Morgunblaðið - 04.07.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JULI 1989
29
Gautaborgarháskóli:
Doktorsritgerð um
áverka á ökklalið
ÞANN 8. maí sl. varði dr. Jón
Karlsson doktorsritgerð sína við
læknadeild Gautaborgarháskóla
í Svíþjóð. Ritgerðin nefnist
„Charonic Lateral Instability óf
the Ankle Joint. A Clinical, Rad-
iological and Experimental
Study“. Ritgerðin fjallar um
áverka á ökklalið og viðgerðir
á þeim, einkum liðbandaáverka
utanvert á ökklann, sem er al-
gengasti áverki sem íþrótta-
menn verða fyrir. Sýnt er fram
á að nýjungar í skurðaðgerðum
gefa betri og öruggari langtíma
árangur en eldri aðferðir. Nýrri
aðferðir til viðgerða eru jafn-
framt einfaldari en eldri og líkur
á fylgikvillum mun minni. Talið
er að þetta muni einkum nýtast
íþróttamönnum, en ökklaáverk-
ar hafa yfirleitt verulega þýð-
ingu fyrir íþróttaiðkendur.
Dr. Jón Karlsson er fæddur
1953, sonur hjónanna Láru M.
Benediktsdóttur og Karls M. Jóns-
sonar frá Klettstíu í Norðurárdal.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1972 og kandídatsprófi frá lækna-
deild Háskóla íslands 1978. Hann
hefur verið við framhaldsnám í
bæklunarskurðlækningum við
Östra-sjúkrahúsið í Gautaborg og
við Gautaborgarháskóla frá 1981.
Hann hlaut sérfræðiréttindi í bækl-
unarskurðlækningum bæði í
Svíþjóð og á íslandi 1986. Hann
hefur fyrir utan doktorsritgerð sína
ritað fjölmargar vísindagreinar um
bæklunarskurðlækningar bæði í
íslensk og erlend læknatímarit.
Hann starfar nú sem sérfræðingur
við bæklunarskurðdeild Östra-
sjúkrahússins í Gautaborg. Hann
hefur að auki í frístundum verið
ötull starfskraftur við íþróttalækn-
ingar í Svíþjóð og hefur m.a. verið
læknir sænska knattspyrnulands-
liðsins síðan 1985.
Hæstiréttur:
Morgunblaðið/Árni
Rann mannlaus yfír fjölfarnar götur
Aðfaranótt laugardagsins rann þessi leigubíll mannlaus úr stæði sínu við Skeljabrekku í Kópa-
vogi, sem leið lá niður götuna og þvert yfir Hafnarfjarðarveg. Þar lét bifreiðin ekki staðar numið,
heldur rann áfram niður brekkuna neðan við HaftiarQarðarveg og yfir Kársnesbrautina. Einfarinn
var þá kominn á allmikla ferð, eins og sjá má af því að hann hefúr runnið upp brattan grjótkant
og brotið niður grindverk og limgerði við Helgubraut 8. Bifreiðin skemmdist þó ekki mikið. Bæði
Kársnesbraut og HaftiarQarðarvegur eru mjög Qölfarnar götur, en svo heppilega vildi til að bifreið-
in lagði upp í ferðalajgið á þeim tíma sólarhrings sem lítil umferð er, og vegfarendur eða ökumenn
biðu ekki skaða af. A myndinni bendir vitni að óhappinu á upphafsstað ferðarinnar.
