Morgunblaðið - 04.07.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989
Evrópumótið í brids:
Island vann Sovétríkin í
fyrsta bridslandsleiknum
Frá Sigurði B. Þorsteinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Turku.
Islendingar unnu tvo fyrstu leiki sina á Evrópumótinu í brids en
töpuðu þeim þriðja, og voru í 17. sæti af 25 eftir 3 umferðir. Þá var
íslenska liðið langt undir gegn ítölum eftir fyrri hálfleik 4. umferðar.
Mótið hófst á sunnudag og í
fyrsta leik spilaði íslenska liðið við
Vestur-Þjóðveija. Jónas P. Erlings-
son og Valur Sigurðsson spiluðu
allan leikinn en Aðalsteinn Jörgen-
sen, Ragnar Magnússon, Guðmund-
ur Páll Amarson og Þorlákur Jóns-
son skiptu hálfleikjum. íslenska lið-
Flautuleikaramir Guðrún H. Birgisdóttir og Martial Nardeau leika
í Listasafhi Sigurjóns 4. júlí. í einu verkanna leikur Snorri S. Birgis-
son, píanóleikari, með þeim.
Flaututónleikar í
Listasaftii Sigurjóns
GUÐRÚN S. Birgisdóttir og Martial Nardeau flyfja tónlist fyrir tvær
flautur í Listasafni Siguijóns Ólafssonar þriðjudaginn 4. júlí. í einu
verki kemur Snorri Sigfus Birgisson, píanóleikari, til liðs við þau.
Á efnisskrá tónleikanna er kons- Mellnas.
ert eftir Couperin, Allegro og Menú-
ett eftir Beethoven og „Minningar
frá Prag“ eftir Doppler-bræður.
Ennfremur nútímaverk eftir Banda-
rílq'amanninn John Cage, ítalann
Goffredo Petrassi og Svíann Arne
Tónleikamir heíjast klukkan
20.30 og standa í klukkustund.
Aðgöngumiðar á 350 kr. verða seld-
ir við innganginn og kaffístofan
verður opin.
ið var 9 impum yfir í hálfleik og
vann 16-14.
í 2. umferð spilaði ísland við
Sovétríkin, sem nú taka í fyrsta
skipti þátt í Evrópumóti í brids og
þetta var því fyrsti bridslandsleikur
þjóðanna. Aðalsteinn, Ragnar, Guð-
mundur og Þorlákur spiluðu allan
leikinn. Þeir höfðu allaf yfirhöndina
þrátt fyrir að Sovétmenn spiluðu
torkennilegt sagnkerfi; til dæmis
sýndi opnun á 1 spaða 0-7 spila-
punkta.
Staðan í hálfleik var 24-12 fyrir
ísland. Sömu spilin em spiluð í öll-
um leikjum hverrar umferðar og
þeim er raðað fyrirfram. í seinni
hálfieik fékk einn íslenski spilarinn
aukaspil á hendina og var því með
14 spil. Það kom þó ekki í Ijós fyrr
en spilið var langt komið og því
fengu íslendingar hálft stig í refs-
ingu. ísland vann samt leikinn
17,5-12.
Þriðji leikurinn var gegn Hollend-
ingum og var illa spilaður af hálfu
íslands. Jónas, Valur, Guðmundur
og Þorlákur spiluðu fyrri hálfleik
og vom 8 impum undir. Aðalsteinn
og Ragnar komu í síðari hálfleikinn
fyrir Guðmund og Þorlák og þá
slógu Hollendingarnir í og unnu
leikinn 22-8. Islendingar misstu
meðal annars tvær slemmur sem
Hollendingamir tóku, og gáfu út
800 þegar þeir teygðu sig of hátt
í baráttu um geim.
Eftir 3 umferðir vom Svíar efst-
ir með 62 stig. Hollendingar vom
í 2. sæti með 61 stig en Austurríkis-
menn vom í 3. sæti með 57,5 stig.
ísland var í 17. sæti með 41,5 stig.
Albert afhend-
irtrúnaðarbréf
Albert Guðmundsson, sendiherra
hefur afhent Juan Carlos I, Spánar-
konungi, tninaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands á Spáni, með
aðsetur í París.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í sýningunni og sýndi hæfhi
sína við björgun manna við ýmsar aðstæður.
V estmannaeyj ar;
Bæjarfulltrúar grill-
uðu pylsur í bæjarbúa
Vestmannaeyjum.
HÁTÍÐARHÖLDUM í tilefni 70 ára afmælis Vestmannaeyjabæj-
ar lauk á laugardag en hátíðarhöldin höfðu þá staðið yfir í eina
viku. Ágætt veður var í Eyjum á laugardag og tók fjöldi bæj-
arbúa þátt í hátíðarhöldum dagsins.
