Morgunblaðið - 25.08.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 11
FRÉTTIR
ÚR VERINU
Á NOKKRUM stöðum við landið er nú hafin vöktun á
eitruðum svifþörungum. Þörungar þessir geta valdið
eitrun í skelfiski, eins og t.d. kræklingi. Vöktunin er
samvinnuverkefni Fiskistofu, Veiðimálastofnunar, Um-
hverfisstofnunar, kræklingsræktenda og Hafrann-
sóknastofnunar, en sú síðasttalda sér um greiningu
sýna. Niðurstöður eru birtar jafnóðum á heimasíðu
stofnunarinnar, www.hafro.is.
Vinsældir skelfisks til átu hafa farið vaxandi á und-
anförnum árum, en hann er ræktaður á nokkrum stöð-
um við landið. Algengt er einnig að fólk tíni sér kræk-
ling til matar í fjöru en það er ekki alltaf hættulaust.
Hér við land lifa meira en 300 tegundir svifþörunga og
geta nokkrar þeirra valdið skelfiskeitrun.
Í Hvalfirði, Breiðafirði, Eyjafirði og Mjóafirði
(eystri) eru tekin sýni vikulega og athugað hvort svif-
þörungar sem geta valdið skelfiskeitrun séu í sýnunum.
Ef fjöldi eitraðra svifþörunga fer yfir tiltekin viðmið-
unarmörk er varað við söfnun og neyslu skelfisks af
viðkomandi svæði.
Á hverju ári hafa eitraðir svifþörungar fundist allt í
kringum landið og stundum í það miklum mæli að
hættulegt hefur verið talið að neyta skelfisks af við-
komandi svæði. Algengast er að eitraðir þörungar finn-
ist í svifinu á tímabilinu frá maí til október.
Magakveisa og fleira
Ef fólk neytir skelfisks sem hefur étið eitraða þör-
unga getur það veikst alvarlega. Ekkert aukabragð
finnst af eitruðum skelfiski svo ekki er hægt að varast
hann og eitrunin hverfur heldur ekki við eldun. Að-
allega er um að ræða þrenns konar eitrun sem ræðst af
því hvaða hópar þörunga eru ríkjandi í svifinu: DSP-
eitrun veldur uppköstum og niðurgangi. Einkenni PSP-
eitrunar er doði, lömun eða öndunarörðugleikar og
ASP-eitrun kemur fram í uppköstum, niðurgangi og
minnisleysi. Í verstu tilfellunum getur eitrunin leitt til
dauða.
Vakta eitraða svifþörunga
Þörungarnir geta valdið eitrun í skelfiski
VERÐ á sjávarafurðum hækkaði
um 0,7% í júlí frá mánuðinum á und-
an mælt í erlendri mynt (SDR) sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Af-
urðaverðið í erlendri mynt náði
hámarki í janúar síðastliðnum en er
nú litlu lægra og mælist 8,2% hærra
nú en fyrir ári.
Morgunkorn Íslandsbanka fjallar
um þessa hækkun og segir þar með-
al annars svo: „Afurðaverð mælt í
íslenskum krónum lækkaði um 0,6%
í júlí frá mánuðinum á undan vegna
styrkingar krónunnar. Síðastliðið ár
hefur afurðaverð í íslenskum krón-
um lækkað um 3%. Gengishækkun
krónunnar hefur því étið upp af-
urðaverðhækkunina á mörkuðum
erlendis og gott betur. Afurðaverð-
hækkunin undanfarna mánuði hefur
því einungis unnið gegn háu gengi
krónunnar fyrir sjávarútvegsfyrir-
tækin. Fiskvinnslufyrirtæki finna
harðar fyrir sterkri krónu en út-
gerðarfyrirtæki þar sem laun fisk-
vinnslufólks eru ekki beintengd
gengi krónunnar líkt og laun sjó-
manna eru í gegnum hlutaskipta-
kerfi þeirra. Af einstökum tegund-
um hækkaði verð á sjófrystum
botnfiskafurðum um 2,2% í júlí og er
sögulega hátt mælt í erlendri mynt.
Landfrystar botnfiskafurðir hækk-
uðu um 1% í júlí. Verð á frosinni síld
lækkaði um 4% á milli mánaða og
stendur mjög hátt.“
!
"
"
#
$
%
&
'
(
Afurðaverð hækkar
LIV Aasen, fyrrverandi sendi-
herrafrú Noregs á Íslandi og með-
limur norska Stórþingsins, lést
sunnudaginn 21. ágúst í Noregi.
