Morgunblaðið - 25.08.2005, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
BRESKA ríkisstjórnin gerði í gær
grein fyrir þeim reglum sem unnið
verður eftir þegar leggja skal mat á
hvort vísa eigi útlendingi búsettum í
Bretlandi úr landi eða meina fólki að-
gang að landinu. Fela reglurnar í sér
mat á því hvað telst vera „ólíðandi
hegðun“, svo notað sé orðbragð
Charles Clarke innanríkisráðherra.
Sagði Clarke að „innan fárra daga“
yrði gripið til aðgerða gegn einhverj-
um einstaklingum á grundvelli regln-
anna.
Reglurnar eru liður í viðbrögðum
stjórnvalda í Bretlandi við hryðju-
verkaárásunum í London 7. júlí sl.
sem kostuðu 52 lífið.
Reglurnar fela í sér að hægt verði
að grípa til aðgerða gegn þeim sem
æsa til, réttlæta eða vegsama hryðju-
verk. Einnig þeim sem reyna að espa
menn til hryðjuverka eða glæpa, eða
ala á hatri milli ólíkra þjóðfélags-
hópa. Sagði Clarke að með því að
skilgreina hvers konar brotum verði
brugðist við þá væru
stjórnvöld að mæta
þeirri „raunverulegu
og umtalsverðu
hættu“ á hryðjuverk-
um sem til staðar
væri í Bretlandi.
Sagði Clarke að
reglunum yrði fram-
fylgt af hófsemi en á
beinskeyttan hátt,
meiningin væri hins
vegar ekki að hamla
eða kæfa málfrelsi í
Bretlandi.
Gagnagrunni
komið upp
Um er að ræða bann við því að
skrifa, framleiða eða birta ögrandi
efni; predika eða flytja á öðrum op-
inberum vettvangi efni sem æsir til
hryðjuverka; starfrækja vefsíðu í
þeim sama tilgangi eða beita áhrifum
sínum á annað fólk, séu menn t.d. í
stöðu kennara eða forystumanns í til-
teknum samfélagshópi.
Sagði Clarke að komið yrði upp
gagnagrunni um
menn, sem gerst
hefðu brotlegir við
reglurnar, og innflytj-
endayfirvöldum veitt-
ur aðgangur að hon-
um. „Hvorki stjórn-
völd né samfélagið í
heild sinni mun um-
bera einstaklinga sem
gera sér far um að
valda ótta, vantrausti
og sundrungu í því
skyni að espa til
hryðjuverkastarf-
semi,“ sagði Clarke.
„Með því að birta
þennan lista í dag þá
tek ég af allan vafa um að svona
hegðun er ólíðandi og verður hún
álitin tilefni til að vísa mönnum úr
landi eða meina þeim aðgang að
Bretlandi.“
Óttast pyntingar á mönnum
Bresk stjórnvöld eru sögð vera að
leitast eftir loforðum frá löndum í
Norður-Afríku og Mið-Austurlönd-
um um að þau misþyrmi ekki eða
pynti einstaklinga sem vísað er þang-
að frá Bretlandi. En gagnrýnendur
segja slík loforð einskis virði og segja
að sé einhver grunaður um stuðning
við hryðjuverkasamtök eigi einfald-
lega að rétta yfir þeim hinum sama í
Bretlandi.
Inayat Bunglawala, talsmaður
Múslímaráðsins í Bretlandi, sagði
lista stjórnvalda yfir „ólíðandi hegð-
un“ of óljósan. „Við höfum sérstak-
lega áhyggjur af því að virtum ísl-
ömskum fræðimönnum verði mein-
aður aðgangur að Bretlandi á grund-
velli einskis annars en galdrafárs
sem kann að hafa farið fram í fjöl-
miðlum og runnið er undan rifjum
stuðningsmanna Ísraels.“
Og Manfred Nowak, sérlegur er-
indreki Sameinuðu þjóðanna um
pyntingar í heiminum, sagði þá fyr-
irætlan breskra stjórnvalda að vísa
úr landi berorðum íslamistum til
landa þar sem mannréttindi eru ein-
att brotin skapa „raunverulega
hættu“ á því að viðkomandi yrði
dæmdur til dauða.
Hafa skilgreint hvað
telst „ólíðandi hegðun“
Bresk stjórnvöld kynna eftir hvaða reglum verður unnið þegar lagt er mat á
hvort vísa skal útlendingi úr landi eða meina fólki aðgang að því
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Charles Clarke
DANSKA stjórnin ætlar að kanna
hvort hún geti án atbeina Evrópu-
sambandsins bannað öll aukaefni í
tóbaki. Er þá sérstaklega átt við
efni, sem blandað er í tóbakið bein-
línis til að gera fólk enn háðara því
en ella.
Fyrir slíku banni hefur verið
meirihluti á danska þinginu í nokk-
urn tíma en nú hefur verið sam-
þykkt að vinna að þessu. Kom þetta
fram á fréttavef Berlingske Tid-
ende í gær. Hingað til hefur verið
vísað í, að lög um þetta séu á döf-
inni innan ESB en þau geta dregist
í allt að 10 ár. Þess vegna finnst
henni rétt að hefjast handa upp á
eigin spýtur og banna aukaefnin,
sem eru fjöldamörg.
Aukaefni
í tóbaki bönnuð?
Líma. AFP, AP. | Að minnsta kosti 37
fórust í flugslysi í Perú í fyrrakvöld
en 52 lifðu af. Slysið átti sér stað við
afar erfið veðurskilyrði og brotlenti
flugvél TANS-flugfélagsins, sem var
af gerðinni Boeing 737-200, ör-
skammt frá flugvellinum í Pucallpa,
þar sem hún átti að lenda.
