Morgunblaðið - 12.01.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
17
Halldór Snorrason
ákaflega mikið yfír á skuldabréf
með sjálfskuldarábyrgð, og þá með
veði í bflunum. Þetta þekktist nán-
ast ekki hér áður fyir, og ef um
greiðslur með skuldabréfum var að
ræða, þá komu ekki til greina önn-
ur skuldabréf en þau sem voru með
fasteignaveði. Víxlar voru algeng-
asta greiðsluformið, en þeir eru
nánast dottnir út úr myndinni núna,
nema þá kannski til tveggja eða
þriggja mánaða. Skuldabréfín sem
nú tíðkast geta verið þetta allt frá
sex mánuðum til tveggja ára, og
fólki virðist ganga ágætlega að
losna við þessi bréf í bönkum eða
hjá fjárfestingafélögum. Það er
einnig mjög mikið um skipti í bfla-
viðskiptum í dag, og meiriparturinn
af sölunni hjá okkur má segja að
séu tveir bflar í einu, það er að
segja þegar ódýrari bfll er settur
upp í dýrari. Annars sýnist mér
ástandið raunar vera orðið þannig,
að það virðast nánast allir eiga bfl,
og mér skilst að það séu orðnir inn-
an við tveir íbúar um hvem bfl á
íslandi í dag,“ sagði Halldór.
Innflutningur á notuðum bflum
erlendis frá er mikill eins komið
hefur fram, og sagði Halldór að
þetta kæmi bflasölum vemlega til
góða. Hann sagði að í Bandaríkjun-
um, Þýskalandi og víðar, væm
menn sem sæju um þennan inn-
flutning. „Þetta em gósentímar
fyrir bflasala, því þessi innflutning-
ur eykur viðskiptin gífurlega hjá
okkur. Þegar fólk hefur úr hundmð-
um eða þúsundum notaðra bfla að
velja, þá vekur það alltaf freistingar
hjá því, og ef það sér einhvem bfl
sem það langar til að eignast, þá
fer það að reyna að möndla saman
skipti. Mér finnst þó fólk oft vera
heldur djarft í þessum bílaviðskipt-
um sínum. Fjölskyldur era kannski
með þijá bfla, en raunvemlega eiga
þær ekki nema einn af þeim, því
hina tvo bflana eiga í raun einhver
banki eða fjárfestingafélag, sem á
það fjármagn sem í bflunum liggur.
Þegar fólk þarf síðan að fara að
selja einn til að standa undir greiðsl-
um af öðmm, þá gengur það
kannski ekki allt of greiðlega, og
það tekur kannski nokkra mánuði
að losa fjármagn á þennan hátt.
Annars er salan í dag mikii, og
undanfarið hefur salan hjá okkur
hvað fjölda áhrærir verið allt að því
eins og hún ér á sumrin, en hvað
viðkemur verðlagi í bflaviðskiptum
þá er það þannig, að verðið fer allt-
af hækkandi á vorin og er í hámarki
yfir sumarmánuðina, en fer síðan
stiglækkandi þegar líður á haustin
og er síðan í lágmarki yfir vetrar-
mánuðina. Þetta er aiveg árvisst,
og hefur ætíð verið svona, því
straumurinn er mestur á sumrin,
en allt rólegra á vetuma."
Halldór sagði að svokallaðir at-
vinnumenn í bíiaviðskiptum, eða
braskarar eins og þeir hafa verið
kallaðir, væm fáir í dag. „Braskar-
amir koma og f ara. Það em alltaf
einhveijir sem reyna að hagnast á
viðskiptum með bfla, og sumum
Finnbogi Ásgeirsson
tekst það ef þeir ætla sér ekki of
mikið. En það em alltaf dæmi um
menn sem fara öfugt út úr slíkum
viðskiptum. Við verðum ekki mikið
varir við svona menn. Aftur á móti
emm við í sambandi við menn sem
stunda innflutning á notuðum
bflum, sem við sjáum síðan um að
selja fyrir þá, en þeir flokkast ekki
undir braskara að mínu áliti.“
„Núna er mikil spenna í þjóð-
félaginu og það virðist hreinlega
vera lífsspursmál hjá fólki að eiga
að minnsta kosti einn bíl í hverri
fjölskyldu, og helst fleiri. Á meðan
svona mikill innflutningur er á nýj-
um bflum, og fólk virðist geta keypt
þá endaiaust, þá sé ég ekki fram á
annað en að framhald verði á mikl-
um viðskiptum með notaða bfla, og
á meðan svo er, þá getum við sem
stundum þessa atvinnu ekki kvart-
að,“ sagði Halldór Snorrason að
lokum.