Ber að greiða viðtökusím-
töl eftir íslenzkri gjaldskrá
Dr. Jón Karlsson
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 3. júií. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,50 40,00 47,52 56,991 2.708.508
Þorskur(smár) 32,50 32,50 32,50 2,714 88.207
Ýsa 75,00 20,00 27,77 6,647 184.609
Karfi 25,50 20,00 21,94 51,875 1.139.156
Ufsi 22,00 1.0,00 20,23 6,644 134.428
Steinbítur 41,50 30,00 39,43 6,910 272.438
Langa 25,00 21,00 22,86 2,496 57.080
Lúða 140,00 70,00 110,06 0,686 75.597
Koli 55,00 35,00 54,57 1,751 95.548
Keila 10,00 10,00 10,00 0,142 1.420
Skötuselur 290,00 120,00 264,68 0,218 57.846
Skötuselur 96,00 70,00 73,51 0,896 65.919
Skata 40,00 40,00 40,00 0,035 1.424
Ufsi (smár) Samtals 9,00 9,00 9,00 35,21 0,881 138,911 7.933 4.890.843
í dag verður seldur fiskur úr ýmsum bátum, aðallega þorskur, karfi og ýsa. FAXAMARKAÐUR hf. i Reykjavík
Þorskur 58,00 15,00 49,98 33,069 1.652.742
Blandað 15,00 8,00 11,18 0,077 861
Ýsa 87,00 40,00 62,78 9,796 615.078
Karfi 26,00 15,00 22,66 5,201 117.870
Ufsi 21,00 8,00 19,73 11,091 218.855
Steinbítur 39,00 38,00 38,03 1,553 59.054
Langa 9,00 9,00 9,00 0,026 234
Rauðmagi 12,00 11,00 11,64 0,128 1.490
Lúða 190,00 155,00 175,26 0,288 50.475
Skarkoli 56,00 25,00 53,07 2,720 144.369
Skata 52,00 52,00 52,00 0,039 2.028
Skötuselur Samtals 100,00 80,00 86,08 44,90 0,240 64,229 20.660 2.883.717
Selt var úr Skógey SF og handfærabátum. í dag verður selt úr Viðey RE karfi, þorskur, ýsa og ufsi. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 68,00 38,00 51,61 36,594 1.888.611
Öfugkjaf. 21,00 21,00 21,00 1,000 21.000
Ýsa 62,00 8,00 50,05 23,070 1.154.740
Karfi 24,50 20,50 22,12 9,695 214.499
Ufsi 35,50 15,00 29,01 16,122 467.660
Steinbítur 40,50 15,00 37,21 8,480 315.545
Langa 32,00 21,00 28,17 2,300 64.800
Lúða 145,00 70,00 113,27 0,799 90.563
Solkoli 50,00 50,00 50,00 1,500 75.000
Skarkoli 50,00 46,00 46,87 2,300 107.800
Keila 15,00 15,00 15,00 0,015 225
Skata 60,00 10,00 24,11 0,209 5.040
Skötuselur 365,00 365,00 365,00 0,126 45.990
Langlúra 12,00 12,00 12,00 1,440 17.280
Undirm.fis. Samtals 25,00 6,00 10,38 0,260 2.700
Selt var úr Eldyejarboða, Þuríði Halldórsdóttur og handfærabát-
um. 1 dag verður selt Sveini Jónssyni. úr Eini GK, Hörpu GK, Verði ÞH og
HÆSTIRETTUR hefur staðfest í meginatriðum dóm undirréttar í
máli, sem kona höfðaði gegn Pósti og síma. í héraðsdómi féll dóm-
ur þess efiiis að konunni bæri að greiða samkvæmt íslenzkri gjald-
skrá fyrir viðtökusímtöl (,,collect“-símtöl), sem maður hennar pant-
aði í Bandarikjunum, en hún samþykkti að greiða heima á Is-
landi. Konan hélt því hins vegar fram að samtölin hefði átt að
greiða samkvæmt taxta bandarísks símafélags, og krafði Póst og
síma um 22.522 krónur ásamt vöxtum, auk málskostnaðar í héraði
og í Hæstarétti.
Konan taldi, að 1 eiginmaður
hennar hefði samið við símafélag
í Illinois-ríki í Bandaríkjunum um
símtölin, sem deilt er um, og að
hún hefði eftir þeim samningi átt
að greiða eftir taxta hins banda-
ríska félags. Hæstarétti þykir hins
vegar ekki sannað að um slíkan
samning hafi verið að ræða, og
fellst því ekki á að á Pósti og síma
hvíli skuldbinding á þeim grund-
velli. í dómi Hæstaréttar segir að
það sé hins vegar óumdeilt að kon-
an hafi samþykkt að símtöl, sem
maður hennar pantaði í Banda-
ríkjunum, yrðu færð til skuldar á
símreikning þeirra hjóna í
Reykjavík. Ekkert hafi komið
fram, sem bendi til þess að við þau
tækifæri hafi verið tekið fram,
hvaða gjaldskrá skyldi nota.