Aasen var kjörin á norska Stór-
þingið 1969 og sat þar samfellt í 20
ár. Hún var í 40 ár virk í stjórnmála-
starfi norska Jafnaðarmannaflokks-
ins, meðlimur utanríkismálanefnd-
arinnar, sat í Evrópuráðinu og
gegndi fjölda opinberra trúnaðar-
starfa fyrir land sitt og þjóð.
Eftirlifandi eiginmaður hennar er
Per Aasen, sem var sendiherra Nor-
egs á Íslandi árin 1978–1985. Þau
hjónin eignuðust hér mikinn fjölda
vina og kunningja meðal stjórn-
mála-, embættis- og fjölmiðlamanna
og ræktuðu alla tíð vel sambandið við
Ísland og Íslendinga.
Andlát
LIV
AASEN
EFTIR mikinn árangur af baráttu
alþjóðlegu Lions-hreyfingarinnar
gegn blindu á undanförnum árum
hefur nú verið lagt af stað í nýtt átak
þar sem athyglinni verður beint að
blindu í börnum, einkum blindu hjá
börnum sem fæðast fyrir tímann og
blindu af völdum sykursýki.
Þetta er meðal þess sem Ashok
Mehta, alþjóðaforseti Lions-
hreyfingarinnar, hefur beitt sér fyr-
ir á því rúma hálfa ári sem hann hef-
ur verið í embætti. Hann kom í
stutta heimsókn hingað til lands á
þriðjudag og hitti m.a. Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands, í gær.
Mehta segir að verkefni alþjóða-
forseta feli í sér mikil ferðalög á því
ári sem hver einstaklingur gegnir
starfinu, enda reyni hann að vekja
athygli stjórnvalda í löndum heims á
starfi Lions-klúbbanna og auka
samstarf þegar það er hægt. Ísland
er því aðeins eitt af 80-90 löndum
sem Mehta reiknar með að heim-
sækja áður en hann lætur af emb-
ætti.
Þar sem Lions-hreyfingin er lýð-
ræðisleg hafa einstakir klúbbar inn-
an hennar fulla heimild til þess að
beita sér í málum sem þeim finnst
skipta máli á hverjum stað, en auk
þess setur alþjóðahreyfingin af stað
ákveðin alþjóðleg verkefni sem
brýnt er að sinna. Frá 1991 hefur
áhersla verið lögð á baráttuna gegn
blindu. Segir Mehta að á þeim tíma
hafi um 40 milljónir manna í heim-
inum þjáðst af blindu og í um 80%
tilvika stafi blindan af sjúkdómum
og hægt að koma í veg fyrir hana sé
brugðist við í tæka tíð. Því hafi
Lions-hreyfingin safnað fé meðal fé-
lagsmanna og notað það til þess m.a.
að greiða fyrir 9 milljón augn-
aðgerðir, sem eiga að koma í veg
fyrir blindu, og 26 milljón lækn-
ismeðferðir vegna augnsjúkdóma.
Blinda barna næst á dagskrá
Fyrir 14 árum hófst mikil fjár-
söfnun og var safnað um 200 millj-
ónum bandaríkjadala, eða um 13
milljörðum króna að núvirði, til
verkefnisins, og er það fé nú að
mestu uppurið. Því verður farið af
stað með nýja fjársöfnun fyrir nýtt
verkefni tengt blindu, sem mun snú-
ast að mestu um hvernig megi koma
í veg fyrir blindu hjá börnum.
Mehta segir að eins og yfirleitt sé
þá fari fjársöfnunin nú fram meðal
Lionsmanna, sem eru um 1,4 millj-
ónir um allan heim, ekki sé leitað út
fyrir þeirra raðir. „Við höfum alltaf
haft í huga spakmælið að mann-
kærleikurinn hefjist heimavið, eða
eins og Móðir Teresa sagði: „Gefið
þar til ykkur verkjar“.“
Hann segir verkefnið hafa tvær
hliðar, annars vegar rannsóknir á
blindu sem þróast hjá börnum sem
fæddust löngu fyrir tímann, en hins
vegar eigi að rannsaka arfgengi syk-
ursýki, sem leiðir í mörgum tilvikum
til blindu.
Þetta nýja verkefni segir Mehta
að verði eitt af stóru verkefnum
Lions-hreyfingarinnar, en ekki það
eina. Það sé einnig markmiðið að
berjast af alefli gegn alnæmi í Afr-
íku, þar sem sjúkdómurinn er stór-
kostlegt vandamál. Þær aðferðir
sem beita á eru tvíþættar, annars
vegar fræðsla um sjúkdóminn, smit-
leiðir og varnir gegn honum, en hins
vegar verður dreift nokkurskonar
sjálfsölum þar sem hægt verður að
fá ókeypis smokka með því að ýta á
takka.
