Morgunblaðið - 04.06.1999, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
Ef ég stend nógu lengi hérna, Ég efa það.. Ég vil fá hlutina ókeypis..
heldurðu þá að einhver komi Það er ekki nógu gott..
og gefi mér reiðhjél?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Rógsherferðin
gegn Serbum
Frá Rúnari Kristjánssyni:
Á SÍNUM tíma viðurkenndi tals-
maður skrifstofu SÞ í Belgrad, Sus-
an Manuel, að glæpir hefðu aukist
mikið í þeim hlutum Sarajevo sem
Serbar urðu að láta af hendi til sam-
eiginlegrar yfirstjómar múslima og
Króata, samkvæmt Dayton-samn-
ingnum. Glæpir þessir felast í því að
Serbar þeir sem áfram kusu að búa í
þessum borgarhlutum, eru ofsóttir
og þeim misboðið með ýmsu móti.
Fjölmiðlar þegja hins vegar þunnu
hljóði um þetta og virðast ekki kæra
sig um að segja frá þessu. Þjóðemis-
hreinsanir Króata hafa varla verið
nefndar á nafn og er það sennilega
vegna þess að þær hafa aðallega
bitnað á Serbum. Flestir fjölmiðlar
hafa nefnilega tekið fullan þátt í því
að brennimerkja Serba sem óalandi
og óferjandi þjóð.
Sannkallað galdrafár
Norski diplómatinn Kai Eide hef-
ur látið hafa eftir sér, að versta
ranglætið sem vestrænir fjölmiðlar
hafi framið í þessum málum öllum,
sé að ákæra Serba eina fyrir allt það
ofbeldi sem framið hefur verið af öll-
um stríðandi aðilum í fyrrverandi
Júgóslavíu undanfarin ár. Hann seg-
ir ennfremur, að múslimar hafi verið
lævísastir í því að nýta sér fjölmiðl-
ana, enda hafi 90% fréttaskeyta frá
Bosníu-Herzegóvínu sýnt málin frá
þeirra hlið, en aðeins 10% verið
sanngjöm í garð Serba. Eide sendi-
herra, sem var aðstoðarmaður Thor-
valds Stoltenbergs, fyrrverandi for-
manns AJþjóðanefndarinnar um mál-
efni Júgóslavíu, fékk stuðning við
þessi ummæli sín frá Hanesofie
Greve á umræðufundi í Bergen, en
hún er dómari og sat í rannsóknar-
nefnd SÞ varðandi stríðglæpi í Jú-
góslavíu. Greve sagði að vestrænir
fjölmiðlar hefðu gegna lykilhlutverki
í því að fordæma Serba. Þannig hafa
ýmsir réttsýnir atkvæðamenn bent á
þá skökku mynd sem hefur verið
dregin upp í fjölmiðlum af því sem
hefur verið að gerast í Júgóslavíu og
harmað að fjölmiðlar hafa þar að
miklu leyti brugðist því meginhlut-
verki sínu, að veita almenningi um
allan heim réttar upplýsingar um
það sem er að gerast.
Fjölmiðlar eiga að sjálfsögðu ekki
að taka afstöðu með einum aðila
gegn öðrum, með því grafa þeir und-
an eigin gildi og spilla starfsheiðri
sínum. Athyglisvert hefur verið að
sjá að flest fréttaskeyti frá Jú-
góslavíu hafa verið send frá Zagreb,
Sarajevo og Pristina. Tiltölulega fá
hafa komið frá Belgrad. Fingrafor
Króata, múslima og Albana hafa líka
verið auðfinnanleg á flestum þessum
fréttaskeytum.
Rógsherferðin gegn Serbum hefur
verið með ólíkindum og henni verður
að ljúka. Engin þjóð á slíka meðferð
skilið. íslendingar eiga að taka af-
stöðu gegn heilaþvottastefnum af
öllu tagi - annað er ekki sæmandi
fyrir þjóð sem vill vera ærleg gagn-
vart sjálfri sér og öðrum.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
/ -----------------------'
Nýkomið mikið úrval af vönduðum
og fallegum herraskóm
BE HAPPY
sc mn
St. 24-31.
Verð: 6.995