Morgunblaðið - 12.01.1988, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
Margir höfðu lagt mikla vinnu í gerð búninga, sem settu mikinn svip
á skemmtunina.
ypgar:
Þrettándagleði
í blankalogni
Vognm.
BLANKALOGN einkenndi úti-
dagskrá þrettándagleðinnar i
Vogum að þessu sinni. Svo mikið
var lognið að reykjarmökkur
lagðist yfir svæðið þar sem flug-
eldasýningin fór fram að hluti
sýningaratriða hvarf í reykjar-
mökkinn.
Þrettándagleðin hófst með blys-
för frá félagsheimilinu Glaðheimum
þar sem farið var eftir Ægisgötu,
Kirkjugerði og Tjarnagötu að
brennu á Eyrarkotsbakka. Á undan
biysförinni fór dráttarvél með kerru
er flutti álfakóng og álfadrottningu,
ásamt hljóðfæraleikara, álfum og
alls konar fúrðuverum. Við brenn-
una voru sungnir álfasöngvar og
stiginn álfadans. Síðan fór fram
flugeldasýning á vegum björgunar-
sveitarinnar sem heppnaðist mjög
vel, en að henni lokinni var haldið
í skrúðgöngu í féiagsheimilið Glað-
heima þar sem jólin voru dönsuð
út, við undirleik unglingahljóm-
sveitar.
Mikill Qöldi fólks tók þátt í þrett-
ándagleðinni að þessu sinni og voru
margir sem höfðu lagt mikla vinnu
í gerð búninga, sem settu mikinn
svip á skemmtunina.
Á undanfömum árum hafa
hestamenn verið í fararbroddi í
blysförinni, en einhverra hluta
vegna voru þeir ekki nú, en hunda-
eigendur mættu hins vegar að þessu
sinni og gengu með hunda sína.
- EG
Fjölmenni var við álfabrennuna í Vogunum.
Frá þrettándabrennunni á Akranesi.
Morgunblaðið/J6n Gunnlaugsson
Þrettándabrenna á Akranesi
Akurnesingar kvöddu jólin með
blysför og veglegri brennu á
þrettándanum í ákjósanlegu veðri
og var margt manna viðstatt.
Það er orðinn árviss viðburður að
haldin sé stór brenna á þrettándan-
um og engin breyting varð þar á
aer-
þetta árið. Brennan er haldin á
íþróttavellinum að frumkvæði
íþrótta- og æskulýðsnefndar og hafa
þeir til aðstoðar félaga i Kiwanis-
klúbbnum Þyrli sem hlaða bálköst-
inn. Einnig koma til sögunnar ýmsir
aðilar aðrir sem hjálpa til að gera
þetta eins veglegt og unnt er.
Veður á Akranesi á þrettándadag
var einstaklega gott og lét fólk ekki
sitt eftir liggja og voru fjölmargir
mættir og tóku virkan þátt í dansin-
um. Áður en brennan hófst var farin
blysför frá æskulýðsheimilinu Arn-
ardal og fóru fyrir göngunni kóngur
og drotting ásamt ýmsu öðru fyrir-
fólki sem klæddist margvíslegum
furðubúningum. Að loknum álfa-
dansinum fór fram flugeldasýning.
- JG
Morgunblaðið/Hulda Sigmundsdóttir
Frá litlu jólunum í Grunnskóla Þingeyrar.
Litlujólin
Þingfeyri.
LITLU jólin eru alltaf haldin hér
með vissum hátíðleikablæ, eng-
inn „diskódans" þann dag, heldur
flytur presturinn hugvekju og
sungnir eru jólasálmar auk ann-
ars.
