Morgunblaðið - 04.06.1999, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stofnun einkahlutafélags í eigu OR í undirbúningi
Hlutafé verður 200
milljónir króna
Vinnu við
mislæg gatna-
mót miðar vel
VINNU við mislæg gatnamót á
mótum Miklubrautar og Skeiðar-
vogs miðar vel og er samkvæmt
kostnaðaráætlun, að sögn Sig-
urðar I. Skarphéðinssonar gatna-
málastjóra. Heildarkostnaður við
verkið nemur um 550 milljónum
króna.
Verkið felur í sér að Skeiðar-
vogur kemur til með að fara yfir
Miklubraut, en Miklabraut held-
ur þeirri hæð sem hún hefur
núna. „Þessi gatnamót verða tek-
in í notkun í haust og er um að
ræða samstarfsverkefni Reykja-
víkurborgar og Vegagerðarinn-
ar. Þetta verk hefur gengið
óskaplega vel og er í réttu horfi
bæði hvað varðar tíma og pen-
inga,“ segir Sigurður.
Verktakarnir Völur hf. og
Sveinbjörn Sigurðsson standa
saman að verkinu og er gert ráð
fyrir að helstu framkvæmdum
verði lokið í byijun september og
öllum framkvæmdum um mán-
aðamótin október/nóvember.
SAMÞYKKT var í borgarstjórn
Reykjavíkur í gær að undirbúa
stofnun einkahlutafélags í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur, sem hafi
það hlutverk að annast gagnaflutn-
ing og fjarskiptaþjónustu, hlutafé
verði allt að 200 milljónum króna.
Sjálfstæðismenn í borgarstjóm
gagnrýndu undirbúning málsins,
sögðu hann ónógan og að ekki
lægju fyrir arðsemisútreikningar
og hagkvæmniathuganir
Helgi Hjörvar, formaður stýri-
hóps um undirbúning félagsins,
sagði það áhugaverðan kost að
koma upp ljósleiðaraneti og að að-
staða Orkuveitu Reykjavíkur til
þjónustu í gagnaflutningum við
notendur netsins og á sviði fjar-
skiptaþjónustu væri einstök. Hann
sagði hraða þróun í þessari tækni
erlendis og taldi fýsilegt að ráðast
nú í stofnun fyrirtækis á þessu
sviði, sagði hann að forskot skipti
máli í þekldngarsamfélaginu.
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
minnihlutans, spurði hvar það
hefði verið reiknað út að fjárfest-
ing í ljósleiðarakerfi yrði arðbær.
Hún sagði ekki liggja á að taka
ákvörðun í þessu máli nú, þetta
væri ekki smámál. Taldi hún að
auk 200 milljóna króna hlutafjár,
væri fyrirsjáanleg fjárfesting
mörg hundruð milljónir króna eða
jafnvel milljarður. Hún sagði verk-
efnið spennandi og minnti á þá til-
lögu sjálfstæðismanna að undirbúa
útboð á nýtingu á lagnakerfi borg-
arinnar, sem lögð hafi verið fram í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, en
felld þar.
Hröð þróun
Alllöng umræða varð um málið
og töluðu margir borgarfulltrúar
beggja lista. Borgai-fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins gagnrýndu að litlar
upplýsingar hefðu fengist um málið
og mörgum spurningum væri
ósvarað bæði um tæknilega stöðu
slíkrar þjónustu og arðsemi. Borg-
arfulltrúar Reykjavíkurlistans
bentu á að þróunin væri hröð á
sviði hugbúnaðargerðar og tækni-
lausna á þessu sviði, þar væri talað
um mánuði en ekki ár og því væri
brýnt að hraða stofnun fyrirtækis
um þennan gagnaflutning. Sögðu
þeir samningsdrög lofa mjög góðu.
Morgunblaðið/Júlíus
Færri skemmti-
ferðaskip
GRÍSKA skemmtiferðaskipið Ocean
Majesty lagðist að bryggju í Reykja-
vík í gærmorgun og er það fyrsta
skemmtiferðaskipið sem kemur til
landsins á þessu sumri. Ocean Ma-
jesty er 10.417 brúttótonn og 131
metri að lengd. Skipið og farþegar
þess höfðu þó ekki langa viðdvöl í
Reykjavíkurhöfn, því um kiukkan
fimm í gær voru landfestar leystar
og það hélt siglingu sinni áfram.
Hafnsögumenn segja að í ár sé alls
37 skemmtiferðaskipa að vænta til
Reykjavíkur, en það séu mun færri
skemmtiferðaskip en komu þangað í
fyrrasumar. Á móti kemur að skipin
sem væntanleg eru virðast stærri og
hafa fleiri farþega innanborðs,
þannig að fjöldi ferðamanna sem hef-
ur hér viðdvöl muni því vera áþekkur
og verið hefúr.
Morgunblaðið/Kristinn
Vefskinna - Nýr vefur á mbl.is
OPNAÐUR hefur verið nýr vefur á
mbl.is, Vefskinna, sem auðveldar les-
endum leit að íslenskum vefjum eða
efni innan þeiiTa. Þar má finna skrá
yfir helstu vefi hérlendis, flokkaða
eftir efnisflokkum í valmyndinni í
vinstri dálki.
