Morgunblaðið - 04.06.1999, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGU NBLAÐIÐ
ERLENT
Umræða um hverjir voru í raun fyrstu íbúar Ameríku skýtur upp kollinum
Nýjar rannsóknir stangast
á við fyrri kenningar
Snyrtileg kenning
NÝJAR rannsóknir á beinagrindum
sem fundist hafa í Norður-Ameríku
gefa ástæðu til að draga í efa að
fyrstu íbúar álfunnar hafi komið frá
Asíu, eirís og áður var talið. Ýmis-
legt bendir til að þeir hafi siglt á
bátum frá Evrópu, meðfram ís-
breiðunni er lá yfir norðurhluta Atl-
antshafs, og komið að landi á aust-
urströnd Norður-Ameríku fyrir allt
að 17 þúsund árum, samkvæmt
grein í nýjasta hefti bandaríska
vikublaðsins Newsweek.
Hin viðtekna kenning um fyrstu
íbúa Amerfku gerir ráð fyrir að ætt-
bálkar af Mongólakyni hafí farið frá
heimkynnum sínum í Norðaustur-
Asíu yfir ísilagt Beringsund fyrir
um það bil 11 þúsund árum. Ætt-
bálkar þeirra hafi breiðst út frá nú-
verandi norðvesturströnd Banda-
ríkjanna, inn í miðríkin og suðvest-
anverða álfuna og loks til austur-
strandarinnar. Talið er að þessir
ættbálkar hafi verið forfeður
indjána í Ameríku.
Ellefu þúsund ára gamlir
spjótsoddar úr steini fundust í Clov-
is í Nýju Mexíkó á fjórða áratugn-
um, og voru þeir taldir marka upp-
haf elstu byggðar í álfunni. Þessi
kenning var svo snyrtileg í augum
fornleifafræðinga að þeir litu lengi
vel framhjá beinagrindum sem
komu ekki heim og saman við hana.
Þegar fundust verkfæri úr steini
sem virtust eldri en 11.000 ára, var
því borið við að mælingamar væru
vitlausar.
Árið 1990 voru sett alríkislög sem
kváðu á um að söfnum bæri skylda
til að skila jarðneskum leyfum
indjána til ættbálka þeirra. Kallaðir
voru til sérfræðingar til að skera úr
um hvaða ættbálkum beinagrind-
umar tilheyrðu, og komst þá skrið-
ur á rannsóknir. I flestum tilfellum
hefur verið auðvelt að greina bein
manna af ólíkum ættbálkum sund-
ur, en nokkrar beinagrindur skera
sig algjörlega úr.
Elsta beinagrindin 11.500 ára
Elsta beinagrindin sem fundist
hefur í Ameríku er af manni sem
lifði fyrir 11.500 ámm á því svæði
sem nú er miðhluti Brasilíu. Rann-
sókn leiddi í ljós að hún var líkust
beinagrindum manna frá Suður-As-
í Evrópukeppni landsliða
á Laugardalsvelli 5. júní kl. 16
Hólf C, F og G í eldri stúku og M, N, 0 og P í nýrri stúku
Fullt verð: 2.000 kr. • Safnkortsverð: 1.800 kr.
Öll sæti númeruð*
Hólf A, B, H og I í eldri stúku og K, L, R og S í nýrri stúku
Fullt verð: 1.500 kr. • Safnkortsverð: 1.200 kr.
Öll sæti numeruð*
HÓIf J og T í nýrri stúku (Börn eðafullorðnirmeð börn)
Fullt verð, fullorðnir: 1.500 kr. • Safnkortsverð: 1.200 kr.
Fullt verð, börn 16 ára og yngri: 500 kr. • Safnkortsverð 400 kr.
Ónúmeruð sæti
Tryggið ykkur uppáhaldssætin í tíma!
Eftir fyrri umferð í riðlinum eru Frakkland og Úkraína efst með 11 stig
ísland með 9, Rússland með 6, Armenía með 4 og Andorra með 0.
VIÐ MINNUM A
að bannað er að taka með sér dösir og fföskur inn á vöilinn
Notkun áfengis er bönnuð.
Oiíufélagið hf
www.esso.is
Dularfullt
dauðsfall í París
Lamaði
sam-
göngur í
borginni
París. AFP.
ALMENNINGSSAMGÖNGUR í
höfuðborg Frakklands voru lamað-
ar í gær, annan daginn í röð, í kjöl-
far verkfalls starfsmanna sam-
göngukerfis Parísarborgar sem
stafar af því að fulltrúi neðanjarð-
arlestakerfis borgarinnar, Metro,
fannst látinn á Barbes-Rochechou-
art lestarstöðinni í norðurhluta
Parísar. Aðstæður á staðnum þóttu
grunsamlegar og starfsmenn neð-
anjarðarlestakerfisins óttast um ör-
yggi sitt. Þá hefur verkfallið orðið
tií þess að samgöngur til Lyon og
Marseille hafa raskast verulega.
Fyrst var talið að Eric Douet,
starfsmaður Metro-kerfisins, hefði
látist af völdum áverka sem tveir
auðnuleysingjar, sem seldu ólögleg-
an varning og voru í lestarstöðinni í
trássi við reglur þar að lútandi,
höfðu valdið honum. Málið er hið
dularfyllsta því í gær lýsti fulltrúi
saksóknaraembættisins í París því
yfír að ekki hefðu fundist nein
merki um barsmíðar á líkama Dou-
ets. Hann hefði líklega látist af
völdum heilablóðfalls eða blóð-
tappa. Þá sagði í yfirlýsingunni að
vitni að atburðinum hefðu sagt að
ekki hefði komið til neinna ryskinga
milli Douets og auðnuleysingjanna.
Enn fremur er talið að starfsfélag-
ar Douets, sem farið hafa fram á
nafnleynd, geti vottað að Douet hafi
ekki verið heill heilsu áður en hann
lést.
290 kílómetra langar bflalestir
Gerard Ballais, talsmaður CGT,
verkalýðsfélags starfsmanna sam-
göngukerfis Parísar, sagði í gær að
yfirlýsing saksóknaraembættisins
breytti engu um verkfall starfs-
manna. Leitað yrði allra leiða til að
tryggja öryggi starfsmanna sam-
göngukerfisins. Samningaumleitanir
hafa ekki náð að leysa deiluna og
hefur Ballais lýst því yfir að stjóm-
endur Metro-kerfisins hafi enn ekki
sýnt vilja til að koma til móts við ör-
yggiskröfur starfsmannanna. Roger
Poletti, formaður CGT, sagði í gær
að harmleikurinn í Barbes-
Rochechouart hefði enn á ný varpað
ljósi á bágt öiyggi starfsmanna.
I gærmorgun urðu borgarbúar
að ganga, hjóla eða ferðast á línu-
skautum til vinnu sinnar. 290 km
langar bflalestir mynduðust inni í
miðborginni, sem og fyrir utan
París, og var talið að umferðin
mjakaðist að jafnaði um 10 km á
klst. Um miðjan dag voru hins veg-
ar lestir gangsettar á nokkrum leið-
um og léttu þær eitthvað af umferð-
arþunganum.