Morgunblaðið - 04.07.1989, Síða 22
22
Heildarupphæð vinn-
inga 1. júlí 1989 var
kr. 3.945.753,-.
2 höfðu 5 rétta og fær
hvor kr. 908.258,-.
Bónusvinninginn
fengu 4 og fær hver
kr. 78.869,-.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 4.319,-
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr.
351,-.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Siónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
1 x67
@67676711
1 — — . J Steindór Sendibílar
MÓRbú^BLAÐÍÖ 'ÞRÍÐÍUtlAGtíR'iriMi' 1989
Palme-morðið:
Vitni gefur Pettersson
nvja fíarvistarsönnun
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
ALDRAÐUR Svíi kom Christer
Pettersson, sem ákærður er fyr-
ir morðið á Olof Palme, fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóðar, til-
hjálpar við yfirheyrslur í morð-
málinu í gær er hann fullyrti
að hann hefði séð hinn ákærða
fjarri morðstaðnum um það
leyti sem ódæðið var framið.
Algot Asell, en svo heitir hinn
68 ára gamli húsvörður, sem bar
vitni í gær, sagðist hafa séð Pett-
ersson á jámbrautarstöð 40 kíló-
metrum.fyrir norðan Stokkhólm
um það leyti sem morðið var fram-
ið. Kemur það heim og saman við
framburð þess ákærða, sem hefur
stöðugt haldið því fram að hann
hafi haldið heimleiðis með lest sem
farið hafi úr miðborg Stokkhólms
rétt fyrir klukkan 11 um kvöldið.
Vegna ölvunar hefði hann sofnað
í lestinni og ekki rankað við sér
fyrr en á endastöð, í Mársta, um
hálftólf-leytið. Þaðan hafi hann
farið til baka með næstu lest.
Asell segist hafa séð Pettersson
sitjandi á bekk í Mársta-stöðinni
og kveðst hafa farið þaðan með
lest klukkan 23.40, eða þeirri
sömu og Pettersson segist hafa
farið með til baka. Olof Palme var
myrtur skammt frá Grand-kvik-
myndahúsinu í miðborg Stokk-
hólms klukkan 23.21.
Asell sagðist viss um að hann
ruglaði Pettersson ekki saman við
annan mann. Hann hefði þekkt
Pettersson strax því hann hefði
séð hann mörg hundruð sinnum
þar sem þeir byggju á sömu slóð-
um.
Þrátt fyrir ítrekaðar spumingar
Anders Helins saksóknara svaraði
Asell hiklaust og þóttí framkoma
hans öll í réttinum og viðbrögð
traustvekjandi. Enginn er til að
staðfesta framburð hans en tilsvör
hans þykja samt styrkja málstað
Petterssons og veijenda hans.
Gert er ráð fyrir að yfirheyrslum
í Palme-málinu ljúki 10. júlí.
Frétta-
ritara vísað
frá Kúbu
Heimspekingurimi
A. J. Ayer látinn
London. Reuter.
BRESKI heimspekingurinn Alf-
red Jules Ayer lést á miðviku-
dag í síðustu viku, 78 ára að
aldri. Ayer hefur verið í hópi
virtustu heimspekinga síðan
hann skrifaði bókina Tungu,
sannleika og rökfræði er hann
var 26 ára gamall.
Að loknu námi í Eton-mennta-
skólanum hlaut Ayer styrk til
náms í Oxford. Tuttugu og eins
árs gömlum var honum boðin
kennarastaða við háskólann þótt
hann hefði ekki lokið prófi. Aður
en Ayer tók við stöðunni dvaldist
hann ijóra mánuði í Vínarborg í
samneyti við hinn fræga Vínar-
hring. Sú vist með mörgum af
þekktustu vísindaheimspekingum
heims hafði varanleg og mótandi
áhrif á Ayer. Hann tileinkaði sér
þá hugsun Austurríkismannanna
að hátimbraðar, frumspekilegar
vangaveltur séu á, misskilningi
byggðar, að hægt sé að afhjúpa
innihaldsleysi þeirra með ná-
kvæmri rannsókn tungumálsins
og að hver sú setning, sem ekki
er hægt að ganga úr skugga um
að sé sönn, sé í raun merkingar-
iaus. Alla tíð síðan hefur Ayer
verið einn þekktasti talsmaður
•pósitívista.
Ayer, sem var þríkvæntur, var
kunnur í Bretlandi fyrir margví-
sleg áhugamál sín eins og til
dæmis knattspyrnu. Á sjötta ára-
tugnum kastaði hann öðru hvetju
prófessorsskikkjunni til þess að
koma fram í sjónvarpsþáttum sem
annálaðir urðu fyrir skemmtileg-
heit og leiftrandi gáfur heimspek-
ingsins.
