Morgunblaðið - 04.07.1989, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JULI 1989
Frá Berufirði.
Frá Borgarfirði eystri.
Hringferð írá Reykja-
vík til Austurlands
eftirBaldur .
Sveinsson
Ferðin hefst í Reykjavík og verður
ekið sunnan jökla til Fljótsdalshér-
aðs. Fyrst liggur leiðin um hið mikla
og gróðursæla undfrlendi Árnes- og
Rangárvallasýslu allt austur undir
Eyjafjöll. Til vinstri handar ber lengi
við himin eldfjallið heimsþekkta
Heklu með snæ á kolli, en til hægri
handar er hið landsþekkta höfuðból
Oddi á Rangárvöllum. Sögustaði
Njálu ber fyrir augu og hlíðin fríða,
sem Gunnar vildi ekki yfirgefa. Ekið
er undir tignarlegum hlíðum Eyja-
flalla, sem líða hjá eins og mynd á
tjaldi. Numið verður staðar í Vík í
Mýrdal og rétt úr sér eftir setuna í
bílnum. Fomir sjávarhamrar eru
austan kauptúnsins, en Reynisíjall
með greyptum hamrabrúnum fyrir
vestan. Skammt er héðan að fjöru-
sandi. Eftir skamma hvíld er ekið
áfram yfir Múlakvísl og austur Mýr-
dalssand. Hann er frekar tilbreyting-
arlítill, en augun gleðja þó nokkur
kennileiti. Hjörleifshöfði grasi vafinn
í suðri, en Hafursey og Mýrdalsjök-
ull í norðri. Þegar sandur er að baki
er farið yfir stórfljótin, Skálm,
Tungufljót og Eldvatn. Tekur þá við
hið mikia Skaftáreldahraun, sem
rann 1783 og olli hinum geigvænlegu
Móðuharðindum. Skammt er nú til
Kirkjubæjarklausturs, en að sögn
Landnámu máttu þar ekki heiðnir
menn búa. Heiðinn maður, sem ætl-
aði að hnekkja þeim ákvæðum, varð
bráðdauður við túngarð, svo að þær
tilraunir voru ekki aftur reyndar.
Vafalaust munu ferðamenn eiga
þama góða nótt í kyrrlátu umhverfi.
Ekki er hægt að aka þarna hjá
garði án þess að nema staðar og
skoða hina stílhreinu kapellu kennda
við Jón Steingrímsson eldklerk og
fleira sem einkennir staðinn. Því
næst verður ekið austur Síðuna og
stefnt austur í Fljótshverfi. Við
Dverghamra, hina furðulegu náttúr-
usmíð, verður numið staðar. Ló-
magnúp, hið mikilúðlega standberg,
ber fyrir augu og Núpsstað, bæinn
í faðmi fjallsins. „Ogjötunninn stend-
ur með járnstaf í hendi, jafnan við
Lómagnúp" og var land og fljót fyr-
ir illum öflum, sem steðja að landi
úr suðurátt. Aðrir öflugir landvættir
verja hinar höfuðáttirnar. Leiðin
liggur síðan yfir fljótin ströngu,
Núpsvötn og Skeiðará og við erum
bráðum komin til Skaftafells og
hæsta fjall landsins gnæfir þar við
himin í austri. Þá tekur við Óræfa-
sveit undir jaðarfjöllum jöklanna og
brátt erum við komin austur á
Breiðamerkursand og stönsum við
lón Jökulsár. Oftlega sigla þar um
lónið tígullegar jökulborgir marg-
breytilegar í útliti og er unun á þær
að horfa. Næst taka við Suðursveit
og Mýrar og verður ekki áð fyrr en
í Höfn í Hornafirði. Þar mun verða
dvalið um stund og kauptúnið skoð-
að. Nýleg kirkja og glæsilegt hótel
setja svip á staðinn. Af Almanna-
skarði er útsýni mikið í björtu veðri
einkum til vesturs og sjálfsagt að
nema þar staðar. Leiðin liggur þessu
næst um Lón og fyrir Austurhorn
