Morgunblaðið - 04.07.1989, Side 52
itfftlft*i*%iftiftiftlftfllftT fMfff
SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S JV JpiHIlIiP WW 0SAMBANDSINS HÓLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Vélsmiðja í Ytri-Njarðvík:
Gaskútur sprakk og
Jbrak þeyttíst 200 metra
Tvo starfsmenn rétt hjá sakaði ekki
Keflavík.
TVEIR starfsmenn í vélsmiðjunni Kópa hf. í Ytri-Njarðvík sluppu með
skrekkinn í gær þegar gaskútur sem stóð fyrir utan vélsmiðjuna sprakk.
Brak úr kútnum þeyttist um 200 metra, en mennirnir sem voru við
vinnu í vélsmiðjunni sakaði ekki. Þykir það hin mesta mildi, þvi annar
stóð í um 7 metra frá kútnum þegar hann sprakk, en hinn í um 15
metra fjarlægð.
Þorsteinn Hákonarson, fram-
kvæmdarstjóri vélsmiðjunnar, sagði
að starfsmaður hefði verið að vinna
með logsuðutækjum og lagt þau frá
sér. Tækin hefðu dottið og eldurinn
beinst að gaskútnum og náð að
brenna á hann lítið gat. Þegar starfs-
Bifreið valt
í Álftafirði
BÍLVELTA varð í Álftafirði um
kl. 3 á sunnudag. Slysið varð með
þeim hætti að er tveir bilar
mættust á veginum lenti annar
yfphíllinn í lausamöl með þeim af-
leiðingum að hann fór nokkrar
veltur og hafiiaði utan vegar.
Tvennt var í bílnum og slösuðust
bæði töluvert við þetta óhapp. Að
sögn lögreglunnar í Stykkishólmi
munu þau ekki vera í lífshættu.
Grímsey:
11 vélar á
flugvellin-
um í einu
Grímsey.
ELLEFU flugvélar af gerð-
inni Comanche lentu hér á
flugvellinum fyrir skömmu og
hafa aldrei jafn margar flug-
vélar verið í einu hér á flug-
vellinum.
maðurinn hefði séð hvað orðið var
hefði hann þegar í stað skrúfað fyrir
gasið og sprautað vatni á kútinn.
Hann hefði síðan farið út með gas-
kútinn og haldið áfram að sprauta á
hann vatni til kæiingar. Þorsteinn
sagði að um 70 mínútur hefðu liðið
frá því að óhappið varð og þar til
gaskúturinn sprakk.
Að sögn Þorsteins varð talsvert
tjón á húsinu. Skemmdir urðu á þaki,
hurðum og einar 16 rúður brotnuðu
við sprenginguna. Hluti úr kútnum
lenti á þaki húss við Hæðargötu 10
og skemmdi það lítillega og einn hlut-
inn fannst á lóð hússins við Gónhól
7. Lögregia, slökkvi- og sjúkralið var
kallað á staðinn, en þá hafði starfs-
mönnunum tekist að slökkva smá-
vægilegan eld sem kviknaði við
sprenginguna.
BB
Verkfallsboð-
un farmanna
HÁSETAR á farskipum boðuðu
í gær verkfall frá miðnætti næst-
komandi mánudagskvöld til há-
degis fóstudagsins 14. júlí. Boðað
yfirvinnubann háseta tekur gildi
á morgun klukkan 17.
Deiluaðilar sátu á fundi í gær
hjá ríkissáttasemjara án þess að
nokkuð þokaði í samkomulagsátt.
Annar fundur hefur verið boðaður
á morgun, miðvikudag, klukkan tíu.
Þá voru flugvirkjar á fundi hjá
ríkissáttasemjara í gær og héldu
áfram fundarhöldum í gærkvöldi.
Fundi var ekki lokið um miðnættið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Dr. Charles Mack var vel fagnað af íslenzkum vinum og kunningjum er hann steig út úr flugvél sinni
á Reylqavíkurflugvelli. Gamall vinur hans, Óli B. Jónsson, varð fyrstur til að heilsa honum.
Charles Mack, sjötugur ofurhugi:
Þijú heimsmet á fáum dögum
Hefur nýlokið pólflugi milli Alaska og Finnlands
Bandaríkjamaðurinn dr. Charles Mack lenti í gærkvöldi eins-
hreyfilsflugvél sinni af gerðinni Beechcraft Bonanza A36 á
Reykjavíkurflugvelli. Mack, sem er tæplega sjötugur, afrekaði það
fyrir fáum dögum að fljúga fyrstur manna einn síns liðs á lítilli flug-
vél frá Alaska, yfir Norðurpólinn og til Finnlands. Hingað kom
hann beint frá Le Bourget-flugvelli við Parísarborg, og er það
fyrsta eins manns flug á einshreyfílsvél þá leið. Eftir nokkra daga
hyggst hann verða fyrstur til að fljúga einn í slíkri flugvél frá
Reykjavík til Bangor í Maine-ríki á austurströnd Bandaríkjanna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mack er hér á landi. Hann flaug
orrustu- og sprengjuflugvélum frá Reykjavíkurflugvelli á stríðsárun-
um og kynntist þá konu sinni, Gyðu Breiðgörð, sem er úr Hafiiarfirði.