Efla sjálfstraust barna
Þriðja stóra verkefnið, og e.t.v.
það sem verið hefur mest sýnilegt
hér á landi, er fræðsla fyrir börn,
þar sem Mehta segir að í grundvall-
aratriðum sé verið að efla sjálfs-
traust barnanna, að kenna þeim að
það sé í lagi að segja nei við því sem
er slæmt fyrir þau, svo sem tóbaki
og áfengi.
„Það hefur náðst mjög góður ár-
angur af þessu verkefni á síðustu 10
árum, einnig hér á Íslandi. Við byrj-
um þegar börnin eru á aldrinum 6-
12 ára, sem er aldurinn þegar börn
eru að móta sér siði, eða ósiði, sem
þau eiga eftir að bera með sér út líf-
ið. Börn sem fara í gegnum þessa
fræðslu eru þess frekar megnug að
greina á milli þess sem er rétt og
rangt, og hafa viljastyrkinn til að
hafna því ranga,“ segir Mehta.
Alþjóðaforseti Lions-hreyfingarinnar segir að baráttan
gegn blindu í heiminum hafi skilað miklum árangri
Ætla að beina athyglinni
að blindu hjá börnum
Morgunblaðið/Jim Smart
Ashok Mehta, alþjóðaforseti Lions-hreyfingarinnar, og Kokila, kona hans,
hittu Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum í gær og gáfu
honum bók með frægum ummælum Mahatma Gandhi.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
VIÐRÆÐUM um hugsanlegan sam-
runa Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
og Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur
verið hætt, samkvæmt upplýsingum
frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Í
tilkynningu segir að viðræðurnar
hafi staðið yfir undanfarna mánuði.
„Stjórnir sjóðanna meta það svo að
sameining gangi ekki upp eins og
staðan er í dag, m.a. vegna mismun-
andi samsetningar sjóðanna. Þess
vegna er það sameiginlegt mat
stjórna sjóðanna að rétt sé að hætta
viðræðum.“
Samruna-
viðræðum
hætt
KARLMAÐUR sem sætir gæslu-
varðhaldi vegna láts Braga Hall-
dórssonar sem stunginn var til bana
á Hverfisgötu á laugardagsmorgun,
hefur játað á sig verknaðinn við yf-
irheyrslur hjá lögreglu samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Rann-
sókn á málinu hefur staðið yfir frá
handtöku hins grunaða, en hann
heitir Sigurður Freyr Kristmunds-
son og er 23 ára gamall. Hann hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 30. ágúst. Bragi heitinn var tví-
tugur að aldri.
Tengist ekki málinu
Lögreglan í Reykjavík sendi frá
sér yfirlýsingu í gær vegna umfjöll-
unar DV um málið, en í henni er
fréttaflutningur blaðsins harmaður.
Segir í yfirlýsingunni:
„Í frétt í DV í gær var greint frá
því að maður hefði orðið vitni að
átökum Sigurðar Freys Krist-
mundssonar, þess sem nú sætir
gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa
banað manni að Hverfisgötu 58 og
tvítugs pilts. Kveðst vitnið hafa til-
kynnt lögreglunni um átökin ca 45
mínútum fyrir hinn voveiflega at-
burð, en lögreglan ekki brugðist við
tilkynningunni.
Af þessu tilefni vill lögreglan í
Reykjavík taka fram eftirfarandi:
Lögreglan hefur hlýtt á upptöku af
símtali umrædds heimildarmanns
DV við Fjarskiptamiðstöð lögreglu
og kemur þar fram að hann er að til-
kynna um ölvað fólk eða undir áhrif-
um annarra vímuefna, sem er við það
að stíga upp í bifreið og hyggst aka
austur Hverfisgötu, í átt að lögreglu-
stöðinni. Hann gat ekki sagt til um
skráningarnúmer bifreiðarinnar og
kemur þar ekki fram að hann hafi
orðið vitni að átökum fólks. Lögregl-
an brást við þessari tilkynningu en
fann ekki bifreiðina í akstri. Tilkynn-
ing umrædds heimildarmanns teng-
ist því á engan hátt þeim atburði sem
síðar varð að Hverfisgötu 58.
Lögreglan harmar mjög óná-
kvæman fréttaflutning DV í þessu
máli og ekki síst að blaðamaður skuli
ekki hafa leitað eftir sannleiksgildi
fréttarinnar áður en hún var birt.“
Játning í
málinu
liggur fyrir
Stakk tvítugan pilt til
bana á Hverfisgötu