um Hvalnesskriður. Bærinn Hvalnes,
sem nú mun vera kominn í eyði,
stendur í kvos undir hrikalegum
hamraflugum og _er þangað tignar-
legt heim að líta. Áfram verður hald-
ið inn fyrir botna næstu fjarða og
numið staðar á Djúpavogi og áð þar
um stund. Landslag er þarna allsér-
stætt og standa mörg húsanna í
skjóli huldufólksborga, en um staðinn
heldur vörð hinn tignarlegi Búlandst-
indur. Djúpivogur er þekktur úr
verslunarsögu okkar íslendinga, því
að á einokunartímanum áttu bændur
allt frá Skeiðará að sækja þangað
verzlun og er það dtjúgur spölur og
erfiður. Ekið er nú fyrir botn Beru-
fjarðar, út fyrir Streitishvarf og til
Breiðdals. Milli BerufjarðarogBreið-
dals er réttnefndur Tindaskagi og
er frá Breiðdalnum mjög tignarlegt
að horfa til suður- og vesturijalla.
Er nú stutt leið eftir um Breiðdals-
heiði til Fljótsdalshéraðs.
Þar er gott að hafa næturhvíld og
skoða að morgni nálæga staði og
Héraðið sjálft. Áætlað er að aka til
Borgarfjarðar og skoða sig þar um.
Fyrst liggur leiðin um Eiða- og Hjalta-
staðaþinghá og yfir fjöllin til
Njarðvíkur um Vatnsskarð. Rétt við
veginn í landi Ketilsstaða í Hjalta-
staðaþinghá er hlýlegur hvammur og
stendur þar sumarhús meistara
Kjarvals. Hélt hann þar til á sumrum
um 20 ára skeið. Eins og flestir vita
var æskuheimili hans í Geitavík í
Borgarfirði. Milli Borgarfjarðar og
Njarðvíkur eru hinar illræmdu
Njarðvíkurskriður. Að fornu hélt sig
óvættur þar í skriðunum sem grand-
aði ferðamönnum. Var loksins ráðið
niðurlögum hennar árið 1306. Stend-
ur síðan kross þar við veginn, þar sem
menn lásu bænir sínar, áður en lagt
var út á hinn tæpa stíg. Nú liggur
þar breiður vegur um skriðurnar.
Borgarfjörður er frægur fyrir sín fag-
ursköpuðu og litríku fjöll. Hvílir þar
mest tign yfir Dyrfjöllum í vestri, en
austan megin eru þau litfegurri.
Borgin, sem fjörðurinn er við kennd-
ur, er fyrir botni fjarðarins og er þar
mikil álfabyggð. Góðir álfar eru norð-
an megin í Borginni, en öllu verri og
hrekkjóttari að sunnanverðu. Eftir að
búið er að litast um í Borgarfirði er
sama leiðin ekin til baka, en þó skoð-
að sig aðeins um í Hróarstungu í
heimleiðinni.
Þar næst tekur við að skoða sig
um á Héraði áður en stefnan er tek-
in til Vopnafjarðar, en þar verður
gist næstu nótt. Verður nú ekið
umhverfis Löginn og þekktir staðir
skoðaðir. Verður þá fyrst heimsóttur
Hallormsstaðaskógur, enda liggur
þjóðleiðin gegnum hann. Valþjófs-
staður, merkur kirkjustaður, verður
næstur á ökuleiðinni og síðan Skriðu-
klaustur., fyrrum eign Gunnars
Gunnarssonar rithöfundar. Valþjófs-
kirkja á ýmsa merka muni, sem vert
er að sjá, en þó mun frægust hin
forna hurð kirkjunnar, sem nú er
geymd í Þjóðminjasafni. Nákvæm
eftirlíking hennar er í kirkjunni. Á
Skriðuklaustri er mjög sérkennileg
bygging sem Gunnar lét reisa og er
sagt að arkitektinn væri sá sami og
teiknaði Arnarhreiður Hitlers. Ekið
verður síðan sem leið liggur vestan
fljótsins til Hlaða við Lagarfljótsbrú.