Havana. Reuter.
EINN fréttaritara Reuter -
fréttastofimnar á Kúbu var rek-
inn úr landi á sunnudaginn og
gefið að sök að hafa farið með
lygar.
Gilles Trequessar, fréttaritari,
var vakinn af lögreglu á sunnu-
dagsmorgun, fluttur út á flugvöll-
inn í Havana og sendur með fyrstu
vél til Toronto í Kanada. Trequess-
ar var gefið að sök að hafa logið
því í frétt sem hann sendi frá sér
á laugardag að félagi í stjórn-
málaráði Kommúnistaflokks Kúbu,
Osmany Cienfuegos, hefði leitað
hælis hjá sendiráði Venezúela í
Havana. í fréttinni var þess getið
að ekki væri vitað hvort atvik þetta
tengdist á einhvem hátt réttar-
höldum yfir Arnaldo Ochoa Sanc-
hez hershöfðingja sem sakaður er
um fíkniefnasmygl.
Fréttin var höfð eftir manni sem
sagður var nákominn fjölskyldu
Cienfuegos en tekið fram að hún
hefði ekki fengist staðfest. Trequ-
essar er einnig sakaður um að
hafa logið því í frétt sinni að yfir-
maður kúbverskrar ferðaskrif-
stofu, Abraham Maciques, væri nú
í stofufangelsi vegna gruns 'um
aðild að fíkniefnamáli.
Tafir í
flugi
frá Spáni
Mæjorku. Reuter.
Ferðamenn á heimleið frá
eynni Mæjorku þurftu að bíða
í allt að tólf tíma eftir að vélar
sem þeir áttu bókað far með
færu frá flugvellinum á Mæj-
orku á sunnudaginn. Flestir
töfðust þó aðeins um þijá til
fjóra tíma en flugmálayfirvöld
sögðu tafirnar stafa af mikilli
flugumferð og verkfalli á flug-
vellinum í Marseilles í Frakk-
landi. Búist var við að um
1000 flugvélar og 100.000
farþegar færu um flugvöllinn
á Mæjorku um síðustu helgi.
Flórída:
Herferð gegn
fíkniefnum
Miami. Reuter.
Fíkniefnalögreglan á
Flórída handtók um 2.200
manns í herferð gegn fíkniefn-
um um helgina. Um eitt þús-
und lögreglumenn tóku þátt í
aðgerðunum er beindust eink-
um gegn seljendum og notend-
um krakks, sem er ódýr en
mjög hættuleg tegund af kók-
aíni. Um þriðjungur hinna
grunuðu var handtekinn í ná-
grenni borganna Miami og
Fort Lauderdale og um 400
voru handteknir í sveitahéruð-
um í norðanverðu Flórída.
Lögreglan tók í sína vörslu um
50.000 Bandaríkjadali (um
þijár milljónir ísl. króna), 291
bíl, um 3000 mola af krakki
og 4,5 kíló af kókaíni.
Ítalía:
Mannræningj-
ar
senda eyra í
pósti
Róm. Reuter.
Hluti af eyra Marzios Perr-
inis, sem rænt var á Ítalíu í
desember sl., fannst í póst-
kassa í Róm á sunnudag.
Hringt var í dagblað þar í
borg og tilkynnt hvar eyrað
væri að finna. í sama umslagi
var mynd af Perrini. ítalskir
mannræningjar hafa fyrr
skorið eyru af fórnarlömbum
sínum til þess að þrýsta á að
lausnargjald verði greitt. Talið
er að mannræningjar feli Perr-
ini og fimm aðra menn í skógi
vöxnu fjallahéraði á Suður-
Ítalíu. Lögreglan er nú að
hefja aðgerðir gegn mannræn-
ingjunum á þessu svæði. Þús-
undir lögreglumanna munu
taka þátt í leit að mönnunum
næstu daga og nota til þess
þyrlur og sporhunda.
Sádí-Arabía:
Sjö konur tróð-
ust undir
Riyadh. Reuter.
Sjö konur biðu fyri skömmu
bana þegar þær tróðust undir
í brúðkaupsveislu í Sádí-
Arabíu. Rafmagnið fór af og
þá þustu boðsgestimir, sem
voru allt konur, út úr veislunni
með þeim afleiðingum að sjö
létust. Þrjáreru alvarlega slas-
aðar og 22 meiddar.