kaupmenn innkaupastjórar
Verðum með sýningu á kvenfatnaði og karlmanna-
buxum. Sumar- og vetrartískan 1988.
Sýningin verður haldin í Hótel Alfa, Lissabon, frá
5. febr. nk. til 20. febr. nk.
Allir þeir sem áhuga hafa hafi samband við CARUN-
inportacao - exportacao, lda. Av. Miguel Bombarda,
133- 8 drt. 1000 Lisboa Portugal.
Telex 42094 avlis p- og 64329 mtu p.
Á íslandi gefur upplýsingar Daníel Árnason í síma
28448 á skrifstofutíma.
fært er markaður fyrir raforkuna á
Englandi og Wales og hugsanlega
á Norður-írlandi.
Bent er á að orkuverð sé háð
töluverðri óvissu, sérstaklega vegna
sæstrengsins, en hafa beri í huga
að sæstrengurinn er um 30—35%
af heildarskostnaði. Því megi frávik
vera nokkuð mikil í kostnaði hans
til að veruleg breyting verði á orku-
.verði.
Halldór Jónatansson forstjóri
Landsvikjunnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að skýrslunni hefði
verið lokið laust fyrir áramótin.
Síðan hafí hún verið lögð fyrir stjóm
Landsvirkjunar, sem hefur hana nú
til umfjöllunar.
„Stjómin mun taka ákvörðun um
hvert framhaldið verður og hvort
þetta geti talist vænlegur kostur
með tilliti til markaðarins á Bret-
landseyjum. Þá þarf að kanna hvort
það sé þess virði að nálgast bresk
stjómvöld og orkufyrirtæki og at-
huga hvort þau vilji ljá þessu máli
lið í samvinnu við Landsvirkjun.
Einnig þarf að ákveða hjá hvaða
fyrirtækjum leita á samstarfs.
Samkvæmt niðurstöðum skýrsl-
unnar er flutningur raforku með
sæstreng til Skotlands tæknilega
mögulegur. Margt bendir til þess
að þetta geti verið íjárhagslega
hagkvæmur kostur og að verð á
raforku frá íslandi um streng til
Skotlands geti orðið samkeppnis-
fært við verð á orku frá nýjum
kjamorku- og kolastöðvum," sagði
Halldór Jónatansson.
Jóhannes Nordal formaður
stjómar Landsvirkjunar sagði að
ekki hefði verið tekin frekari
ákvörðun um framhald málsins, en
stjómin hefði samráð við iðnaðar-
ráðuneytið um það. Sagði Johannes
að ljóst væri að næsta skref yrði
að kanna betur hvemig staða þess-
ara mála er í Bretlandi.
„Það á eftir að kanna mjög margt
í þessu máli og það hefur í raun-
inni aðeins verið skoðað til bráða-
birgða. Það verður að líta á þessa
skýrslu sem bráðabirgðarathugun.
Hún er fyrst og fremst gerð til að
leggja grundvöll fyrir að hægt verði
að meta hvort þetta sé tæknilega
mögulegt og hver hugsanlegur
kostnaður verður.
Menn hafa áhuga á að kanna
þetta frekar og málinu verður hald-
ið vakandi. Stjóm Landsvirkjunar
hefur haft áhuga á því frá upphafi
að þessi kostur sé fyllilega metinn
á móti öðmm möguleikum,“ sagði
Jóhannes Nordal.