Fimmtudaginn 17. desember sl.
lauk skólahaldi fyrir jól með hefð-
bundnum litlu jólum sem 8. bekkur
sá um. Séra Gunnar/Hauksson flutti
jólaguðspjallið og á undan og eftir
voru sungnir jólasálmar. Um morg-
á Þingeyri
uninn mættu eldri nemendur
skólans og til skemmtunar var
söngur, upplestur á jólasögu, spurn-
ingakeppni, Ijóðaflutningur og smá
leikþættir. Jólasveinninn kom í
heimsókn og útdeildi pósti og
grínaðist. Þau elstu sáu um að allir
hefðu sælgæti til að gæða sér á.
.Eftir hádegi var flutt sama dagskrá
en nú fyrir fullu húsi, þar sem yngri
kynslóðin var mætt ásamt foreldr-
um.
- Hulda
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Meðalland:
Fyrstíbylur
vetrarins
Hnausum í Meðallandi.
NÚ ER hér útsynningur og geng-
ur á með krapaéljum. Á fimmtu-
dag var hörkubylur af austri og
var það sá fyrsti á vetrinum.
Gerði hér allhart frost um þrett-
ándann, hafði ekki komið nema
lítið frost áður. Jörð var þíð og
auð um jólin fram að 5. janúar.
Jólahald var með sama sniði og
áður. Messað var í fimm kirkjum
héraðsins jóladagana og á gamlárs-
kvöld í Prestbakkakirkju. Brennur
voru allvíða um áramót í mjög góðu
veðri og miklu skotið upp af flugeld-
um. Eftir kl. 12.00 á miðnætti var
dansað á Kirkjuhvoli.
Nærri Hörgsdal lenti fólksbíll
fyrir vörubíl nokkru fyrir jól. Var
Bjarni Bjamason fyrrverandi
hreppstjóri í Hörgsdal farþegi í
bílnum. Fólksbíllinn var ónýtur en
lítið sá á Bjama. Sýnist sem al-
mættið ætli honum ákveðinn dag
til brottfarar og líði þar engar breyt-
ingar á. Er þetta ekki í fyrsta sinn
sem Bjami er á landamærum lífs
og dauða.
— Vilhjálmur
Veitingahúsið á Tjarnargötu 31a:
Eigendaskipti urðu um áramótin
Keflavík.
ÓSKAR Ársælsson veitingamað-
ur tók við rekstri Veitingahúss-.
ins á Tjarnargötu 31a um
áramótin. Undanfarin ár hefur
Óskar starfað á Glóðinni, en ætl-
ar nú að vera með eigin rekstur.
Veitingastaðurinn var opnaður i
haust undir nafninu E1 Ranco af
Antoni Norwaes, en bæjarfóget-
inn í Keflavík samþykkti ekki
nafnið og þá var staðurinn látinn
heita Veitingahúsið, Tjarnargötu
31a.
Óskar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann væri nú með
samkeppni í gangi um nýtt nafn á
staðinn og væri ferð til Hamborgar
með Arnarflugi í boði fyrir sigur-
vegarann í þeirri keppni. Óskar
sagðist aðallega vera með pizzur á
boðstólum og um næstu helgi yrði
hann með opnunarhátíð og þá yrði
boðið uppá pizzur á kynningar-
verði. „Annars er hugmyndin að
vera með allt frá litlum pizzum upp
í stórsteikur á matseðlinum auk
þess að taka að sér veislur úti í bæ.“
Óskar er Keflvíkingur og hefur
hann starfað sem framleiðslumaður
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Óskar Ársælsson veitingamaður lengst til vinstri ásamt starfsfólki
sínu, Birnu Rúnarsdóttur og Stefáni Stefánssyni matsveini.
í um 13 ár. Hann lærði á Hótel
Loftleiðum og lauk námi 1975 og
hefur starfað sem framleiðslumaður
síðan. Óskar sagðist vera bjartsýnn,
sér hefði verið vel tekið og hann
hyggði á ýmsar nýjungar með
hækkandi sól. „Ég hef hug á að
setja gervigras á stéttina fyrir
framan húsið og koma þar upp úti-
skála og stækka veitingasalinn
inni,“ sagði Óskar ennfremur.
- BB