Finnbogi Ásgeirsson veitir bfla-
sölunni Bflakjör forstöðu, en hún
er rekin í tengslum við Svein Egils-
son h.f., og selur meðal annars bíla
sem umboðið tekur upp í nýja bíla.
Finnbogi sagði að bflar af árgerðun-
um ’84 til ’87 yrðu aðal sölu-
bflamir í nánustu framtíð. „Þeir
bflar sem eldri em en af árgerð
1980 verða þungir í vöfum, og jafn-
vel ekki teknir til sölu hjá okkur.
Bflar sem em teknir upp í nýja bfla
hjá umboðinu em á ákveðnum kjör-
um, sem em lengri en gengur og
gerist með notaða bíla, en ef við-
skiptavinir sem em að selja notaða
bfla hjá okkur vilja bjóða sömu kjör
þá gengur það.
Annars hafa greiðslulqör breyst
gífurlega. Algengt hefur verið að
menn hafa selt bflana sína á sex
til tólf mánaðá skuldabréfum, en
við emm að selja bfla á áiján mán-
aða bréfum, og á dýrari bflum getur
þetta farið allt upp í þijú ár. Þama
emm við raunvemlega í samkeppni
við þá sem em að selja nýja bfla, en
í þeim viðskiptum hafa opnast
möguleikar á svo löngum greiðslu-
fresti. Seljendum notaðra bfla hefur
gengið ágætlega að losna við
skuldabréf, og þess em dæmi að
menn vilji frekar fá greitt fyrir
bflana sína með skuldabréfi heldur
en með peningum, svo þama hefur
orðið gífiirleg breyting á. Það hefur
alveg snúist við frá því sem var
fyrir um það bil tveimur ámm síðan,
en þá vom greiðslur með skulda-
bréfum sjaldgæfar," sagði Finn-
bogi.
Sala á notuðum bflum hefur að
mati Finnboga verið lífleg undan-
farið, en þó sagðist hann hafa orðið
var við að dró úr fyrirgreiðslu til
fólks hjá lánastofnunum fyrir jólin.
„Það vill oft verða þannig þegar
áramótin nálgast, en fólk brúar þá
bilið fram í janúar með víxlum, ef
það hefur fengið lánsloforð eftir
áramótin. Það em samt engin læti
í sölu notaðra bfla núna, en miðað
við árstíma þá verður hún að telj-
ast góð. Það sem hefur verið pantað
af nýjum bflum er allt selt, þannig
að það má reikna með því að hreyf-
ing á notuðum bflum verði mikil á
næsta ári.“
Finnbogi sagði, að rúmlega helm-
ingur notaðra bfla af vissum
tegundum sem væra til sölu væra
bflar, sem hefðu verið fluttir inn
notaðir, og væm þeir í ærið mis-
jöfnu ásigkomulagi. „Það hefur
komið upp sú staða, að skapast
hefur þörf fyrir ákveðnar gerðir
bfla á markaðnum, sem hreinlega
hefur ekki verið hægt að anna, og
þess vegna hafa þessir bflar verið
fluttir inn notaðir, en stundum í of
miklu magni,“ sagði hann.
„Undanfarið ár hefur verið sann- .
kallað sprengjuár í bflaviðskiptum,
eins og reyndar tölur um bílainn-
flutning bera vitni um, þannig að
6tta jaðrar við bilun hvemig við
endingar höfum látið, en ég á
nú frekar von á því að þetta hæg-
ist á næsta ári,“ sagði Finnbogi
Ásgeirsson.
í Skipholti 50B er til leigu skrifstofuhúsnæði, sem hefur verið hólfað niður í einingar og eru þærtilbúnar til afhendingar.
Einingar skiptast þannig: 2. hæð 154,41 fm + 69,76 fm + 133,34 fm = 357,51 fm.
3. hæð 88,0 fm + 92,74 fm + 46,27 fm + 54,98 fm = 281,99 fm.
Ofangreint skrifstofuhúsnæði er nú tilbúið til afhendingar og er allur frágangur mjög vandaður.
Allar nánari upplýsingar veitir
Halldóra í síma 82300 hjá okkur.
sí?
Frjálstframtak
Armúla 18, 108 Reykjavík