Fyrir Hæstarétt var lögð til-
kynning frá Pósti og síma frá 27.
júní 1985 um breytingar á gjald-
skrá fyrir talsíma fyrir útlanda og
fleiri atriði. Með fylgdi skrá um
gjaldflokka. Konan mótmælti því,
að tilkynningin sé gjaldskrá sam-
kvæmt fjarskiptalögum, og í
dómnum segir að ekki verði séð
að hún hafi verið birt eftir reglum
laga um birtingu laga og sljórn-
valdaerinda. Hins vegar sé því
ekki mótmælt af hálfu konunnar
að gjaldið, sem hún var krafin um
fyrir símtölin, hafi verið rétt reikn-
að eftir verðtöxtum í tilkynning-
unni.
Hæstiréttur kemst að þeirri nið-
urstöðu að ekki hafi verið birt hér
á landi ákvæði, sem beint og berum
orðum segi til um réttarstöðu máls-
aðila. Hins vegar sé fram komið,
að í alþjóðareglum segi að gjald
fyrir viðtökusímtöl skuli vera eins
og við eigi í landi þess notanda,
sem gjaldið greiði. Þessi ákvæði
verði eins og á standi að leggja til
grundvallar dómi í málinu. Réttur-
inn staðfestir því héraðsdóm, að
öðru leyti en því að málskostnaður
í héraði fellur niður. Málskostnaður
fyrir Hæstarétti er einnig felldur
niður.
Brids:
Islenska unglingaliöið í 5.
sæti á Norðurlandamóti
íslenska unglingalandsliðið í brids varð í 5. sæti af 9 liðum á Norður-
landamóti yngri spilara sem lauk um helgina í Svíþjóð. A-lið Norð-
manna vann mótið með nokkrum yfirburðum.
Keppt var í tveimur aldursflokk-
um, 25 ára og yngri og 20 ára og
yngri, en liðin spiluðu öll innbyrðis.
Fjögur Norðurlandanna sendu tvö lið
en Island sendi eitt lið.
Lokastaðan varð þessi: Noregur A
366, Danmörk A 325, Noregur B
300, Svíþjóð A 272, ísland 270, Finn-
land A 250, Svíþjóð B 249, Danmörk
B 234, Finnland B 177.
4
íslenska liðið var skipað Matthíasi
Þorvaldssyni, Hrannari Erlingssyni,
Sveini R. Eiríkssyni, Steingrími G.
Péturssyni og Áma Loftssyni. Bjöm
Eysteinsson var fyrirliði.
Rut Rebekka sýnir
á listahátíð í Svíþjóð
VERK eftir Rut Rebekku Sigur-
jónsdóttur, listmálara, verða
sýnd á listahátíð í Piteá í
Svíþjóð sem hefst 1. júlí nk.
Listahátíð er haldin á hverju
ári í Piteá sem er í Norbotten
í Svíþjóð. Til hennar er aðallega
boðið tónlistarmönnum en að
þessu sinni hefur Rut Rebekku
verið boðið að sýna verk sín
þar.
Síðast liðið haust hélt Rut Re-
bekka málverkasýningu á Kjarv-
alsstöðum. Myndirnar á þeirri
sýningu sýndu allar hljóðfæraleik-
ara. Að sögn Rutar kom hópur
Svía á þessa sýningu og mun ein-
hver þeirra hafa bent forráða-
mönnum listahátíðarinnar í Piteá
á myndefni sýningarinnar. Á sýn-
ingunni í Piteá verður myndefnið
hið sama. Sýnd verða 42 verk
eftir Rut Rebekku, vatnslita-
myndir, grafík og olíumálverk.
Þetta eru myndir af sýningunni á
Kjarvalsstöðum og einnig myndir
málaðar í vetur.
Listahátðin í Piteá stendur í 9
Rut Rebekka Morgunblaðið/Þorkell
daga og var Rut Rebekku boðið
að vera viðstödd opnun sýningar
sinnar. Margt frægra tónlistar-
manna kemur fram á listahátíð-
inni og má þar nefna finnska
hljómsveitarstjórann Esa-Pekka
Salonen, sænska sellóleikarann
Frans Helmerson og þýska fiðlu-
leikarann Leon Spierer.