Morgunblaðið - 04.06.1999, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
»«|wmuwmwh| N mi » Olitnir |ij|| SIEMtNS Ijíjl
1 i 1
ÞRÍR skólastjórar Grunnskólans í Boi garnesi. F.v.: Kristján Þ. Gísla-
son, Guðmundur Sigurðsson og Sigurþór Halldórsson.
Morgunblaðið/Lilja Olafsdottir
BORN í biðstöðu. Fljótlega kemur að þeirra atriði.
90 ára afmæli
grunnskólans fagnað
í Borgarnesi
Borgarnesi - Grunnskólinn í Borg-
amesi hélt upp á 90 ára starfsaf-
mæli sitt fimmtudaginn 27. maí sl.
Skólinn var stofnsettur árið 1908 í
kjölfar fræðslulaganna sem sett
voru 1907. Hefur skólastarf verið
óslitið í Borgarnesi síðan. Afinæl-
ishátíðin var haldin í Iþróttamið-
stöðinni í Borgamesi og var vel
sótt. Áætlað er að um 750 manns
hafi verið á samkomunni.
í máli skólastjóra, Kristjáns Þ.
Gíslasonar, kom fram að skólastarf
í Borgamesi væri fjölbreytt og
skólinn hefði á að skipa hæfu
starfsfólki. I vetur stunduðu um
330 nemendur nám í skólanum.
Unnið er að því að gera skólann
einsetinn, en nokkuð vantar á að
skólinn ráði yfir nægu húsnæði til
að svo megi verða. Er ætlunin að
byggja við skólann á næstu tveim-
ur ámm þannig að hann þjóni sem
best hlutverki sínu í framtíðinni.
Dagskrá afmælishátíðarinnar
var fjölbreytt og stóð í tvær
klukkustundir. Var þar blandað
saman töluðu máli og skemmtiat-
riðum fluttum af nemendum skól-
ans. Sérstaka athygli vöktu atriði
yngstu nemendanna, sem byggð-
ust á því sem þeir höfðu lært í
skólanum. Þá komu fram þrír kór-
ar og fjölmörg önnur atriði vom á
dagskrá.
Skólanum bámst góðar gjafir og
kveðjur. I lok vel heppnaðs kvölds
komu nemendur 1.-9. bekkjar
fram á gólfið í skrúðgöngu og
fengu afhentar einkunnir sínar.
í lokin þáði fólk veitingar í boði
bæjarstjómar Borgarbyggðar.
Lionskonur
gefa til
dvalar-
heimilisins
Stykkishólmi - Lionsklúbburinn
Harpa í Stykkishólmi er að ljúka
vetrarstarfi sínu. Nýlega færðu
Lionskonur dvalarheimili aldr-
aðra í Stykkishólmi að gjöf full-
komna hárþurrku handa íbúum
heimilisins. Það var Kristín
Björnsdóttir forstöðukona sem
tók á móti gjöfinni og sagði hana
koma að góðum notum.
Starfsemi klúbbsins hefur ver-
ið öflug og fjölbreytt í vetur og
hefur hann m.a. staðið fyrir fjár-
öflun til styrktar ýmsum góðum
málefnum í bænum.
Klúbburinn gaf St.
Franciskusspítala stóla í setu-
stofu í vetur og á sumardaginn
fyrsta færði klúbburinn öllum
nemendum í 1. bekk grunnskól-
ans reiðhjólahjálma að gjöf og
hvatti nemendur til að vera dug-
lega að venja sig á að nota þá í
umferðinni.
Formaður Lionsklúbbsins
Hörpu er Ingibjörg Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Arsgamlir
þríburar
Drangsnesi - Hinn 31. maí sl. áttu
þríburabræðumir á Drangsnesi
eins árs afmæli. Þeir em hressir og
duglegir og þegar þessi mynd var
tekin vom þeir að koma inn eftir að
hafa verið að leika sér á róló með
mömmu og stóm systur.