Dagskráin hófst með björgun-
arsýningu á Stakkagerðistúni,
sem félagar úr Björgunaffélagi
Vestmannaeyja sáu um. Þyrla
Landhelgisgæslunnar tók þátt í
sýningunni og sýndi hæfni sína
við björgun manna við ýmsar að-
stæður.
Eftir björgunarsýninguna vom
uppákomur í Ráðhúströðinni. Þar
höfðu verið sett upp stór og mik-
il grill og stóðu bæjarfulltrúar við
þau og grilluðu pylsur í bæjarbúa.
Nokkrar Eyjahljómsveitir komu
fram og fluttu hljómlist fyrir við-
stadda.
Ágætis veður var og góð
stemmning ríkti hjá þeim fjöl-
mörgu sem þátt tóku í lokum
þessarar afmælishátíðar í Eyjum.
Sýningum, sem settar vom upp
í tilefni afmælisins, lauk síðan á
sunnudag og lauk þar með form-
legum hátíðarhöldum vegna af-
mælisins.
Grímur
Frá ársfimdi fulltrúaráðs Bréfaskólans,
Ungmennafélag Is-
lands gerist aðili
að Bréfaskólanum
ÁRSFUNDUR fulltrúaráðs
Bréfaskólans var haldinn að Hall-
veigarstöðum við Túngötu fyrir
nokkru.
Á þessum vetri gerðist Öryrkja-
bandalag íslands eignaraðili að
Bréfaskólanum og í vor samþykkti
sfjóm Ungmennafélags íslands að
ganga til samstarfs við skólann og
verður gengið formlega frá eignar-
aðild í júní.
Önnur fjöldasamtök sem eiga
Bréfaskólann nú em: Alþýðusam-
band íslands, Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja, Farmanna-
og fískimannasamband íslands,
Kvenfélagasamband íslands, Sam-
band íslenskra samvinnufélaga og
Stéttarsamband bænda.
Skólinn hefur nú samstarf um
fullorðinsfræðslu við margar aðrar
skóla- og menntastofnanir, m.a.
Fræðsluvarpið, Bankamannaskól-
ann og menntamálaráðuneytið. í
undirbúningi er ennfremur sam-
vinna við Ferðaþjónustu bænda og
Iðntæknistofnun íslands um starfs-
menntun. (Úr fréttatilkynningu.)
Utanríkisráðherra í Brussel og Bonn:
Rætt um formennsku
íslendinga í EFTA
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni fréttaritara Morgunbladsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra ræddi í gær við
forráðamenn Evrópubandalags-
ins (EB) hér í Brussel. í dag held-
ur hann til Bonn til viðræðna við
ráðamenn þar og kemur síðan á
ný hingað til Brussel og hittir
forseta framkvæmdasfjórnar EB.
Með þessum viðræðum hefjast
formleg samskipti utanríkisráð-
herra sem formanns ráðs
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) við forystumenn EB og
aðildarríkja þess.
í gær hitti utanríkisráðherra tvo
framkvæmdarstjómarmenn EB að
máli, þá Franz Ándriessen, sem fer
með utanríkismál, og Danann
Henning Christophersen, varafor-
seta framkvæmdastjómarinnar. í
dag heldur Jón Báldvin síðan til
Bonn og hittir Hans Dietrich Gensc-
her utanríkisráðherra sambands-
stjórnarinnar þýsku. Síðdegis snýr
hann aftur til Brussel og ræðir þá
við Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjómar EB.
Viðræðurnar snúast um samband
EFTA og EB næstu sex mánuði, á
meðan íslendingar hafa forystu í
málefnum EFTA. Beinist athyglin
einkum að svokallaðri þriðju leið í
samskiptum EFTA og EB, það er
starfi fimm vinnuhópa að því að,
finna gmndvöll að samningavið-
ræðum í framtíðinni. Reiknað er
með að viðræður EFTA og EB um
sameiginleg hagsmunamál á gmnd-
velli tillagna hópanna hefjist í byij-
un janúar á næsta ári.
Stöð 2 selur eftii á
myndbandssnældum
o
INNLENT
STÖÐ 2 hefur hafið sölu á mynd-
bandssnældum með upptökum
frá torfærukeppnum þeim sem
stöðin tekur upp í sumar. Að
sögn Guðmundar Amar Jóhanns-
sonar markaðsstjóra Islenska
myndversins er hér fyrst og
fremst um tilraunasölu að ræða,
og ekki hefiir verið tekin ákvörð-
un um sölu á öðru efni.
Guðmundur sagði að snældur
með upptökum frá torfæmkeppnum
væm fjölfaldaðar eftir pöntunum
og sendar út í póstkröfu. Verð
hverrar snældu mun vera innan við
tvö þúsund krónur. Aðspurður sagði
Guðmundur að upptöku- og sýning-
arréttur heimilaði slíka fjölföldun
og sölu, auk þess sem myndir frá
þessum torfæmkeppnum væru
seldar í samráði við framkvæmdar-
aðila keppnanna.