Liggur nú leiðin til Jökuldals og verð-
ur Jökulsárhlíð skoðuð áður en stefn-
an er tekin til Möðrudals. Ef veður
er bjart og gott er hressandi að fá
sér göngutúr að Skessugarði á Grjót-
garðshálsi og skoða ummerki ísald-
ar. Áð verður um stund í Möðrudal,
en síðan ekið til Vopnafjarðar og
gist þar.
I Vopnafirði er margt að sjá og
gerum við ráð fyrir að veður verði
bjart, svo að hin tignarlegu fjöll að
sunnan og austan fái að njóta sín.
Ekið verður um flesta færa vegi
byggðarinnar og það markverðasta
skoðað, Komið verður meðal annars
að Burstafelli og gamli bærinn skoð-
aður og þeir munir sem þar eru varð-
veittir. Komið verður að kirkjustaðn-
um Hofi og þeir sem vilja geta feng-
ið sér góðan sundsprett í ágætri
sundlaug í Selárdalnum. Farið verður
eins langt eftir suðurströnd fjarðar-
ins og kostur er á. Næstu nótt verð-
ur aftur gist í Vopnafirði.
Nú liggur leiðin frá Vopnafirði til
Lauga í Reykjadal. Þegar komið er
upp á Burstafellið er sjálfsagt að
stansa og horfa yfir hina fríðu sveit
í kveðjuskyni. Héðan liggur leiðin
upp á Möðrudalsöræfin um Langadal
og síðan um Víðidal til Grímsstaða
á Fjöllum. Frá Grímsstöðum liggur
leiðin um glæsilega brú á Jökulsá
og um fremur gróðursnauð Mývatns-
öræfi til Mývatnssveitar. Er ætlunin
að njóta þeirrar fögru sveitar eins
lengi og kostur er á. Gengið verður
um Dimmuborgir og unaðslegan
gróðurreit Höfðans. Komið verður
að sjálfsögðu að Reykjahlíð og einn-
ig að Skútustöðum, þar sem hægt
er að ganga um sérkennilegt gervi-
gígasvæði. Um kvöldið er komið til
Lauga og gist þar, enda góður stað-
ur til þess að safna kröftum fyrir
ferðina suður Sprengisand.
Frá Laugum er farið snemma því
að löng leið er fyrir höndum. Stansað
verður við Goðafoss, áður en ekið
er fram Bárðardal. Hér verða jarð-
fræðileg umskipti, því að vestan dals-
ins er blágrýti, en austan hans tekur
við móbergssvæðið. Talið er að þetta
sé sigdalur, en hann er kenndur við
landnámsmanninn Bárð son Heyj-
angurs-Bjarna og bjó hann að Lund-
arbrekku. Fremur er stijálbýlt í daln-
um og kemur þá í hug vísa Látra-
Bjargar: „Bárðardalur er besta sveit,
þótt bæja sé langt á milli, þegið hef
ég í þessum reit, þyngsta magafylli.“
Skjálfandaflót rennur eftir dalnum.
Sjálfsagt er að fara að Aldeyjarfossi
og skoða undraheim rósaflúrsins í
bergveggjum gljúfursins, því að
þarna hefur Iistsköpun náttúrunnar
náð fullkomnun. Stansað verður í
skálanum í Nýjadal og nestið borð-
að. Áfram verður síðan haldið til
Reykjavíkur. Er þá lokið langri ferð
og skipulagningu hennar fellur von-
andi að smekk margra sem vilja
leggja leið sína um landið og afla
sér fróðleiks um staðhætti og sögu
í leiðinni.
Leitiö til okkar:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300