Tala látinna var nokkuð á reiki í
gær, Associated Press sagði 41 hið
minnsta hafa farist en AFP-frétta-
stofan talaði um staðfest 37 fórnar-
lömb. 92 farþegar voru í vélinni og 8
manna áhöfn, flestir farþeganna
voru Perúmenn en í flugvélinni var
einnig að finna ellefu Bandaríkja-
menn, tvo Ítali, Ástrala, Spánverja
og Kólumbíumann.
Flugvélin var að koma frá Líma,
höfuðborg Perú. Átti hún að lenda í
Pucallpa, borg inni í miðju landi, á
Amazon-regnskógasvæðinu um 840
km norðaustur af Líma. Var vélin
minna en fimm km frá áfangastað
sínum þegar hún brotlenti. Mikið
óveður, m.a. öflugar vindhviður, eru
sagðar skýra slysið en það skall á
með miklum ofsa þar sem flugstjór-
inn var að undirbúa flugvélina fyrir
lendingu. Mun hann hafa sent flug-
umferðarstjórn þau skilaboð
skömmu áður en vélin fórst að hann
gæti ekki lent vélinni við þessar að-
stæður. Haft var eftir vitni að flug-
vélin hefði komið til jarðar í miklu
mýra- og skóglendi nálægt þjóðveg-
inum. Þar hefði hún brotnað í tvennt.
!"!
###$%
&''
(
)*
+ , -
./
52 komust
lífs af úr
flugslysi
í Perú
♦♦♦
Kabúl. AP. | Stjórnvöld í Afganistan
lýstu í gær mikilli gremju með
„óvanalega væga“ dóma yfir banda-
rískum hermönnum, sem sakaðir
voru um að kvelja tvo afganska
fanga til dauða. Hyggjast þau taka
málið formlega upp við Bandaríkja-
stjórn.
Bandaríkjaher viðurkenndi á sín-
um tíma, að Afganarnir, Dilawar,
22 ára leigubílstjóri, og Mullah
Habibullah, þrítugur að aldri,
hefðu látist er þeir voru í haldi í
Bagram-herstöðinni í Afganistan
síðla árs 2002. Var þá sagt, að allt
að 28 hermenn yrðu ákærðir en
þegar málið kom nú fyrir herrétt í
Texas, voru aðeins fjórir dæmdir.
Var einn dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi, annar í tveggja, sá þriðji
lækkaður í tign, áminntur og sekt-
aður og sá fjórði lækkaður í tign og
launum.
Karim Rahimi, talsmaður Hamid
Karzais, forseta Afganistans, sagði
í gær, að dómarnir væru mikið áfall
enda um alvarleg brot að ræða. Ah-
mad Shah Midad, sem sæti á í
óháðri mannréttindanefnd í Afgan-
istan, tók enn dýpra í árinni:
„Dómarnir eru bara brandari.
Mennina hefði átt að dæmi í 20 ára
fangelsi eða jafnvel til dauða. Þeir
drápu menn og áttu að fá sína refs-
ingu.“
Hlekkjaðir við
loft og barðir
Fram kemur í skjölum Banda-
ríkjahers, sem mannréttindasam-
tökin Human Rights Watch hafa
komist yfir, að afgönsku fangarnir
tveir hafi verið neyddir til að
standa í fæturna dögum saman.
Voru þeir hlekkjaðir við loftið í
klefanum, annar með hlekkina um
sig miðjan en hinn um úlnliði.
Var öðrum misþyrmt reglulega í
fimm daga og voru þá allir vöðvar í
fótleggjum ónýtir eftir barsmíðar.
Fram kemur í skýrslu frá hernum,
sem dagsett er 6. júlí 2004, að
krufning hefði sýnt, að hefði mað-
urinn haldið lífi, hefði orðið að taka
af honum báða fætur. Blóðtappar í
fótum af völdum barsmíða voru
banameinið.
„Það er ótrúlegt að heyra um
þessa dóma yfir hermönnunum,“
sagði Ahmad Nader Nadey, tals-
maður hinnar opinberu mannrétt-
indanefndar í Afganistan. „Við
krefjumst þess, að Bandaríkja-
stjófn gefi á þeim sína skýringu.“
Afganar lýsa yfir gremju í
garð Bandaríkjamanna
Málamyndadómar yfir hermönnum sem kvöldu tvo afganska fanga til dauða
KÍNVERJAR og Rússar hafa síð-
ustu daga staðið fyrir sameig-
inlegum heræfingum. Hófust þær
fyrir átta dögum í borginni Vladi-
vostok í Rússlandi og lýkur í dag á
Shandong-skaga í austurhluta
Kína. Á myndinni sést hvar þriðju
lotu æfinganna var hrint í fram-
kvæmd í gær með lendingu her-
sveita á ströndinni og minna aðfar-
irnar nokkuð á lendingu herja
Breta og Bandaríkjamanna í
Normandí 1944 í síðari heimsstyrj-
öldinni. Börðust hermenn í þessum
ímynduðu átökum í gær um yf-
irráð yfir ströndinni og tók bar-
daginn um klukkustund, að því er
greint var frá í kínverskum fjöl-
miðlum.
Varnarmálaráðherrar beggja
landa – sá rússneski heitir Sergei
Ivanov og sá kínverski Cao
Gangchuan – fylgdust báðir með
æfingunum í gær og lýsti Cao mik-
illi ánægju sinni að þeim loknum,
sagði þær hafa opnað nýjan kafla í
samskiptum Kína og Rússlands.Reuters
Heræfing-
ar Kínverja
og Rússa