Þegar smellt er á flokkinn birtast
undirflokkar hans, sem aftur geta
átt sína undirflokka. Auðvelt er að
færa sig á milli flokka, en það er gert
með því að smella á nöfn þeirra, sem
birtast efst á síðunni. Einnig er hægt
að leita að efnisorðum eða nöfnum
vefja með því að slá þau inn í leita-
svæðið neðst í vinstri dálki. Efst í
hægri dálki eru taldir upp fimm
mest sóttu vefirnir, sem skoðaðir eru
frá Vefskinnu hverju sinni. Innan
flokksins Vefur vikunnar má finna
athyglisverðasta vefinn að mati
Morgunblaðsins. Yfirlit yfir nýja vefi
sem bætast við má finna þar fyrir
neðan.
Innan flokksins Er vefurinn þinn
skráður? gefst umsjónarmönnum
vefja tækifæri til þess að skrá inn
vefi sem munu í framhaldi birtast
innan Vefskinnu. Nú má finna rúm-
lega 2.200 vefi innan Vefskinnu.
Annar
drengjanna
kominn heim
ANNAR drengjanna tveggja,
sem brenndust er þeir voru að
leik á Eyrarbakka, er kominn
heim samkvæmt upplýsingum
frá Landspítala. Hinn drengur-
inn er enn á Landspítalanum
við sæmilega heilsu, en hann
brenndist í andliti, að sögn
læknis.
Arsreikningur Reykjavíkurborgar
Aldrei fyrr jafn-
mikið samræmi
TEKJUR og gjöld Reykjavíkurborg-
ar voru nærfellt þau sömu á síðasta
ári og gert var ráð fyrir í fjárhags-
áætlun, samkvæmt ársreikningi
borgarinnar sem lagður var fram í
gær. Skatttekjur samkvæmt fjár-
hagsáætlun voru 16.350 milljónir
króna en urðu samkvæmt ársreikn-
ingi 16.371 milljón króna sem er
0,13% umfram áætlun. Útgjöld vegna
reksturs málaflokka voru 13.949
milljónir samanborið við 13.925 millj-
ónir samkvæmt fjárhagsáætlun og er
frávikið 0,17%.
I frétt frá Reykjavíkurborg af
þessu tilefni segir að ný vinnubrögð
hafi verið viðhöfð við gerð fjárhagsá-
ætlunar frá og með árinu 1997. Þá
hafi verið tekin upp rammafjárhagsá-
ætlun sem lýsi sér í því að hver mála-
flokkur fái úthlutað tilteknum heild-
arfjárhagsramma og séu forsvars-
menn hvers málaflokks ábyrgir fyrir
því að starfsemin sé innan ramma.
Þetta auki sjálfstæði rekstrareininga
og líkur á að niðurstaða ársreiknings
sé í samræmi við fjárhagsáætlun.
Þá kemur fram að skuldir borgar-
sjóðs hafi hækkað um 826 milljónir
kr. Þar af séu 433 milljónir kr.
bundnai- í útistandandi kröfum borg-
arsjóðs. Að auki skýrist um 120 millj-
ónir króna af gengismun langtíma-
skulda. Þá standi eftir 273 milljónir
kr. sem sé raunveruleg skuldaaukn-
ing en það séu þær skuldir sem
Reykjavflcurborg tók yfir af Kjalar-
neshreppi við sameininguna.
Dómur yfír sterasmyglara staðfestur
Faldi 32 þúsund töfl-
ur í tösku ástkonu
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
eiganda líkamsræktarstöðvar sem
smyglaði til landsins 32 þúsund töfl-
um er hann taldi innihalda karlkyns-
hormón með anabóh'skri verkun, þ.e.
stera, ásamt því að hafa veitt viðtöku
tæplega 3.600 töflum sem innihéldu
slík hormón, sem maðurinn vissi eða
gat vitað að voru fluttar inn með ólög-
legum hætti. Þá var maðurinn einnig
ákærður fyrir að hafa ekið yfir leyfð-
um hámarkshraða án ökuréttinda.
Var maðurinn dæmdur til 45 daga
fangelsisvistar, skilorðsbundinnar til
tveggja ára, greiðslu 80 þúsund
króna sektar, þrigga mánaða svipt-
ingar ökuréttinda og upptöku lyfja,
auk greiðslu málskostnaðar.
Málavextir voru þefr helstir að
maðurinn, sem rak líkamsræktarstöð
í Reykjavík, keypti um 32 þúsund
töflur í London í janúar 1997, sem
hann taldi innihalda karlkynshorm-
ónalyf með anabólískri verkan, og
kom fyrir í farangri samferðakonu
sinnar. Töflui-nar fundust við tollleit í
farangri hennar á Keflavíkurflug-
velli, í þremur málmdósum utan af
sælgæti. Við leit í farangri mannsins
fundust nokkur kíló af sælgætismol-
um þeim sem áttu að vera í dósunum.
Efnagreining á töflunum leiddi í Ijós
að þær innihéldu mjólkursykur.
8 rnM/m
Á FÖSTUDÖGUM
líf
Fimleikar
þroska-
heftra
Aðgerðir
boðaðar
gegn ofbeldi
Með Morgun-
blaðinu í dag er
dreift blaði frá
Elko „Hitabylgja
Elko!“. Auglýs-
ingablaðinu er
dreift inn á
öll heimili
á Akureyri.
•••••••••••••••••••••••••••••
Eyjólfur hélt að boðið væri
falin myndavél/C2
Fer Jón Arnar á HM í
frjálsum í Sevilla?/C1
I;;:
w
I