Þeir heita, talið frá vinstri: Gunn-
ar Már, Þórir Orn og Guðfinnur
Ragnar, og stóra systir sem með
þeim er heitir Stella Guðrún og er
orðin þriggja ára.
STÓRSÝNING
Bíla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bílheima um landió
Föstudaginn 4. júní
Laugar..............10-11.30
Mývatn................ 13-15
Húsavík............... 17-20
Laugardaginn 5. júní
Ásbyrgi................. 10-12
Þórshöfn................ 15-17
Vopnafjöróur............ 19-21
Bílheimar ehf.
SavorhófOa 2a ■ Slml S 2S 9000
www.biOtelmar.ls
Morgunblaðið/Albert Kemp
STARFSFÓLK Landsbanka íslands á Fáskrúðsfirði.
25 ára afmæli
Landsbanka Islands
Fáskrúðsfirði - Útibú Landsbanka
íslands, Fáskrúðsfirði, hélt upp á 25
ára aftnæli sitt þar sem öllum við-
skiptavinum og velunnurum bank-
ans var boðið til veislu.
Útibú bankans tók til starfa 29.
maí 1974 með yfirtöku á Sparisjóði
Fáskrúðsfjarðar. Fyrstu árin var
starfsemin í leiguhúsnæði í Félags-
heimilinu Skrúð en árið 1981 var
flutt í nýtt húsnæði í eigu bankans.
Húsið er á tveimur hæðum. í kjall-
ara hússins er starfrækt seðla-
bankageymsla í eigu Seðlabanka ís:
lands sem þjónar Suðurfjörðum. I
upphafi störfuðu við bankann 6-7
manns en í kjölfar nýrrar tækni og
endurskipulagningar eru þar nú
fjögur stöðugildi. Útibússtjóri er
Tryggvi Karlsson.
Gjafir og samstarfssamningar
í tilefni afmælisins afhenti úti-
bússtjórinn skólastjóra Grunnskól-
ans bókargjöf og gjafabréf fyrir
fjórum tölvum.
Einnig var samstarfssamningur
undirritaður á milli bankans og
björgunarsveitarinnar Geisla á Fá-
skrúðsfirði og Ungmennafélagsins
Leiknis á Fáskrúðsfirði. Báðum
þessum samningum íylgdu peningar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
LIONSKONUR í Stykkishólmi færðu dvalarheimilinu hárþurrku að
gjöf. Kristín Björnsdóttir forstöðukona tekur á móti gjöfinni og með
henni á myndinni eru Kristín Ósk Sigurðardóttir, Þórný Axelsdóttir
og Ingibjörg Ólafsdóttir úr Lionsklúbbnum Hörpu.
Hjúkrunarfræðingar
á N orðurlandi funda
Húsavík - Norðurlandsdeild Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga efndi
til samveru- og heilsueflingardags á
Húsavík fyrir hjúkrunarfræðinga á
Norðurlandi 29. fyrra mánaðar.
Kristín Bjarnadóttir, formaður
deildarinnar, ávarpaði viðstadda í
upphafi dagsins en Salbjörg
Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur
með sérmenntun í geðhjúkrun,
flutti erindi sem hún nefndi Hugar-
þjálfun. Elín Sigurborg Harðardótt-
ir næringarráðgjafi talaði um
heilsusamlegt mataræði og Arný
Runólfsdóttir jógakennari skýrði
jóga íyrir fundarmönnum.
Sem eðlilegt er gerðu fræðing-
arnir fundarhlé til að fara heilsuefl-
ingargöngu um Húsavík. Fræðing-
arnir töldu að markmiði dagsins
hefði verið náð, þ.e. að fræðast og
að huga að eigin líðan og heilsu auk
þess að eiga saman ánægjulega
samverustund.
MorgunblaðiySilli
HJÚKRUNARFRÆÐINGARNIR sem tóku þátt í samveru- og heilsu-
eflingardeginum.