Mack sagðist hafa fengið hug-
myndina að Atlantshafsfluginu í
kennslustund við háskólann í San
José í Kaliforníu, þar sem hann
kenndi flugvélaverkfræði og sigl-
ingafræði. „Einn nemenda minna
spurði hvað ég ætlaði að gera
næsta sumar og ég svaraði í hálf-
kæringi að kannski tæki ég flugvél-
ina mína og flygi í einni lotu til
Parísar. Ég varð auðvitað að
standa við þessa yfirlýsingu til þess
að nemendurnir gætu ekki kallað
mig vindbelg. Margir spurðu þá
hvað ég ætlaði að gera næst, og
mér fannst að pólflug væri verðugt
viðfangsefni."
Mack segir pólflugið hafa verið
erfitt. Það tók 19 stundir og 57
mínútur. „Segulkompás kom að
engu gagni og ég varð að notast
við snúðáttavita, sem tekur mið af
geimnum en ekki segulskauti Jarð-
ar og snúningur Jarðar ruglar
stefnuna sífellt. Svo tók ég sólar-
áttina og reiknaði þannig út stefn-
una á Helsinki.“
Síðastliðið sumar flaug Mack
sólóflug frá París til New York,
öfuga leið við hið fræga Atlants-
hafsflug Charles Lindberghs. Er
hann kom til Parísar fyrir þremur
dögum fór einn af forsvarsmönnum
Aerospace-safnsins á Le Bourget-
flugvelli fram á það við hann að
safnið fengi að eignast flugvélina
hans, þar sem Bandaríkjamenn
hefðu fengið í sinn hlut The Spirit
of Saint Louis, sem _ Lindbergh
flaug til Parísar. „Ég sagðist
myndu athuga það,“ sagði Mack.
Vélarnar tilheyra flugklúbbi
kenndum við þessa flugvélateg-
und. 10 vélar voru frá ýmsum
Evrópulöndum en ein er íslensk.
Með vélunum komu 26 manns.
Fólkið kom um tíuleytið að
kvöldi og var hér í klukkustund.
Það skoðaði eyjuna og fékk skjal
því til staðfestingar að það hefði
komið norður fyrir heimskauts-
baug.
Þennan sama dag komu fjór-
ar flugvélar frá Flugfélagi Norð-
urlands. Því lentu 15 flugvélar
hér í Grímsey þennan dag, sem
einnig er met.
Bára
Landfryst þorskflök hækka
um 5 af hundraði í Bretlandi
Fyrsta verðhækkun á þorski síðan í janúar 1987
Fisksölufyrirtæki Sambands-
ins og Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Bretlandi
hækkuðu um mánaðamótin
verð á landfrystum þorskflök-
um um allt að 5%.
„Þetta er í fyrsta skipti síðan
í janúar 1987 sem verðhækkun
Maður í haldi vegna mannsláts:
Játar ryskingar við hinn látna
SAKADÓMUR Reykjavíkur
hefúr úrskurðað mann í tólf
daga gæzluvarðhald vegna
rannsóknar á láti fertugs
manns. Hann hefur játað að
hafa verið staddur í húsi með
hinum látna og lent í ryskingum
við hann. Maðurinn hefiir kært
úrskurðinn til Hæstaréttar.
Maðurinn lézt á laugardaginn.
Hann hafði komið heim til sín á
föstudagskvöldið og kvartað und-
an eymslum í maga. Um hádegis-
bil á laugardag hringdu ættingjar
hans á sjúkrabíl. Hann var þá
meðvitundarlaus og báru lífgun-
artilraunir læknis ekki árangur.
Maðurinn bjó hjá foreldrum
sínum. Hann mun hafa sagt þeim
að hann hefði lent í ryskingum,
en ekki við hvern eða hveija.
Rannsóknarlögreglan hefur yfir-
heyrt nokkra menn vegna máls-
ins, auk hins handtekna. Niður-
stöður krufningar um dánarorsök
mannsins liggja ekki fyrir.
hefur orðið á frystum þorski hér
í Bretlandi,“ sagði Sigurður Á.
Sigurðsson forstjóri Iceland Sea-
food I/lt., dótturfyrirtækis Sam-
bandsins, við Morgunblaðið.
Friðrik Pálsson forstjóri SH
staðfesti að landfryst þorskflök
hefðu einnig hækkað í verði hjá
Icelandic Freezing Plants Ldt.,
dótturfyrirtæki SH í Bretlandi,
um mánaðamótin.
„Við höfum beðið mjög lengi
eftir tækifæri til að hækka þorsk-
flökin,“ sagði Sigurður Á. Sig-
urðsson. „Verð á þorski hefur far-
ið lækkandi í vetur en núna gafst
þetta tækifæri til verðhækkunar
vegna aukinnar eftirspurnar á
landfrystum flökum og markaður-
inn hefur tekið því nokkuð vel.“
Sigurður sagði að þessa auknu
eftirspurn mætti meðal annars
rekja til þess að fyrirsjáanleg
væri þurrð á þorski þegar kemur
fram á haustmánuði. Þá hefðu
frystihús Sambandsins framleitt
frekar lítið af þorskflökum á Bret-
landsmarkað undanfarið og birgð-
ir væru því litlar.
Hins vegar hefur orðið birgða-
söfnun á sjófrystum þorskflökum
í Bretlandi og verð á þeim hefur
farið lækkandi frá því í vetur, að
sögn Sigurðar.
„Það var framleitt gífurlega
mikið á íslandi af sjófrystum flök-
um í febrúar, mars og apríl. Sá
fiskur seldist ekki eftir hendinni
og nú hafa okkar skip frestað
frekari þorskframleiðslu að sinni
þar til kaupin gerast betri á eyr-
inni,“ sagði Sigurður Á. Sigurðs-
son.